Í boði náttúrunnar

Hrísey

Frá 2011

Umsjón: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason.

Tæknimaður: Björgvin Kolbeinsson

Heildartími 52.24

Tal út 50.58

Innihald:

Í þessum síðasta þætti sumarsins fara þáttastjórnendur út í Hrísey til kynnast hvað náttúran í þessari næst stærstu eyju landsins, sem er staðett í Eyjafirðinum hefur upp á bjóða. Þart hitta þau einn íbúa eyjarinnar, leikarann, trúðinn, veiðimanninn og sérlegan áhugamann um jurtir og jurtalækningar Aðalstein Bergdal sem mun m.a. fræða þau um fjallagrasið og ætihvönnina sem hann nýtir á fjölbreyttan máta. Síðan fara þau og veiða í soðið um borð í trillinni Aldísi Berg sem Aðalsteinn eignaðist fyrir rúmum fimm árum og er líklega ein af elsu trétrillum landsins.

Viðmælendur:

1. Aðalsteinn Bergdal

Tónlist:

1. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

2. ?, ?, ?,

3. Örlítið til, KK, Gleðifólki, KK 1995

4. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006

Birt

27. ágúst 2011

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Í boði náttúrunnar

Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, hugmynd um hvernig þau eiga koma slíku verki í framkvæmd. En til afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.

Þættir

,