Í boði náttúrunnar

Birki og ber

Frá 2011

Í þessum þætti verða birki og ber í aðalhlutverki. Fyrst spjalla þáttastjórnendur við Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttir einn af eigendum Holta og heiða sem vinnur ýmsar vörur úr náttúru Hallormsstaðar m.a. birki safa og birki síróp. Því næst verður farið í heimsókn til Sigurbjargar Snorradóttur Krossum á Árskógströnd sem hefur tínt ber í 30 ár. Hún mun fræða þáttastjórnendur m.a. um munin á aðalberjum og aðalbláberjum, berjahorfur fyrir norðan og samkeppnina við nýjan varg í berjalöndunum. lokum fræðir Erling Ólafsson dýrafræðingur hjá Náttúrustofnun þáttastjórnendur um birkifetann sem er farin ógna berjalöndum víða um land.

Birt

20. ágúst 2011

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Í boði náttúrunnar

Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, hugmynd um hvernig þau eiga koma slíku verki í framkvæmd. En til afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.

Þættir

,