Hvar erum við núna?

Náttúruperlur Vesturlands

Í þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Vesturlands og Vestfjarða. Þar er hægt klifra í klettum, leika sér á löngum ströndum, fara í náttúrulaugar, skoða fossa og fylgjast með dýralífi. Heimamennirnir og sérfræðingarnir Saga frá Ísafirði, Marinó frá Borgarnesi og Sigurbjörg Heiða frá Akranesi segja okkur frá þessum fallegu náttúruperlum og hvaða staðir eru ómissandi fyrir krakka og fjölskyldur á ferð um Vesturland! Þjóðsögur þáttarins fjalla um stórhættulegan foss í Borgarfirði og dularfullt ljós á Hornströndum. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!

Frumflutt

10. júní 2021

Aðgengilegt til

25. júlí 2024
Hvar erum við núna?

Hvar erum við núna?

Spennum beltin og ferðumst hringinn með KrakkaRÚV! Stórskemmtilegir fjölskylduþættir fyrir ferðalanga á ferð um Ísland. Þjóðsögur og ævintýri, bílaleikir, fróðleiksmolar og sögur frá krökkum á öllum aldri. Í hverjum þætti er spurningakeppni þar sem kemur í ljós hvaða fjölskyldumeðlimur veit mest um Ísland...nú eða hlustaði best á þáttinn!

Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,