Hvar erum við núna?

Norðausturland

Í þessum þætti ferðumst við um Norðausturland, frá Langanesi og alveg Siglufirði, þar sem miðnætursólin sest ekki! Sérfræðingur þáttarins kemur frá höfuðstað Norðurlands, en það er Albert Gísli frá Akureyri, en við lærum líka heilmargt um önnur bæjarfélög á svæðinu og jafnvel um heimkynni trölla og jólasveina. Þjóðsaga þáttarins fjallar um Grettir sterka og hvernig honum tókst sigrast á tröllunum í Goðafossi. Veistu hvers vegna Goðafoss heitir Goðafoss? Hlustaðu vel á þáttinn og þú gætir fengið forskot í spurningakeppninni í lokin!

Frumflutt

16. júní 2020

Aðgengilegt til

9. júlí 2024
Hvar erum við núna?

Hvar erum við núna?

Spennum beltin og ferðumst hringinn með KrakkaRÚV! Stórskemmtilegir fjölskylduþættir fyrir ferðalanga á ferð um Ísland. Þjóðsögur og ævintýri, bílaleikir, fróðleiksmolar og sögur frá krökkum á öllum aldri. Í hverjum þætti er spurningakeppni þar sem kemur í ljós hvaða fjölskyldumeðlimur veit mest um Ísland...nú eða hlustaði best á þáttinn!

Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,