
Fyrst á fætur
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda var á sínum stað á þessum fallega sunnudagsmorgni og lék notalega tóna fyrir hlustendur. Hún hringdi austur á Borgarfjörð og heyrði í Öldu Marín Kristinsdóttur fulltrúa sveitarstjóra sem sagði frá lífinu fyrir austan og svo spilaði Hulda afmæliskveðju, í söngformi, frá Karlakór Dalvíkur til forseta Íslands.
Gestur þáttarins að þessu sinni var Hjálmar Waag Árnason fyrrum skólameistari og þingmaður sem sagði frá fjölbreyttum ferli og lífsins áskorunum, m.a. hvernig hann dó og var endurlífgaður eftir hjartaáfall og heilaæxlinu sem fannst í höfði hans fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir áföll kýs Hjálmar að halda í gleðina og njóta lífsins á þriðja æviskeiðinu, sem hann segir það besta.
Lagalisti:
Hjálmar - Saknaðarljóð.
Beck - Morning.
Carole King - You've got a friend.
KK & Magnús Eiríksson - Vindur.
Bruce Hornsby and the Range - The way it is.
Santana - Black Magic Woman.
Ásgeir Trausti - Hunter.
Hozier og Mavis Staples - Nina cried power
Olivia Dean - So easy (To fall in love).
Sheena Easton - Morning Train (Nine to five).

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.