Sveitasíminn hringdi í Vík að þessu sinni og þar varð Daníel Óliver Sveinsson fyrir svörum, en hann rekur þar tvo veitingastaði og vinnur að opnun fyrsta bakarís staðarins.
Gestur þáttarins var svo Benedikt Gylfason lagasmíðanemi við Berklee háskóla í Boston í Bandaríkjunum og hann sagði frá löngum listaferli þó ungur sé, ballettdraumnum sem varð ekki að veruleika vegna þrálátra meiðsla, kórlífinu og svo náminu fyrir vestan.
Lagalisti:
Jónas Sig - Að lokum
Brenda Lee - I'm Sorry.
Ellen Kristjáns og Þorsteinn Einars - Hluthafi í heiminum.
John Mayer - I Guess I Just Feel Like.
Mannakorn - Þegar blúsinn hellist yfir.
Árstíðir - Ljóð í sand.
Stebbi JAK - Djöflar.
Daníel Óliver - First, pop.
Oasis - She's electric.
Nick Cave and the Bad Seeds - Bring It On.
Elbow - Golden Slumbers.
Carpenters - Rainy Days And Mondays.
Benedikt Gylfason - Þora.
Benedikt Gylfason - Bow to the emperor (Lifandi flutningur).
Valdimar - Yfir borgina.
Bee Gees - Too much heaven.