Gestur þáttarins að þessu sinni var Ragnhildur Ágústsdóttir, einn stofnenda og eigenda Lava Show. Hún sagði frá því hvernig þau hjónin létu vaða í að stofna fyrirtækið og tækla alls kyns áskoranir, ekki bara í rekstrinum, heldur líka í einkalífinu. Tveir sona þeirra greindust einhverfir með stuttu millibili og þau, sem vissu ekkert um einhverfu, einsettu sér að fræðast um hana og skapa drengjunum sínum gott líf. Þriðji sonurinn kom í heiminn um sama leyti og fyrirtækið varð til og að sjálfsögðu fékk drengurinn nafnið Funi.
Á línunni í sveitasímanum var svo Sigrún Ólafsdóttir í Hallkelsstaðahlíð sem sagði vor í lofti fyrir vestan og rifjaði líka upp söguna af fljótandi hóteli á Hlíðarvatni.
Lagalisti:
Mannakorn - Ferjumaðurinn.
Bruce Springsteen - Streets of Philadelphia.
Valdimar - Karlsvagninn.
Cowboy Junkies - Sweet Jane.
Paul McCartney og Ringo Starr - Home to us.
Jeff Buckley - Lover you should've come over.
Ríó Tríó - Eina nótt.
Snorri Helgason - Einsemd.
Tracy Chapman - Baby can I hold you.
Andrea Gylfadóttir - Ég ætla að bíða.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Ég labbaði í bæinn.
Khruangbin - Pelota.