Við höfum síðustu dagana rætt fjölbreyttan undirbúning fyrir ferðahelgina sem fram undan er, verslunarmannahelgin sjálf skellur á á morgun og jafnvel mörg hver sem taka forskot á sæluna og eru farin af stað í útilegur, á útihátíðir eða viðburði hvers konar. Mikilvægi góðs undirbúnings er ótvírætt, sérstaklega að pakka skal réttu fötunum í tösku. Og þá er það mál málanna, hvernig mun viðra á landsmenn. Helga Ívarsdóttir deildarstjóri veðurþjónustu á Veðurstofu Íslands fór yfir helgarveðrið með okkur.
Í byrjun vikunnar komu tveir reynsluboltar í verslunarrekstri til okkar, þær Tinna Hemstock sem rekur skóbúðina Apríl og Karin Kristjana Hindborg eigandi snyrtivöruverslunarinnar Nola. Þær sögðu okkur frá því hvernig rekstrarumhverfi sérverslana á Íslandi hefði þyngst undanfarin ár - sem gerði verslunum nánast ókleift að standa undir starfsemi. Meðal ástæðna fyrir erfiðu árferði er að fólk nýtir sér alla þjónustu sem býðst inn í verslun og yfirgefur hana með þeim orðum að það ætli að kaupa vörurnar ódýrari á netinu. En hvað er hægt að gera til að styrkja rekstrarumhverfi sérverslana? Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu ræddi við okkur þessi mál.
Fifa sætir harðri gagnrýni þessa dagana vegna áætlana þess um að bjóða utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins. Áformin hafa vakið hörð viðbrögð, meðal annars hjá UEFA, evrópska knattspyrnusambandinu, sem hefur boðað til sérstaks neyðarfundar vegna málsins. Formaður KSÍ, Þorvaldur Örlygsson, mun sitja þann fund. Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður greindi frá þessu ásamt fleiru úr heimi íþróttanna.
Mörg hundruð minkar, að minnsta kosti, sluppu úr loðdýrabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal eftir innbrot og skemmdarverk í gærmorgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur málið til rannsóknar en skotvopnum var beitt í gær til að reyna að hefta útbreiðslu minkanna. Málið er litið mjög alvarlegum augum en yfirdýralæknir Mast sagði í gær að ef brotist hefði verið inn og dýrunum sleppt væru slíkar aðgerðir þess eðlis að valda fjölda dýra auknum þjáningum, meiðslum og dauða og eigandi búsins kallaði þetta hryðjuverk. Vísbendingar eru uppi um að sömu hafi verið að verki og stóðu að innbrotum í Reykjabú í Mosfellsdal í júní og í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí. Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands ræddi við okkur um þessar fregnir gærdagsins.
Miðflokkurinn birti um helgina myndband á samfélagsmiðlum með skilaboðum Ingibjargar Davíðsdóttur þingkonu flokksins. Í myndabandinu vísar hún til 25 ára reynslu sinnar í utanríkisþjónustunni, og varaði við aðildarviðræðum við ESB með deilitextanum „Ef þér er annt um öryggi og varnir Íslands, þá ert þú ekki að fara að segja já í ágúst.“ Heimildin vann sama dag frétt upp úr myndbandinu og málflutningi Ingibjargar undir yfirskriftinni: Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin og þetta vakti hörð viðbrögð. Ingibjörg segir í færslu á samfélagsmiðlum það „falsfrétt“, „óhróður“ og „upplýsingaóreiðu“ að hún vilji bera aðild Íslands að Evrópusambandinu undir Bandaríkin. En hvar liggur misskilningurinn? Ingibjörg kom til okkar.
Öll í einu heitir nýjasta framlag í útihátíðaflórunni um komandi verslunarmannahelgi en sú hátíð fer fram á Akureyri og er eins konar afbökun á hátíðinni Ein með öllu sem verður einnig á dagskrá þar nyrðra um helgina. Þeir sem standa að hátíðinni eða stórtónleikunum Öll í einu eru þeir Egill Einarsson, Steindi Jr. og Auðunn Blöndal sem mynda þríeykið FM 95BLÖ. Saman hafa þeir komið fram og flutt eigin lög á þjóðhátíð í Eyjum síðustu árin, héldu risatónleika í Laugardalshöll og núna verða þeir ásamt landsliði íslensks tónlistarfólks á Akureyrarvelli á laugardagskvöldið. Auðunn Blöndal heimsótti Fram undan og sagði okkur frá Öll í einu.