Fram undan

Ólögleg peptíð flæða inn til landsins, heimsmeistaramót í púsli, netverslanir með áfengi, skuggi yfir gleðigöngu í Berlín og verslunarmannahelgarveitingar

Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu er nýlokið en það er annað heimsmeistaramót fram undan, nefnilega heimsmeistaramót í púsluspilum sem fer fram á Spáni í september. Þar keppir fólk frá tugum landa um hver getur lagt hundrað púslbita hraðast. Við Íslendingar eigum fulltrúa í keppninni í ár en mæðginin Signý Gunnarsdóttir og Gunnar Hrafn Sveinsson leggja land undir fót og taka þátt. Þau kíktu til okkar og sögðu okkur frá æfingaferlinu og hvað kom til þau ákváðu skrá sig til leiks.

Notkun peptíða til bæta útlit hefur aukist gríðarlega hér á landi undanförnu líkt og hefur verið fjallað um. Peptíð eru keðjur af amínósýrum en efnið gengur kaupum og sölum, aðallega á samfélagsmiðlum, í útlöndum og hér heima. Tollgæslan sendi nýverið ólöglega peptíða, sem hún gerði upptæk, til greiningar. Lítið reyndist um virk lyfjaefni í peptíðunum en óhreinindi voru mikil. En hvaða áhrif getur það haft á heilsu fólks sprauta sig með þessum óhreinindum? Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands, var á línunni hjá okkur.

Skuggi lagðist yfir gleðigönguna í Berlín síðustu helgi þegar bíl var ekið á hóp fólks með þeim afleiðingum einn lést og sextáns manns slösuðust. Ódæðismaðurinn sem þar var verki steig einnig út úr bílnum eftir hafa ekið inn í þvöguna, réðst nærstöddum með sveðju og veitti nokkrum þeirra alvarlega áverka. Yfirvöld tala um hryðjuverkaárás hafi verið ræða. Stjórn Hinsegin daga hér á landi sendi hinsegin samfélaginu í Berlín og öllum aðstandendum fórnarlamba árásarinnar samúðar- og stuðningskveðjur í gær en Hinsegin dagar eru einmitt fram undan í Reykjavík í næstu viku. Við ræddum við Helgu Haraldsdóttur, formann Hinsegin daga um nýliðna atburði og hátíðarhöldin sem fram undan eru hér heima.

Frá árinu 2020 hefur netverslunum með áfengi fjölgað ört á Íslandi en í dag bjóða um tuttugu fyrirtæki áfengi til sölu til einstaklinga. Enn á hefur mikil umræða skapast um þessi mál. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á dögunum óskiljanlegt netsala með áfengi vaxi þegar dómur fallinn um hún ólögleg. Hann kallaði eftir því starfsemin yrði stöðvuð strax og ríkisstjórnin tali skýrt í málinu. Embætti landlæknis lét kanna aldurseftirlit með áfengi í gegnum netsölur í byrjun árs eftir hafa fengið fjölda ábendinga um eftirliti væri ábótavant og niðurstöðurnar sýndu það einnig. Sveinbjörn Kristjánsson, sérfræðingur í hegðunarbreytingum hjá Embætti landlæknis og doktor í lýðheilsuvísindum ræddi um áhrif þess leyfa netsölu með áfengi og hvernig eftirliti með þessum verslunum er háttað.

Fram undan er ein mesta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgin. Landsmenn flykkjast á útihátíðir, í útilegur eða á alla þá viðburði sem boðið er upp á um allt land um helgina. Áður en lagt er af stað skiptir auðvitað miklu máli undirbúa sig vel. Taka til réttu fötin og búnaðinn, ganga úr skugga um ferðamátinn klár og öruggur og svo er það sem skiptir marga mestu máli; hvað á borða og drekka? Ólafur Örn Steinunnar Ólafsson veitingamaður hefur marga fjöruna sopið þegar kemur undirbúningi hvers konar snakks og hressingar og hann gaf fáein heillaráð fyrir helgina.

Birt

29. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,