
Fram undan
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Það vakti mikla athygli í vor þegar Húrra Reykjavík lokaði öllum fataverslunum sínum. Þær höfðu verið í rekstri í 12 ár og voru með þeim vinsælustu hér á landi. Sindri Snær Jensson, annar stofnandi og eigandi Húrra, sagði í viðtali í Viðskiptablaðinu í apríl að allt hefði verið reynt til að halda áfram en að rekstrarumhverfið hefði versnað jafnt og þétt á undanförnum árum og það hafi orðið til þess að sjálfstæðum sérverslunum væri nærri ókleift að standa undir starfseminni. Í ferð okkar í Kringluna á dögunum sáum við einnig að óvenju mörg verslunarbil standa tóm. En hvað gerir rekstrarumhverfið svona erfitt? Þær Tinna Hemstock sem rekur skóbúðina Apríl á Garðatorgi og Karin Kristjana Hindborg eigandi snyrtivöruverslunarinnar Nola sem er í Ármúla komu til okkar og fóru yfir þessi mál en þær eru báðar reynslumiklar í verslunarrekstri.
Verðbólga mælist 5,3% í júlí, sem er aukning um 0,1 prósentustig milli mánaða samkvæmt verðólgumælingu hagstofunnar sem birtist fyrir helgi. Niðurstaðan er lítillega yfir spám bankanna sem gerðu allir ráð fyrir að ársverðbólga yrði óbreytt. Nú er talið alveg ljóst að forsenduákvæði kjarasamninga um að verðbólga mælist niður fyir 4,7 prósent í næsta mánuði muni ekki halda og líkur á að kjarasamningar verði endurskoðaðir í haust. En hvernig eru efnahagshorfurnar fram undan og hvað gerir peningastefnunefnd Seðlabankans þegar næsta stýrivaxtaákvörðun verður tekin? Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur hjá Íslandsbanka leit við hjá okkur.
Seðlabanki Evrópu kynnti í gær tíu nýjar hönnunartillögur að útgáfu nýrra Evruseðla. Seðlabankastjórinn mun sjálfur velja eina af tillögunum sem sigurvegara. Meginþema hönnunarinnar var tvíþætt, annars vegar að evrópsk menning væri í hávegum og hins vegar að fuglar og fljót yrðu fyrirferðamikil. Yfir 1200 tillögur bárust og valdi dómnefnd hönnunartillögurnar tíu í úrslit en íbúar í Evrópusambandinu geta greitt atkvæði um tillögurnar. Anton Jónas Illugason, grafískur hönnuður og formaður Félags íslenskra teiknara, kom til okkar og fór yfir hönnunartillögurnar.
Á síðustu árum hefur neysla á ýmis konar próteinvörum aukist verulega hér á landi og hillur verslana uppfullar af próteinbættum vörum hvers konar drykkjum, snakki og nammi svo fátt eitt sé nefnt. Þar að auki eru þessar vörur verulega fyrirferðarmiklar í auglýsingaherferðum. Markaðsherferðirnar minna okkur á að borða meiri prótein en eru þetta góðar vörur og hversu mikið prótein fæst úr neyslu þessara vara? Dögg Guðmundsdóttir klínískur næringarfræðingur hjá Nutriment fór yfir próteinneyslu og hvaða þarf að hafa í huga í þessum málum.

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.