Fram undan

Rjúfum mynstrið með Kvennaathvarfinu, Sveinn Waage á vegum úti, Lilja Ósk með Aumingja, mellu, syndara og heilagan anda og systkinin Halla og Egill Helgabörn í fréttum vikunnar.

Við skoðuðum helgina fram undan, hvernig verður ferðaveðrið og hvað er á seyði um landið. Hvar verður umferðin mest, hvaða bæjarhátíðir eru í gangi þessa helgina. Við beindum síðan sjónum okkar umferðinni, hvernig hefur hún verið í sumar og hefur eitthvað einkennt hana. sem gat svarað því er maður sem hefur ekið yfir landið þvert og endilangt, á fjórum dögum keyrði hann um Seyðisfjörð, Akureyri, Ísafjörð og Vík í Mýrdal. Geri aðrir betur. Þetta er hann Sveinn Waage sem ekið hefur um á rútu og leiðsagt glöðu ferðafólki um landið.

SKJÓL kallast sérhönnuð íslensk prjónauppskrift ægifögrum ullarpeysum sem við höfum séð fólk klæðast upp á síðkastið. Það er Kvennaathvarfið sem selur uppskriftirnar og með kaupum er hægt styrkja gott málefni, starfsemi Kvennaathvarfsins en um leið senda góð og heilleg skilaboð út til kvenna um þær skuli ekki standa einar. Linda Dröfn Gunnarsdóttir er framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins og sagði okkur frá Skjóli og átakinu Rjúfum mynstrið.

Við fengum gest í hús til segja okkur frá sumarlestri sínum en fyrir nokkru fengum við Kamillu Einarsdóttur bókavörð og rithöfund og er það Lilja Ósk Snorradóttir sem er meðeigandi framleiðslufyrirtækisins Pegasus og hefur starfað í kvikmyndabransanum í meira en tuttugu ár. Ekki nóg með það þá var Lilja gefa út sína fyrstu skáldsögu á dögunum, sem ber þann áhugaverða titil Aumingi, mella, syndari og heilagur andi en fyrir hafði Lilja gefið út sjálfsævisögulega bók sína sem heitir Heimsins besti dagur í helvíti.

Svo voru Fréttir vikunnar vitaskuld á sínum stað. Gestir okkar þessu sinni eru svo glettilega systkin og þrælskemmtileg systkin sem heita Halla og Egill. Halla er grafískur hönnuður mennt og starfar sem framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Egill er reynslumikill blaðamaður, fyrrum spjallþáttastjórnandi og umsjónarmaður hins vinsæla sjónvarpsþáttar Kiljunnar hér á RÚV. Egill og Halla Helgabörn.

Birt

24. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,