Fram undan

Stórfelldar breytingar Burnham á Bretlandi, Sólstrandargæjar snúa aftur, sex ráð inn í sumarfríið, haförn sækir í sig veðrið og brátt siglir Baldur yfir Breiðafjörð.

Síðustu vikur hafa viðmælendur deilt með okkur og hlustendum ýmsum heillaráðum þegar kemur ferðalögum sumarsins. Hvernig er rétt bera sig þegar haldið er af stað í útilegur eða fjallgöngur, hvað er vert hafa í nestiskörfunni og hvernig á maður haga sér í umferðinni? Þegar kemur náttúrunni þá er vitaskuld vert ganga um hana með virðingu, svo ekki talað um blessuðu dýrin. Þorkell Heiðarsson er formaður FÍN (Félags íslenskra náttúrufræðinga) og heimsótti Rás 2 í fyrrasumar með sín reglulegu Náttúruspjöll. Við spurðum Þorkel um stöðu hafarnarins á íslandi og sömuleiðis um blessuðu branduglurnar ... og eiruglur.

Það voraði snemma fyrir vestan, á Barðaströndinni og var það vel merkjanlegt á fjölgun farþega og bíla með ferjunni Baldri til og frá Brjánslæk. Tugir bíla fluttir fram og til baka og enn var bara byrjun júní. Sumarið komið óvenju snemma og bjartsýni í kortunum þegar Vestmannaeyjaferjan Herjólfur bilaði og því Baldur kallaður til aðstoðar. Ekki var vitað um hversu langt skeið Baldur yrði frá inn í sumarið og óvissan virðist enn við lýði. Þetta hefur Halldóra Ingibjörg Ragnarsdóttir bent á, meðal annars með skrifum í miðla og við tókum stöðuna með henni þegar hillir undir júlílok.

Það hafa orðið talsverðar vendingar í breskum stjórnmálum á síðustu misserum, þegar Keir Starmer sagði formlega af sér sem forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins og nýr forsætisráðherra settur formlega í embætti í upphafi vikunnar. Andy Burnham, heitir og fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins. Hann er sjöundi sem tekur við síðan Bretland yfirgaf Evrópusambandið og fjórði síðan Karl konungur tók við árið 2022. Það er því forvitnilegt fylgjast með áherslum Burnham og ljóst verkefni hans eru ærin. Salka Margrét Sigurðardóttir er stjórnmálafræðingur sem búið hefur í Lundúnum um skeið og unnið fyrir ýmis bresk ráðuneyti síðustu 11 ár og hún var á línunni.

Tónlistarhátíðin Bræðslan er á sínum stað um komandi helgi, laugardaginn 25. júlí á Borgarfirði eystri og þar munu meðal annarra koma þau Ásgeir Trausti, tónlistarkonan Raven, Land og synir, Skandall, Greifarnir og síðast en ekki síst dúettinn Sólstrandargæjarnir sem skutust upp á stjörnuhiminn um miðjan tíunda áratug síðustu aldar með laginu Rangur maður, lagi sem er orðin sígild perla og eflaust sungin á tjaldsvæðum landsins þetta sumarið eins og frá því það kom út. Það stendur mikið til hjá öðrum forsprakka sveitarinnar, Jónasi Sigurðssyni en fyrir utan þessa endurkomu Sólstrandargæjanna þá er hann undirbúa eins konar hæglætishátíð um verslunarmannahelgina í Hveragerði.

„Það er auðvelt finna fyrir pressu þegar gera skal sumarið „fullkomið“ fyrir börnin. En flest börn þurfa ekki endalausa dagskrá eða skemmtun. Þau þurfa öryggi, tengsl og smá rútínu jafnvel í sumarfríinu,“ þetta segir Mekkín Barkardóttir, ung þriggja barna móðir og hjúkrunarfræðingur úr ungbarnavernd í Stokkhólmi sem deilir gjarnan heillaráðum á samfélagsmiðlum, m.a. Instagram en við hnutum einmitt um sex ráð þar sem gætu gert sumarfrísdaga barnafjölskyldna bærilegri. Við heyrðum í Mekkín í þættinum.

Birt

22. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,