Fram undan

Aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, tungumál unga fólksins, úrslit á HM og bakarí á Húsavík á ný

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, birti í gær frumvarpsáform í samráðsgátt stjórnvalda um samfélagsmiðlabann fyrir börn fjórtán ára og yngri. Ráðherrann fylgir þannig fordæmi ríkja eins og Ástralíu og Bretlands, sem hafa þegar sett á slíkt aldurstakmark. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir með þessum hætti verið bregðast við vaxandi hættu sem börnum og ungmennum stafar af ótímabærri, óheftri og áráttukenndri notkun samfélagsmiðla. Einn af þeim sem hefur lengi verið á þessari skoðun er Guðmundur Fylkisson lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í leita týndum börnum í fjölda ára og hefur vakið athygli á málefnum barna með fjölþættan vanda. Guðmundur kom til okkar.

Glaza, LU, moms, mogga einhvern. Þetta eru allt dæmi um orðaforða unga fólksins í dag sem við sem eldri erum skiljum ekki alltaf. Tungumál unga fólksins einkennist af hröðum breytingum, skapandi orðanotkun, slettum og miklum áhrifum frá alþjóðlegri tækni- og tölvuleikjamenningu og er sífellt þróast. Við ræddum um tungumál unga fólksins við Eirík Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslenskri málfræði og Söndru H. Smáradóttur aðstoðarforstöðukonu í félagsmiðstöð.

er orðið ljóst hvaða þjóðir mætast í úrslitum á Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu sem hófst fyrir um mánuði síðan þegar 48 þjóðir voru skráðar til leiks. Það eru Spánn og Argentína sem mætast í úrslitaleiknum á sunnudag og á laugardag verður keppt um bronsið þegar Frakkar og Englendingar mætast. Það eru 102 leikir baki á þessu móti og tveir eftir. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður fór með okkur yfir það sem staðið hefur upp úr á mótinu og það sem fram undan er um helgina.

Húsvíkingar hoppuðu hæð sína fyrir helgi því geta þeir sótt sér nýbakað brauð og bakkelsi í heimabænum á ný. Bakaríið Gilið hefur opnað dyr sínar en ekki hefur verið starfandi bakarí í bænum frá því Heimabakarí hætti rekstri fyrir verða tveimur árum. Á bak við bakaríið standa heimamenn, hjónin Birgitta Bjarney Svavarsdóttir og Geir Ívarsson. Birgitta var á línunni hjá okkur í upphafi þáttar.

Birt

16. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,