Nú stendur yfir götusýning um sýklalyfjónæmi í Austurstræti í Reykjavík. Sýningin er á vegum embætti Landlæknis en er farandssýyning og hefur verið sett upp víða í Evrópu. Sýningin samanstendur af myndskreytingum listamanna frá 30 Evrópuríkjum, en Hugleikur Dagsson er fulltrúi Íslands. Anna Margrét Halldórsdóttir yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá Landlækni sagði okkur frá sýningunni.
Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum, bæði í fyrirtæki og heimahús. Meðal annars var brotist inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið úr versluninni. Þá var einnig brotist inn í eldhús veitingastaðarins Ramen Momo en eigengur þar sögðu frá því í gær að þau hafi ákveðið að hætta að taka við reiðufé vegna innbrotahrinu sem nú gengur yfir. Einn er í gæsluvarðhaldi í tengslum við innbrotin. Ásmundur Rúnar Gylfason, sem er aðstoðar-yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ræddi við okkur um stöðu þessara mála, viðbrögð lögreglu og forvarnir við innbrotum.
Laust eftir síðustu aldamót sá íslenskur bókmenntafræðingur fyrir sér að líkamsleifarnar sem hvíla í gröf Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum yrðu sendar til DNA-greiningar á danskri rannsóknarstofu. Hann samdi ótímabæra skýrslu til að tryggja að erfðafræðingurinn, sem annast myndi rannsóknina, gæti glöggvað sig á viðfangsefninu. Að baki bjó djúpstæð löngun höfundar til að fá botn í íslenska þjóðarsál. Skýrslan kom út á bók skráð sem skáldfræðirit árið 2003 og kallast Ferðalok. Nú er ekki ólíklegt að spádómur höfundar sé að raungerast í stóra beinamálinu og höfundur bókarinnar, Jón Karl Helgason sagði okkur frá endurútgáfu bókarinnar.
Hvaða áhrif gæti upptaka evru haft á íslenskan vinnumarkað og arðsemi fyrirtækja? Þessari spurningu svarar Sveinn Agnarsson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, í grein sem birtist í byrjun vikunnar á Evrópuvefnum. Þar fer hann yfir hver hagvöxtur er á Íslandi miðað við evrusvæðið og hvaða áhrif upptaka evru myndi hafa á hagvöxt. Sveinn kom til okkar og fer yfir þessi mál.
Ekkert lát er á endalausum kvörtunum sem berast Neytendasamtökunum er snerta bílastæði og gjöldum þeim tengdum. Helst er kvartað yfir vangreiðslugjöldum en upplýsingaóreiða, villandi og jafnvel rangar upplýsingar, hafa leitt til þess að fjöldi fólks er rukkaður um vangreiðslugjöld að ósekju. Reynsla Netendasamtakanna er þó sá að neytendur hafi almennt ekkert á móti því að greiða sanngjarnt verð fyrir bílastæði en þar er flækjustigið mikið. Breki Karlsson formaður Netendasamtakanna kom til okkar og ræddi innheimtu þessara vangreiðslugjalda.
Franskir dagar á Fáskrúðsfirði halda upp á 30 ára afmæli í ár og blása heldur betur í herlúðra. Franskir dagar eru fjölskylduvæn sumarhátíð, með frönsku ívafi en Fáskrúðsfjörður er stundum kallaður franski bærinn og hefur mikla tengingu til Frakklands og þá helst sjávarbyggðanna á norðurströndinni. Til að undirstrika þessi nánu tengsl má nefna að nær öll götuskiltin á Fáskrúðsfirði eru bæði á íslensku og frönsku. En hvað verður í boði og hvernig hefur undirbúningi verið háttað, Daníel Geir Moritz svaraði þeim spurningum og fleirum í Fram undan.