Fram undan

Atvinnuleysi í byggingariðnaði, mataræði Erling Haaland, símabann í skólum, kvikmyndahátíð á Hornströndum og staða tónlistarútgáfu

Um síðustu mánaðamót voru hátt í tólf hundruð atvinnulausir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta er atvinnugrein þar sem atvinnuleysi mælist þriðja mest. Atvinnustig í greininni hefur verið hátt undanfarin ár en eru blikur á lofti. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins kom til okkar.

Norski fótboltamaðurinn Erling Haaland er vinsælasti maður veraldar um þessar mundir. Hann hefur unnið hug og hjörtu heimsbyggðarinnar með frammistöðu sinni á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu. Vinsældir hans byggjast ekki aðeins á því hvernig hann stendur sig á vellinum heldur einnig persónuleika hans og stíl. En hvað borðar norska fótboltastjarnan? Albert Eiríksson matreiðslumaður hefur kynnt sér það og hann var á línunni hjá okkur.

Skiptar skoðanir eru á fyrirhuguðu símabanni í grunnskólum. Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnti til umsagnar drög reglugerð um notkun síma og snjalltækja í síðasta mánuði. Samkvæmt drögunum verður notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla óheimil á skólatíma. Heimili og skóli, landssamtök foreldra fagna reglugerðinni og hrósa Ingu Sæland barna- og menntamálaráðherra fyrir stíga þetta skref af festu. Kristín Ólöf Grétarsdóttir hjá Heimili og skóla var á línunni hjá okkur.

Á næstu dögum fer fram áhugaverð kvikmyndahátíð í friðlandinu á Hornströndum sem hlýtur verða teljast ein afskekktasta kvikmyndahátíð heims. Hornstrandir Film Festival kallast hátíðin og haldin fjórða árið í röð. Bjarney Lúðvíksdóttir er ein skipuleggjenda og við heyrðum í henni á leið hennar vestur.

Við fengum framkvæmdastjóra STEFs, hana Guðrúnu Björk Bjarnadóttur, til okkar í gær en hún sagði okkur frá heimsókn fulltrúa íslenska tónlistarbransans til streymisveitunnar Spotify fyrr í vor og hversu lítinn vilja væri finna þar til gera íslenska tónlist sýnilegri Íslendingum á streymisveitunni. Aðeins fimmtungur hlustunar Íslendinga á veitunni er á innlenda tónlist. Við héldum áfram forvitnast um íslenska tónlistarútgáfu og fengum Jóhann Ágúst Jóhannsson plötuútgefanda og verslunarmann í Reykjavik Record Shop til okkar.

Birt

14. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,