Fram undan

Fyrsta lag Purrks Pillnikk í fjölmörg ár, falsaðir staðlar á innfluttum vörum, skaðabótakröfur í Samherjamáli, ferðaveðrið og fréttir vikunnar

Blíðskaparveðri er spáð á Austurlandi um helgina en einhverri vætu vestantil á landinu, við fórum yfir ferðaveðrið með Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi og heyrðum einnig í Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðarskógarverði í Hallormsstaðaskógi en tjaldstæðin þar troðfylltust undir lok vikunnar og þá helst af íslensku ferðafólki sem elti veðrið.

Hljómsveitin Purrkur Pillnikk sem starfaði á upphafsárum níunda áratugar síðustu aldar hefur kvatt sér hljóðs á og gefið út sitt fyrsta lag í 44 ár. Hljómsveitin er skipuð sömu einstaklingum og í upphafi, þeim Einari Erni Benediktssyni, söngvara, Braga Ólafssyni sem leikur á bassa, Friðriki Erlingssyni gítarleikara en þó hafa orðið stólaskipti á trommusettinu því Sigtryggur Baldursson tók við því hásæti af Ásgeiri Bragasyni sem lést fyrir fáeinum árum. Einar Örn fagnar þessum tímamótum með því sýna myndlist sína á hátíðinni ListaVestrið á Flateyri um helgina og fær félaga sína í Purrkinum til sín vestur þar sem þeir troða upp á Vagninum. Við heyrðum í Einari Erni.

Yfir þúsund manns sem störfuðu í sjávarútvegi í Namibíu hafa lagt fram skaðabótakröfur á hendur Samherja á Íslandi. Þeir segja meintar mútugreiðslur og spillingu fyrirtækisins hafa valdið þeim tjóni vegna atvinnu- og tekjumissis. Helgi Seljan blaðamaður hefur rannsakað þetta mál síðustu vikur og kom til okkar.

Í vikunni bárust fregnir af ólöglegum smokkum í umferð í Evrópu sem bárust frá Kína en smokkarnir báru merki „þekkts vörumerkis“ og höfðu verið merktir sem leikföng til komast hjá nánari skoðun. Sömuleiðis stöðvaði kínverska sölusíðan Temu sölu á nokkrum gerðum af sólarvörn sem veita alls ekki þá vörn fyrir geislum sólarinnar sem lofað er á umbúðum. Helga Sigrún Harðardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands benti einnig á í færslu á samfélagsmiðlum hingað til lands hafi ratað svokallaður hrotugómur, sem er lækningatæki, en framleiðandinn hafi laumað honum inn á markað með því gefa upp þrjá leikfangastaðla. Helga Sigrún kom til okkar og ræddi það flæði vara sem rata til landsins og geta beinlínis verið hættulegar.

Við fórum sjálfsögðu yfir fréttir vikunnar líkt í enda þáttar, eins og við gerum alltaf á föstudögum. Þema þennan morguninn var gestir okkar bera eiginnafn sem byrjar á S og millinafn sem byrjar á A en það voru þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Sveinn Andri Sveinsson lögmaður sem mættu til okkar og fóru yfir það helsta í vikunni sem leið.

Birt

10. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,