Fram undan

Matvælaverð, vændisaðgerð á Íslandi, skolsalerni, sumarlestur, matvælaöryggi og sumarnestið

Svokölluð skolsalerni njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi. Mörg okkar hafa eflaust komist í kynni við slík salerni á ferðalagi í Tyrklandi eða Japan. Hátæknisalerni eru með upphituðum setum, innbyggðum skolbúnaði og stillanlegum hita og vatnsþrýstingi, sjálfvirkri lyktareyðingu og loftþurrkun. Núna hefur sala á slíkum salernum tekið kipp hér á landi. Arnar Árnason, framkvæmdastjóri Tengis þekkir þessi mál vel og hann leit við hjá okkur í byrjun þáttar.

Íslenska lögreglan tók þátt í risavaxinni alþjóðlegri lögregluaðgerð undir hetinu Global Chain eða Heimskeðjan í byrjun síðasta mánaðar. Fimm vændiskaupendur voru handteknir í lögregluaðgerð í Reykjavík og afskipti voru höfð af 16 konum, sem sumar eru taldar hafa verið gerðar út í vændi af kínverskum glæpasamtökum. Allt var þetta hluti af samræmdum aðgerðum í 59 löndum víðs vegar um heim. Stígur Helgason fréttamaður hefur fylgst með þessu máli og hann fór yfir aðgerðina í Fram undan.

Hvað er fólk lesa í sumar? Kamilla Einarsdóttir rithöfundur og bókavörður fylgist vel með bókaútgáfu og sagði okkur frá því hvað hún er lesa.

Er matvælaverð á Íslandi það hæsta eða lægsta í Evrópu? Um þetta er deilt og síðustu vikur hafa birst greinar, annars vegar með yfirskriftinni matarkarfan 40 prósent ódýrari á Íslandi og hins vegar Íslendingar greiða 55% hærra verð fyrir matvöru en íbúar ESB.

En hvað er rétt og út frá hvaða forsendum eru þessu mál skoðuð? Þau Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og ráðgjafi hjá Kontext ehf. og Eyrún Magnúsdóttir blaðamaður á Gímaldinu fóru yfir þessi mál með okkur.

Á Facebook finna athyglisverða síðu sem kallast Matvælaöryggi á mannamáli. Þar deilir Radek B. Dudziak, sem starfar sem heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, heilmiklum fróðleik um matvælaöryggi, örverufræði og tengd vísindi. Hann útskýrir og tekur dæmi um matvælaöryggi á skýran og aðgengilegan hátt, ræðir um borðtuskur sem við geymum við eldhúsvaskinn, hvort við megum setja heita matarafganga beint í ísskápinn og fleira, auk þess þar sem hann svarar spurningum fylgjenda. Við sprittuðum símtólið og hringdum í Radek.

Júlí er væntanlega mesti ferðamánuður ársins. Landsmenn flykkjast í útilegur víða um land og auðvitað mörgu huga. Tobba Marinósdóttir leggur aldrei af stað án þess undirbúa sig og skipuleggja nasl og hún ráðlagði okkur heilt um þessi mál.

Birt

8. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,