Fram undan

Samskipti kennara og ráðherra, sumarið í garðinum, nei við ESB, flash-mob og jöklar hopa

Jöklar á Íslandi halda áfram hörfa og rýrna. Á árunum 2012 til 2020 var talað um tímabil hægari rýrnunar en því er lokið og íslenskir jöklar tapa aftur massa jafn ört og á tímabilinu 1995–2011. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju fréttabréfi á vegum á verkefnisins Hörfandi jöklar lifandi kennslustofa í loftslagsbreytingum. Meðal þeirra sem taka þátt í verkefninu er Hrafnhildur Hannesdóttir jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands og hún kom til okkar í Fram undan.

Inga Sæland tók við keflinu sem mennta- og barnamálaráðherra í byrjun árs. Samband ráðherrans við kennaraforystuna hefur verið stormasamt og nokkrum sinnum hefur slegið í brýnu. Skýrast kom það fram á kennaraþingi í apríl þegar Inga kynnti breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum sem kennarar voru ósáttir við. Þá hafa kennarar einnig lýst óánægju um fyrirhugað símabann í skólum og talað um það skorti samráð við þá um breytingar sem fyrirhugaðar eru í skólakerfinu. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandins ræddi við okkur um stöðuna.

Hreyfingin Áfram Ísland, vettvangur fólks sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan ESB, var formlega stofnuð í gær. Stofnfundur hreyfingarinnar var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í gær. Áfram íslands lýsir sér sem hreyfingu fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags. Samnefnarinn íslenska þjóðin fullfær um sækja fram og takast á við áskoranir sem blasa við hverju sinni. Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum í gær er Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og hún var gestur okkar upp úr kl. 08.00.

Flash mob er þegar hópur fólks safnast saman fyrirvaralaust á almannafæri og framkvæmir óvæntan gjörning (t.d. dans eða söng) og hverfur síðan jafn skyndilega og hann birtist. Þær Marta Ákadóttir sviðshöfundur og María Kristín Jóhannsdóttir dansari standa fyrir gjörningi sem þessum í Smáralind á föstudaginn. Þær útskýrðu fyrir okkur hvað fer fram og um hvað þetta snýst allt saman.

Mörg okkar nýta eflaust sumarfrísdagana til þess dytta í garðinum og þar er jafnan mörgu hyggja. En hver eru garðverkin sumri? Vilmundur Hansen sem er garðyrkju- og grasafræðingur getur án alls vafa svarað þeim spurningum en hann hefur í árafjöld miðlað þekkingu sinni í bókum og fjölmiðlum og svaraði spurningum okkar hér í Fram undan og réð okkur heilt.

Birt

7. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,