Fram undan

Eldsneytisverð á Íslandi, umræður um ESB, umferðarhelgin, uppistand og fréttir vikunnar.

Við byrjuðum á tala um eldsneytisverð á Íslandi. Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birti í gær kemur fram í aðdraganda þess kílómetragjald var tekið upp hafi álagning á eldsneyti hækkað í samanburði við önnur Evrópulönd. Álagning á bæði díselolíu og bensín hefur hækkað mikið frá 2022. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda kom til okkar.

Á Akureyri stendur yfir Listasumar, sem er árlegur menningarviðburður drekkhlaðinn hvers konar viðburðum, tónleikum, listasýningum, gjörningum og ýmsu húllum-hæi um allan bæ. Og í dag, föstudag, er stór uppistandsdagur. Með yfirskriftinni „Á þetta vera fyndið?“ hefur hópur heimafólks tekið hljóðnema í hönd og boðið gestum upp á hlæja saman lífinu, hversdagsleikanum, samböndum, samfélaginu síðustu mánuði og í þriðja sinn í kvöld. Sjúkraþjálfarinn Þórhallur Guðmundsson og Snæfríður Ingadóttir blaða- og leiðsögukona verða meðal uppistandara í kvöld og þau mættu í hljóðver okkar á Akureyri.

Hvað er í gangi um helgina? Hvert er fólk fara og hvað á fólk hafa í huga í umferðinni? Við rennum yfir það helsta sem er um vera um helgina og fáum til okkar Árna Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjón lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Við ætlum snúa okkur þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildaviðræður Íslands Evrópusambandinu sem verður 29. ágúst. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði var gestur okkar. Hann hefur lengi verið já-megin, skrifaði sína fyrstu grein um mikilvægi þess Íslendingar myndu ganga í Evrópusambandið árið 1987 og hefur verið óþreytandi síðan skrifa og fjalla um þetta málefni. Hann skrifaði nýlega grein undir yfirskrifinni Stöndum saman þar sem hann hvetur landsmenn til líta á þjóðarhag fremur en svæðisbunda hagsmuni þegar það kemur atkvæðagreiðslunni. Við fórum með honum yfir hvers vegna hann ætlar segja í ágúst. Í næstu viku fáum við svo heyra í fólki sem ætlar segja nei.

Og við förum sjálfsögðu yfir fréttir vikunnar. Það er þema hjá okkur í dag fyrrum Rúvarar sem hafa gerst upplýsingafulltrúar. Þau Freyr Gígja Gunnarsson upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins og Hafdís Helga Helgadóttir upplýsingafulltrúi Samorku mættu og ræddu m.a. hvalveiðar, stóra kókaínmálið og HM í knattspyrnu.

Birt

3. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,