Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Reynir og tvíburarnir
Reynir hitti dætur sínar í fyrsta skipti í Leifsstöð, en voru þær einu sinni systur?
Hreindís, Hulda og tilhlaupið
Hulda og Hreindís voru bestu vinkonur en þær langaði báðar að vera meira. Það var hinsvegar svolítið sem flæktist fyrir.
Björn Orri og fótboltadraumurinn
Það virtist skrifað í stjörnurnar að hann yrði atvinnumaður í knattspyrnu. Þegar boltinn fór að rúlla, tók hann þó aðra stefnu en búist var við.
Unnur og ástarbréfin
Þegar Unnur lést erfði tengdadóttir hennar eldheit ástarbréf frá dönskum herramanni.
Fanney og feðrunin
Fanney hélt að hún væri með krabbamein en það reyndist sem betur fer rangt. Hún var ólétt! En hver var pabbinn?
Valentínusarþáttur: #Regnus
Regn ætlaði aldrei að fara í fjarsamband. Helst ætlaði hán hreint ekki að byrja með sís-karlmanni aftur. En svo birtist Færeyingur á Twitter.
Aukasaga: Sagan af Gabríel
Árið 2019 gerði Eva Skaarpas það sem ekkert foreldri ætti nokkurn tímann að þurfa að gera. Hún ritaði minningargrein um son sinn Gabríel.
Aukasaga: Kynlífsdúkkan sem hvarf
Sumar kynlífsdúkkur eru svo raunverulegar að mörgum þykir nóg um. En hvað segja þessar eftirmyndir af kvenlíkömum okkur um framtíðina?
Aukasaga: Þegar Sunnefa var dæmd til dauða
Sunnefa Jónsdóttir er nafn sem margir þekkja en saga þessarar ólánsömu konu sem var í tvígang dæmd til dauða fyrir meinta blóðskömm hefur oft orðið skáldum að yrkisefni.
Miriam og endurfundirnir
Miriam var ekki hjá pabba sínum þegar hann dó en hún var á æskuslóðum hans. Og æska hans hélt áfram að toga í hana.
Eiríkur og sveitarómantíkin
Eiríkur ólst upp í sveit á tíma sem virðist mun fjarlægari en hann er í raun; tíma þar sem fregnir af fæðingu systur berast í gegnum sveitasímann.
Edda Stephen og útskriftarferðin
Augu þeirra mættust á norrænni krá á Spáni, mitt í hópi skandínavískra handboltastráka og Verzló skvísa í útskrifarferð. Þetta myndi aldrei virka.
Fanney, Pétur og strætókonan
Þau áttu leyndarmál sem Fanney vildi engum segja en Pétur iðaði í skinninu. Svo fór hann í strætó.
Reyn og kyngervið
Á öðru ári í framhaldsskóla átti hópur vina samræður þar sem rædd var sú staðreynd lífsins að flest fólk laðast kynferðislega að öðru fólki. Reyn kom af fjöllum.
Valur og Júlía Sesar
Valur heillaðist samstundis af Júlíu en sambandið fór hægt af stað, fram og til baka yfir Atlantshafið.
Stikla: Ástarsögur 3
Sumarið er tíminn til að hlusta á fleiri Ástarsögur. Þriðja þáttaröðin hefst laugardaginn 3. júlí.
Aukasaga: Þegar Rakel kom út úr skápnum
Skrefin út úr skápnum reyndust listakonunni Rakel Tomas erfið og komu fjölskyldu hennar mikið á óvart, ekki síst þáttastjórnanda Ástarsagna, Önnu Marsibil.
Aukasaga: Að elska Filipeyska konu
Sveinn Snorri Sveinsson kynntist stóru ástinni í lífi sínu, Lornu M. Sveinsson á netinu og flutti til Filipseyja til að geta gifst henni. Nú eru þau búsett á Egilstöðum og Sveinn hefur…
Aukasaga: Kófviskubitið
Bjarni Líndal var á meðal fyrstu Íslendinganna sem smituðust af Covid-19. Hann veiktist illa en lifði veiruna af. Það gerði konan hans hinsvegar ekki.
Nafnlausa konan og ástarsvikin
Hún þráði rómantík og ástúð og taldi sig hafa fundið hana, en ástin var ekki öll þar sem hún var séð.
Andrea og ástareyjan
Hin norsk/íslenska Andrea var algjör tossi í ástum þar til hún skráði sig í raunveruleikaþáttinn Love Island.
Bergþóra og bannaði kötturinn
Þegar eiginmaður Bergþóru veiktist af krabbameini sá hún bara einn kost í stöðunni. Þau skyldu eignast kött.
Grétar og hafið
Sjómennskan er ekkert grín. Það veit Grétar sem hefur ýmsa fjöruna sopið á sinni sjómannsævi.
Una og hlaupaskórnir
Hún stóð á tímamótum í lífi sínu. Þá er gott að eiga góða skó.
Glódís, Steinþór og jólakæró
Þeim fannst hugmyndin um „jólakæró“ fáránleg en svo römbuðu þau á hvort annað á Tinder.
Stikla: Ástarsögur 2
Viltu heyra fleiri Ástarsögur?
Aukasaga: Tvær miðaldra konur
Það hefur sína kosti að vera kona, sérstaklega þegar sænska lögreglan er annars vegar.
Aukasaga: Búum til börn
Við eyðum mörg hver mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir á fyrri hluta fullorðinsáranna. Þegar upp er staðið þarf oft enn meiri orku í að láta af þeim verða.
Aukasaga: Bréf til Láru
Páll hefur elskað Láru í meira en 60 ár en nú fær hann ekki að hitta hana lengur. Þess vegna, sendir hann henni bréf.
Aukasaga: Brúðkaup í kófi
Hildur og Elliot voru að undirbúa draumabrúðkaupið. Svo kom heimsfararaldur.
Guðrún og ráðhúsmótmælin
Ráðhúsið sem fyrirhugað var að reisa við tjörnina í Reykjavík yrði algjörlega úr takti við nærumhverfi sitt og byggingu þess varð að stöðva. Svo mikið vissi Guðrún. Það sem hún vissi…
Árni Grétar og vinahólfið
Árni Grétar og Leifur höfðu alið mannin á sitthvorum enda sama vinahópsins í meira en áratug. Svo fóru þeir í brúðkaup.
Pétur og ítalska ástarjátningin
Þegar Pétur sneri aftur heim til Íslands eftir nám á Ítalíu uppgötvaði hann að eitthvað vantaði. Hann sneri aftur til að finna hana.
Birna Hrönn og eltingaleikurinn
Birna horfði mikið á Law and Order þegar hún var ung og elskaði leikkonuna Marisku Hargitay. Þegar hún eygði tækifæri á að hitta átrúnaðargoðið sitt, mörgum árum síðar, lagði hún allt…
Atli, Ásrún og „kynlífsmyndbandið“
Listamaðurinn Ragnar Kjartansson bauð Atla og Ásrúnu í mat á Snaps. Þau komust ekki í aðalréttinn en mættu samt í desert. Þegar þau gengu út seinna um kvöldið voru þau búin að ákveða…
Anna Lísa og Örlygur
Viku eftir 20 vikna sónar fékk Anna Lísa verki. Svona eins og slæma túrverki. En hún er samt enn þá mamma Örlygs.
Ísold og líkaminn sem má vera til
Ísold er ekki „bara“ Ísold. Ísold er listaverk. Og eftir að Ísold hitti Kendall Jenner tók hún ákvörðun um að verða atvinnufyrirsæta.
Gunnar Hörður og skátamótið
Það tók Gunnar Hörð ófá MSN samtöl, innbrot í sundlaug og fleiri skátamót en hægt er að telja að sjá það sem var fyrir framan nefið á honum allan tímann.
Valgeir og húsið sem myglaði
Hvað ef Valgeir hefði ekki flutt heim til foreldra sinna? Hvað ef hann hefði verið sofnaður? Hvað ef hann hefði ekki staðist álagið? Og hvað ef hann hefði verið hjá bróður sínum hina…
Anna og tilraunastarfsemin
Anna var yfir sig ástfangin af fyrsta kærastanum sínum en hún var eiginlega of hamingjusöm of snemma. Gæti hún verið að missa af einhverju? Kannski... stelpum?
,