19:20
PartyZone - Undir diskókúlunni
Party Zone Undir diskókúlunni 15. ágúst

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.

Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.

Við ferðumst á milli tímabila þar sem dansgólfin voru full og allt var tryllt undir snúandi diskókúlu.

Diskótvenna, Frímínútur þar sem þáttarstjórnendur handvelja dansbombur fortíðar, dagskrárliðurinn "Dansárið er" að þessu sinni er árið 2000.

Síðan fáum við Party Zone múmíur og vel hristan kokteill kvöldsins. Aðalamálið er að spila dúndrandi danstónlist frá árabilinu 1976 til 2015 sem vekur upp minningar.

Umsjón sem fyrr: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 40 mín.
,