09:03
Fram og til baka
Töðugjöld á Hellu og hátíðir um land allt

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Fram og til baka tyllti niður fæti á Töðugjöldum á Hellum í þætti dagsins en Felix hitti gesti og gangandi í Íþróttahúsinu þar sem samfélaginu var boðið í morgunmat í tilefni af hátíðinni. Hafdís Sigurðardóttir Söring og Eiríkur V Sigurðsson settust hjá honum í spjall. Við heyrðum líka í Unni Birnu Bassadóttur sem tekur þátt í Blómstrandi dögum í Hveragerði og Nanna Guðrún hringdi í Kára Viðarsson á Hellissandi en þar stendur yfir mikil sólmyrkvahátíð. Að lokum skoðuðu umsjónarmenn kvikmyndir sumarsins og hámhorf haustsins með kvikmyndablaðamanninum Oddi Ævari Gunnarssyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 3 klst. 17 mín.
,