12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 15. ágúst 2026

Útvarpsfréttir.

Ákvörðun menntamálaráðherra að breyta einkunnagjöf í grunnskólum skömmu fyrir upphaf skólaárs er eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þetta segir formaður Félags grunnskólakennara. Þá hafi ekkert samráð verið haft við kennara.

Forseti Bandaríkjanna fullyrðir að þegar sigur næst gegn Íran verði Hormússund yfirráðaræði Bandaríkjanna.

Nærri fjörutíu eru látin eftir að jarðskjálfti, 7,7 að stærð, varð í Indónesíu í gærkvöld. Byggingar urðu fyrir skemmdum og þúsundir hafa yfirgefið heimili sín.

Nýja vatnslögnin kom í land í Vestmanneyjum í nótt. Það tekur tvær vikur að kanna hvort hún geti sinnt hlutverki sínu eftir að skemmdir urðu á henni síðustu helgi.

Skógareldar geisa enn víða í Evrópu og miklir vindar gera slökkvistarf erfitt. Þúsundir hafa neyðst til að flýja heimili sín.

Farþegar hafa þurft að bíða upp undir 45 mínútur í öryggisleitinni á Keflavíkurflugvelli í morgun og langar raðir hafa myndast.

Skítugasta keppnishlaup ársins fer nú fram í Mosfellsbæ, drulluhlaupið svokallaða. Yfir þúsund manns þreyta kappi og hafa aldrei verið fleiri.

Hæfileikakeppni gæludýra, tækjasýning, listasmiðja og tjöðugjalda-markaður er meðal þess sem er í boði á Töðugjöldum Rangárþings ytra um helgina.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,