Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Þrátt fyrir slæma kosningu fékk Mette Frederiksen í gær umboð konungs til að mynda nýja ríkisstjórn í Danmörku. Bogi Ágústsson og Hallgrímur Indriðason fóru yfir kosningaúrslitin og rýndu í stöðuna. Bogi ræddi líka um kosningar í Færeyjum í dag og nýútkomna skýrslu, State of the Nordic Region.
Við fylgdumst vel með veðri og færð. Snemma í þættinum var rætt við Kristínu Hermannsdóttur veðurfræðing, og svo var slegið á þráðinn til Einars Á. Sæmundsen þjóðgarðsvarðar Þingvallaþjóðgarðar. Þar verður líklega ekki sála á ferli fyrri part dags – vegirnir eru meira og minna lokaðir - en Einar býr í Biskupstungum.
Svo fjölluðum við stuttlega um Helga Helgason tónskáld og smið. Hann var stórmerkilegur maður og stofnaði meðal annars fyrstu íslensku hljómsveitina. Við heyrðum líka lögin hans Öxar við ána og Eyjafjörð.
Tónlist:
Guðrið Hansdóttir og Eivör Pálsdóttir - Træ.
Öll syngjandi kórbörn í Kársnesskóla - Vikivaki.
Stórsveit Reykjavíkur - Fjallkonan.
Karl Olgeirsson - Öxar við ána.
Liljukórinn - Eyjafjörður.
Lúðrasveit Reykjavíkur - Gardenparty.

07:30

08:30
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Kristín hefur unnið lengi við líknar og lífslokahjúkrun, en hún stofnaði Vonarbrú og segir frá því öllu, en félagið styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gasa.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Og þótt veðrið sé með versta móti og viðvaranir eins appelsínugular og þær verða, þá erum við í Mannlega þættinum farin að huga að vorinu sem er rétt handan við hornið. Það er nefnilega kominn tími til að byrja undirbúning fyrir garðyrkjustörf vorsins. Nú er til dæmis gráupplagt að byrja að sá fyrir alls kyns matjurtum og jafnvel sumarblómum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hugsar um fátt annað þessa dagana. Við heyrðum í henni.
Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum og alla þá sem hafa gengið í gegnum andlegar áskoranir og einnig aðstandendur þeirra. Notendur í Hugarafli móta eigin endurhæfingu og veita öðrum stuðning sem eru í svipuðu ferli. Kjarni starfsins er þekking og reynsla notenda og fagfólks. Við kíktum við hjá samtökunum sem eru staðsett í Síðumúla 6 og ræddum við Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra.
Og svo eru það Mannlegu samskiptin með Valdimar Þór Svavarssyni ráðgjafa hjá Fyrsta skrefinu og stjórnandi Meðvirknipodcastsins, í ó
veðrinu í dag töluðum við um nokkuð sem kallast höfnunarótti.
Tónlist í þættinum í dag:
Haglél/Mugison(Mugison)
Þitt bros/GDRN og Tómas R Einarsson(GDRN og Tómas R Einarsson)
Vetur/Egill Ólafsson(Egill Ólafsson)
MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAGUR 26.MARS 2026
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Vonskuveður er á stórum hluta landsins og gul og appelsínugul viðvörun í gildi vegna suðaustan storms og ofankomu. Skólahald er takmarkað og fólk var hvatt til þess að halda sig heima.
Vegir hafa ýmist verið lokaðir eða á óvissustigi og flugi frestað fram yfir hádegi. Fjöldahjálpastöðvar voru opnaðar í Vogum og í Reykjanesbæ.
Nokkur veiðiskip lóna upp í veðrið út af Reykjanesi, hafa tekið upp veiðarfæri og bíða eftir að lægi. Stýrimaðurinn á Guðmundi í Nesi segir að það væri kæruleysi að fara út á dekk
Verðbólga er 5,4 prósent og heldur áfram að aukast milli mánaða. Hagfræðingur Landsbankans telur líklegt að frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan.
Ísraelsmenn segjast hafa vegið æðsta yfirmann íranska sjóhersins. Hann er sagður bera ábyrgð á dreifingu djúpsprengja um Hormússund, sem hefur lokað nánast alveg fyrir skipaumferð. Rússar segja af og frá að þeir útvegi Írönum árásardróna og aðra hernaðaraðstoð.
70 prósent eru sammála því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum í könnun Maskínu fyrir Náttúrverndarsamtök Íslands. Langflestir kjósenda Pírata og Vinstri grænna telja að svo sé en fæstir kjósenda Miðflokksins.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þætti dagsins beinum höldum við áfram að ræða atvinnuhorfur hér á landi og beinum sjónum nú sérstaklega að atvinnuleysi á Suðurnesjum þar sem það er mest, 8,8 prósent. Rætt er við Guðbjörgu Kristmundsdóttur, formann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, forseta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Árið 1907 var enski tónsmiðurinn Ralph Vaughan Williams þrjátíu og fimm ára gamall. Hann hafði sent frá sér nokkrar tónsmíðar, en var ekki ánægður, honum fannst sér ganga illa að skapa sér sinn persónulega stíl. Hann ákvað að fara í frekara tónlistarnám til Frakklands og þannig skipuðust málin að hann fór að læra hjá frönsku tónskáldi sem var þremur árum yngra en hann sjálfur: Maurice Ravel. Þeir urðu góðir vinir og Vaughan Williams var hæstánægður með kennsluna. Árið 1909, ári eftir námið hjá Ravel, sendi Vaughan Williams frá sér nokkur af sínum bestu verkum, þar á meðal söngvaflokkinn "On Wenlock Edge" og Sjávarsinfóníu. Í þessum þætti verður söngvaflokkurinn fluttur í heild og leikinn verður 2. kafli Sjávarsinfóníunnar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Gunnar Hansson.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikhöfundur, flutti ávarp sitt í tilefni af alþjóðlegua leiklistardeginum, sem haldinn er hátíðlegur á morgun, þann 27. mars.
Listamannateymið Libia & Ólafur Ólafsson opnuðu í febrúar 2024 sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík. Við rifjum uppfjöllun um sýningina, þar sem svar við spurningu listamannanna og samstarfsaðila þeirra er komið, niðurrif Kísilverksmiðjunnar er hafið.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá tónleikum í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands 27. febrúar 2026.
Á efnisskrá eru verk eftir bandaríska tónskáldið Caroline Shaw:
Entr'acte, f. strengjasveit.
in manus tuas, f. lágfiðlu.
Its Motion Keeps, f. lágfiðlu og kór.
Lo, f. fiðlu og hljómsveit.
Einleikari: Caroline Shaw.
Kór: Kammerkórinn Aurora.
Kórstjóri: Sigríður Soffía Hafliðadóttir.
Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason.
Þátturinn inniheldur viðtöl við Caroline Shaw tekin af Höllu Oddný Magnúsdóttur. Lesarar: Björn Þór Sigbjörnsson og Halla Harðardóttir.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Og þótt veðrið sé með versta móti og viðvaranir eins appelsínugular og þær verða, þá erum við í Mannlega þættinum farin að huga að vorinu sem er rétt handan við hornið. Það er nefnilega kominn tími til að byrja undirbúning fyrir garðyrkjustörf vorsins. Nú er til dæmis gráupplagt að byrja að sá fyrir alls kyns matjurtum og jafnvel sumarblómum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hugsar um fátt annað þessa dagana. Við heyrðum í henni.
Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum og alla þá sem hafa gengið í gegnum andlegar áskoranir og einnig aðstandendur þeirra. Notendur í Hugarafli móta eigin endurhæfingu og veita öðrum stuðning sem eru í svipuðu ferli. Kjarni starfsins er þekking og reynsla notenda og fagfólks. Við kíktum við hjá samtökunum sem eru staðsett í Síðumúla 6 og ræddum við Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra.
Og svo eru það Mannlegu samskiptin með Valdimar Þór Svavarssyni ráðgjafa hjá Fyrsta skrefinu og stjórnandi Meðvirknipodcastsins, í ó
veðrinu í dag töluðum við um nokkuð sem kallast höfnunarótti.
Tónlist í þættinum í dag:
Haglél/Mugison(Mugison)
Þitt bros/GDRN og Tómas R Einarsson(GDRN og Tómas R Einarsson)
Vetur/Egill Ólafsson(Egill Ólafsson)
MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAGUR 26.MARS 2026
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Talsvert hefur verið rætt um kvenheilsu og langvinn veikindi kvenna að undanförnu en lítið um aðgerðir. Hagsmunasamtök þeirra kvenna og kvára sem lifa við langvinn veikindi segja frá reynslu sinni og mikilvægum aðgerðum til að bæta stuðning og þjónustu við þennan hóp á málþingi á Grand Hótel Reykjavíkur í dag klukkan 13. Við ætlum að fá til okkar Nönnu Hlín Halldórsdóttur, rannsóknarlektor við HÍ, og hún deildi með okkur reynslu sinni af kerfinu.
Sjónvarpsstöðin ABC tilkynnti á dögunum að 22. þáttaröðin af Bachelorette fari ekki í loftið eftir að myndband sem sýnir Taylor Frankie Paul, sem er í aðalhlutverki í þáttunum, ráðast á fyrrverandi kærasta sinn. Aðdáendur þáttanna hafa í kjölfarið fylgst með fréttum af málinu með öndina í hálsinum og miðað við fjölda frétta þá er eðlilegt að fólk sé ringlað. Við fengum til okkar fréttakonuna Ingu Söru Guðmundsdóttir til að útskýra málið.
Við höldum áfram umfjöllun okkur um heimildarmyndina Inside the Manosphere eftir Louis Theroux, sem fer nú með himinskautum á Netflix. Myndin fjallar um umdeilda áhrifavalda sem reyna að höfða til ungra karla með því að boða einstaklingshyggju, græðgi, ofur-íhaldssamar hugmyndir um karlmennsku í bland við kvenfyrirlitningu, hommahatur og rasisma. Frosti Logason hefur látið sig málið varða og hann kom í Morgunútvarpið í spjall.
Við höfum tekið þá ákvörðun að færa íþróttamolann okkar af mánudögum yfir á fimmtudaga. Okkar kona Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti því galvösk til okkar og sagði okkur frá hvernig Írar eru að taka Heimi okkar Hallgríms en hann er á leiðinni í umspil fyrir HM í fótbolta með írska karlalandsliðið í fótbolta.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Afmælisbarn dagsins KK var heiðraður en hann fæddist fyrir nákvæmlega 70 árum síðan, það sama má segja um fréttamanninn Hauk Hólm sem leit við á sinni síðustu vakt og sagði frá brjáluði veðri ásamt félaga sínum Höskuldi Kára Schram. Einnig var besta gítarsóló allra tíma að mati lesenda Total Guitar var spilað af bandi.
Lagalisti þáttarins:
DRANGAR – Bál
EELS – Flyswatter
MEMFISMAFÍAN – Syngdu
CUTTING CREW – (I Just) Died In Your Arms
AMOR VINCIT OMNIA – Ber
TALKING HEADS – This must be the place - Naive melody
311 – Amber
PROCOL HARUM – A Whiter Shade Of Pale
KK – Lucky One
KK – Lífið er
KINGFISHR – The Blade
LYKKE LI – Lucky Again
BUBBI MORTHENS – Hún
NOAH KAHAN – The Great Divide
RED HOT CHILI PEPPERS – Under The Bridge
FLEETWOOD MAC – Rhiannon (Will You Ever Win)
LOLA YOUNG – Messy
HARRY STYLES – American Girls
HURTS – Wonderful Life
LED ZEPPELIN – Stairway To Heaven
KRUMMI – Smile till it ends
RETRO STEFSON – Minning
CREATURE OF HABIT – Myrká
DUA LIPA – Dance The Night
THE CRANBERRIES – Dreams
GREININGARDEILDIN, BOGOMIL FONT, EMILÍANA TORRINI – Þú stendur alltaf með mér
ZERO 7 – In The Waiting Line
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
HIPSUMHAPS – Góðir hlutir gerast hææægt
SOMBR – Homewrecker
ROYEL OTIS – Moody
SABRINA CARPENTER – When Did You Get Hot
THE JAM – That's Entertainment
ST. PAUL & THE BROKEN BONES – Fall Moon
EARTH WIND AND FIRE – Let's Groove
HJALTALÍN – Love from 99
FREYA RIDIGS – Wild Rose
U2 – The Unforgetteble fire

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Vonskuveður er á stórum hluta landsins og gul og appelsínugul viðvörun í gildi vegna suðaustan storms og ofankomu. Skólahald er takmarkað og fólk var hvatt til þess að halda sig heima.
Vegir hafa ýmist verið lokaðir eða á óvissustigi og flugi frestað fram yfir hádegi. Fjöldahjálpastöðvar voru opnaðar í Vogum og í Reykjanesbæ.
Nokkur veiðiskip lóna upp í veðrið út af Reykjanesi, hafa tekið upp veiðarfæri og bíða eftir að lægi. Stýrimaðurinn á Guðmundi í Nesi segir að það væri kæruleysi að fara út á dekk
Verðbólga er 5,4 prósent og heldur áfram að aukast milli mánaða. Hagfræðingur Landsbankans telur líklegt að frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan.
Ísraelsmenn segjast hafa vegið æðsta yfirmann íranska sjóhersins. Hann er sagður bera ábyrgð á dreifingu djúpsprengja um Hormússund, sem hefur lokað nánast alveg fyrir skipaumferð. Rússar segja af og frá að þeir útvegi Írönum árásardróna og aðra hernaðaraðstoð.
70 prósent eru sammála því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum í könnun Maskínu fyrir Náttúrverndarsamtök Íslands. Langflestir kjósenda Pírata og Vinstri grænna telja að svo sé en fæstir kjósenda Miðflokksins.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa var á veðurvaktinni í Popplandi. Fjölbreytt tónlist að vanda í bland við fréttir af færð. Árni Matt og Júlía Aradóttir gerðu upp plötu vikunnar, Herbert Guðmundsson og Kór Keflavíkurkirkju.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Sycamore tree - Better call off the search for my soul.
FLEETWOOD MAC - Rhiannon.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
DEATH CAB FOR CUTIE - I Will Follow You Into The....
Bubbi Morthens, Kristmundur Axel - Kominn heim.
COLDPLAY - Viva La Vida.
TALKING HEADS - Psycho Killer.
Byrne, David, Ghost Train Orchestra - Everybody Laughs.
Dean, Olivia - Baby Steps.
RAYE söngkona - Nightingale Lane.
Usher, Keys, Alicia - If I ain't got you (radio edit).
Cribs, The - Never The Same.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
Shins, The - New slang.
Tallest Man On Earth, The - The Dreamer.
Kahan, Noah - The Great Divide.
Memfismafían - Syngdu.
Creature of Habit - Myrká.
Helgi Björnsson - Lífið sem eitt sinn var.
HOZIER - Someone New.
Brimbrot - Kling Klang.
Chappell Roan - The Subway.
Kór Keflavíkurkirkju, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Can't Walk Away.
Kór Keflavíkurkirkju, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Ég gefa vil.
Kór Keflavíkurkirkju, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - My Love.
Kór Keflavíkurkirkju, Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Day of Freedom.
Teddy Swims - The Door.
SIMON & GARFUNKEL - The 59th Street Bridge Song (Feelin' Groovy).
JÚNÍUS MEYVANT - Color Decay.
Bríet - Bang Bang.
JJerome87, Alt-J - Brush Me Like A Horse.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
JIM CROCE - I Got A Name.
Emilíana Torrini, Greiningardeildin, Bogomil Font - Þú stendur alltaf með mér.
THE DANDY WARHOLS - Bohemian Like You.
Mímir - Brightness.
Valdimar - Tenerife.
KATIE MELUA - Just Like Heaven.
Bright eyes - First day of my life.
Lykke Li - Lucky Again.
Júlí Heiðar Halldórsson, Ragga Holm, Ragnhildur Jónasdóttir - Líður vel.
DIKTA - From Now On.
Krummi - Smile till it ends.
PAUL MCCARTNEY & WINGS - Silly Love Songs.


Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.