Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Talsvert hefur verið rætt um kvenheilsu og langvinn veikindi kvenna að undanförnu en lítið um aðgerðir. Hagsmunasamtök þeirra kvenna og kvára sem lifa við langvinn veikindi segja frá reynslu sinni og mikilvægum aðgerðum til að bæta stuðning og þjónustu við þennan hóp á málþingi á Grand Hótel Reykjavíkur í dag klukkan 13. Við ætlum að fá til okkar Nönnu Hlín Halldórsdóttur, rannsóknarlektor við HÍ, og hún deildi með okkur reynslu sinni af kerfinu.
Sjónvarpsstöðin ABC tilkynnti á dögunum að 22. þáttaröðin af Bachelorette fari ekki í loftið eftir að myndband sem sýnir Taylor Frankie Paul, sem er í aðalhlutverki í þáttunum, ráðast á fyrrverandi kærasta sinn. Aðdáendur þáttanna hafa í kjölfarið fylgst með fréttum af málinu með öndina í hálsinum og miðað við fjölda frétta þá er eðlilegt að fólk sé ringlað. Við fengum til okkar fréttakonuna Ingu Söru Guðmundsdóttir til að útskýra málið.
Við höldum áfram umfjöllun okkur um heimildarmyndina Inside the Manosphere eftir Louis Theroux, sem fer nú með himinskautum á Netflix. Myndin fjallar um umdeilda áhrifavalda sem reyna að höfða til ungra karla með því að boða einstaklingshyggju, græðgi, ofur-íhaldssamar hugmyndir um karlmennsku í bland við kvenfyrirlitningu, hommahatur og rasisma. Frosti Logason hefur látið sig málið varða og hann kom í Morgunútvarpið í spjall.
Við höfum tekið þá ákvörðun að færa íþróttamolann okkar af mánudögum yfir á fimmtudaga. Okkar kona Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti því galvösk til okkar og sagði okkur frá hvernig Írar eru að taka Heimi okkar Hallgríms en hann er á leiðinni í umspil fyrir HM í fótbolta með írska karlalandsliðið í fótbolta.
