12:40
Helgarútgáfan
Hugleikur, Karen, Einakróna og sólin

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur í meðmælasúpunni voru hjónin Karen Briem og Hugleikur Dagsson sem mæltu með skemmtilegum stöðum á landinu, bíó og sjónvarpi og matseld fyrir sumarið. Björk Magnúsdóttir í Einakrónu var á línunni frá hátíðinni Hátíðni á Borðeyri og lagaþemað var einfaldlega sól sól skín á mig.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 3 klst. 15 mín.
,