Fræðafólk

Fræðafólk 1 - Sveinn Máni Jóhannesson og Bandaríkin

Fyrsti þáttur af fimm þar sem Illugi Jökulsson ræðir við fræðafólk af ýmsu tagi um nýjar rannsóknir og/eða bækur sem það vinnur að. Í þessum þætti segir Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur frá bókinni The Scientific Military State sem hið virta háskólaforlag University of Chicago Press gaf nýlega út eftir hann. Á þessum 250 ára afmælisdegi Bandaríkjanna er við hæfi fræðast um þá hlið uppbyggingar hins nýja ríkis, sem Sveinn Máni fjallar um, en jafnframt er spjallað um bæði meðferð Bandaríkjamanna á frumbyggjum, Trump og fleira.

Birt

4. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fræðafólk

Umsjón: Illugi Jökulsson

,