Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Starfsfólk Matvælastofnunar hefur undanfarið orðið fyrir óvenjulega miklu áreiti, hótunum og ærumeiðingum, þar sem settar eru myndir af starfsfólki og það nafngreint á samfélagsmiðlum og jafnvel í einstaka fjölmiðlum. Þá eru dæmi um að starfsfólk MAST hafi sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum og óttast jafnvel um börn sín. Atvikin tengjast afskiptum Matvælastofnunar af dýrahaldi og beitingu þvingunarúrræða þar sem brotið er á velferð dýra. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, kom í Morgunútvarpið og segir okkur betur frá þessu.
Unglingsárin eru tímabil mikilla líkamlegra, andlegra og félagslegra breytinga, þar sem kynþroski hefur veruleg áhrif á bæði líkamsþroska og líðan. Stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi er rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands sem fjallar um frammistöðu, líðan og þátttöku stúlkna í knattspyrnu á unglingsárum. Verkefnið snýst í grunninn um að skilja betur hvað mótar íþróttaferil stelpna á þessum aldri, bæði líkamlega, andlega og félagslega, og hvernig þessir þættir þróast og tengjast hvor öðrum yfir tíma. Rúna Sif Stefánsdóttir, PhD, Lektor í íþrótta og heilsufræði í Háskóla Íslands, mætti og sagði okkur frá þessu áhugaverða verkefni.
Sumarið er komið og nú svitnum við öll við tilhugsunina um veðrið. Hvernig verður sumarið? Milt? Hlýtt? Kalt? Við fengum Sigga Storm, veðurfræðigni frá Veðri ehf., til að skoða langtímaspárnar, rýna í gögnin og reyna að gefa okkur vísbendingu um hvað er í vændum.
Hvað erum við að fara að setja á grillið í sumar? Eru það bara gömlu, góðu kryddlegnu kótiletturnar með slettu af kartöflusalati eða er hægt að fara einhverjar aðrar leiðir. Matgæðingurinn Guðný Ljósbrá kíkti til okkar með góðar hugmyndir um hvað er hægt að borða þegar sólin skín.
Sigmar Vilhjálmsson keypti nýlega bæjarblaðið Mosfelling. Hafrún Hafliðadóttir hefur verið ráðin ritstjóri og við fengum þau til okkar.
