Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir
Hljóðritanir af sjaldheyrðum verkum eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
Þátturinn fjallar um Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld.
Lesari: Dagur Gunnarsson.
Hann les brot úr æviminningum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar sem birtust í bókinni Sveinbjörn Sveinbjörnsson, ævisaga eftir Jón Þórarinsson.
Tónlist:
Hljóðrit RÚV Pastorale Sveinbjörn Sveinbjörnsson Nína Margrét Grímsdóttir, píanó. 3.26
" Menúett-Tríó Sami Sama 4.20
" Impromptu-Nocturne Sami Sama 5.07
" The Song of Songs/ Sami/ljóð: Spitta Gissur Páll Gissurarson syngur, 9.38
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
The Willow Song/ Sami/ljóð: Hemans Sömu.
The Windmill Sami/ljóð: Vickers Sömu.
" Saga Sami Pálína Árnadóttir, fiðla, 3.36
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
" My Dove Sami: ljóð: Keats Þóra Einarsdóttir syngur, 2.34
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
" Echo Sami: ljóð: Moore Sömu. 3.30
" White Heather Sami: ljóð: Morris Sömu. 2.58
" Foraarsstemning Sami Sigurgeir Agnarsson, selló, 3.01
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
" Hátíðarpólónesa Sami Pálína Árnadóttir, fiðla, 4.32
Hildigunnur Halldórdóttir, fiðla,
Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóla,
Sigurgeir Agnarsson, selló,
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
Í þættinum er fjallað um sameiginlega þræði í ljóðum þýska skáldsins Friedrichs Hölderlin og tveggja íslenskra skáldbræðra hans, Steingríms Thorsteinssonar og Hannesar Péturssonar. Í brennidepli er rómantísk sýn skáldanna þriggja á náttúruna og guðdómlegt eðli hennar. Fluttar eru þýðingar Steingríms og Hannesar á ljóðum eftir Hölderlin, auk þess sem við heyrum nokkur valin ljóð eftir tvö fyrrnefndu skáldin. Jafnframt eru leiknar fáeinar tónsmíðar við ljóð Friedrichs Hölderlin.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina.
Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjann.
Í þessum þætti er fjallað um tímabilið sem fjölmenn byggð reis á Vatnsenda og átökin sem urðu á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Hjaltested-ættinni og dómsölum landsins.
Við sögu koma meðal annars Guðjón Ármannsson, Víðir Smári Petersen, Guðríður Eldey Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Birgisson, Ásgeir Þór Davíðsson, Magnús Hjaltested, Þorsteinn Hjaltested, Magnús Pétur Hjaltested og Kristrún Ólöf Jónsdóttir.
Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir
Tónlist: Atli Örvarsson (Úr kvikmyndinni Hrútum)
Hljóðblöndun: Markús Hjaltason

Veðurstofa Íslands.

Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi
Forsætisráðherra Íslands, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngja þjóðsönginn
Hátíðarræða forseta Íslands
Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngja Hver á sér fegra föðurland
Ávarp fjallkonunnar
Hornleikarar frá Sinfóníuhljómsveit Íslands leika frá svölum Alþingis: Ég vil elska mitt land.
Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngur: Yfir voru ættarlandi
Forsætisráðherra Íslands, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngja þjóðsönginn
Hátíðarræða forseta Íslands
Félagar úr Karlakór Reykjavíkur syngja Hver á sér fegra föðurland
Ávarp fjallkonunnar
Hornleikarar frá Sinfóníuhljómsveit Íslands leika frá svölum Alþingis: Ég vil elska mitt land.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Í mars 1957 fór Björn Th. Björnsson á vegum þáttarins Um helgina að Gljúfrasteini þar sem hann ræddi við Halldór Laxness um nýja bók hans, Brekkukotsannál, tónlist í lífi hans, þýðingar á verkum hans, persónur og vísur í nýju bókinni og fleira. Einnig ræddi Björn Th. við Auði Laxness eiginkonu Halldórs og einnig heyrist í ungum dætrum hjónanna, Sigríði og Guðnýju.

Þegar Þorgerður Ingólfsdóttir ákvað 24 ára gömul að taka að sér kórstjórn í nýstofnuðum Menntaskóla við Hamrahlíð árið 1967 sá hún ekki fyrir sér að verða gömul kona í slíku starfi. En nú, tæpum sex áratugum síðar, hefur hún alið upp hundruði söngvara, frumflutt yfir hundrað ný kórverk og borið hróður skólans og Íslands um allan heim. Í hátíðarþætti á lýðveldisdaginn heimsækir Melkorka Ólafsdóttir Þorgerði á bernskuheimili hennar í Reykjavík.

Hvað er þjóðaríþrótt og hver er hin eina sanna þjóðaríþrótt Íslendinga? Handknattleikssamband Íslands hefur að undanförnu markaðssett handboltann sem þjóðaríþróttina, en lengi vel átti íslenska glíman þennan þjóðaríþróttatitil skuldlaust. En hvor íþróttin er þjóðaríþrótt okkar Íslendinga? Er það kannski bara einhver allt önnur grein, til dæmis fótbolti því hann er stundaður af flestum? Í þættinum er þessu öllu velt upp í leitað að hinni sönnu þjóðaríþrótt Íslendinga.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Vísnabókin er klassísk gersemi sem fylgt hefur mörgum börnum og fullorðnum allt frá því að hún kom fyrst út árið 1946. Í bókinni er að finna úrval vísna og kvæða að ógleymdum myndskreytingum Halldórs Péturssonar. Á þessum fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands má heyra valin lög og syrpur í nýjum hljómsveitarútsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.
Hver kannast ekki við lög á borð við Siggi var úti, Ég á lítinn skrýtinn skugga, Fyrr var oft í koti kátt, Hann Tumi fer á fætur og Komdu kisa mín. Það eru leikararnir og söngvararnir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Hallgrímur Ólafsson sem koma fram með hljómsveitinni ásamt Gradualekórum Langholtskirkju; Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar.
Hljóðritun frá tónleikum í Eldborg, Hörpu, 9. maí sl.

Útvarpsfréttir.

Í þættinum er fjallað um beinaflutningana með viðtölum við fólk sem man atburði og með lestri úr heimildum. Viðmælendur eru séra Ágúst Sigurðsson ; Birgir Thorlacius, fyrrverandi ráðuneytisstjóri ; Friðjón Skarphéðinsson, fyrrverandi sýslumaður ; Gestur Sæmundsson ; Halldór Kristjánsson og Sigrún Sigurjónsdóttir fyrrverandi íbúar í Öxnadal. Umsjón: Jón Karl Helgason. (Áður á dagskrá 1996)

Í tilefni af því að þann 17. júní verða liðin 100 ár frá fæðingu Svavars Gests, hljómsveitarstjóra, hljómplötuútgefanda og eins ástsælasta útvarpsmanns íslenskrar útvarpssögu ætla Felix Bergsson og Margrét Blöndal að bjóða hlustendum í skemmtiþátt í anda Svavars; spurningakeppni, 14 fóstbræður, fimmaura brandarar og leynigestur að ógleymdri hljómsveit þáttarins.

Fréttir

Tónlist í flutningi Hamrahlíðarkórsins undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Árið 2025 bauð Stórsveitin tveimur af vinsælustu söngkonum þjóðarinnar til samstarfs, þeim Bríeti og GDRN, þar sem fluttar voru nýjar og spennandi útsetningar af lögum þeirra.
Stjórnandi og kynnir er Ari Bragi Kárason.
So In Love - Eliane Elias höfundur, úts. Bob Brookmeyer- einleikarar: Eyþór Gunnarsson og Snorri Sigurðarson
Sólblóm - Bríet, úts.Franky Rousseau - einleikari: Sigurður Flosason
Blood on my lips - Bríet, úts. Remy Le Boeuf - einleikari: Haukur Gröndal
Af og til - GDRN, úts.Jesper Riis - einleikari: Ólafur Jónsson
Ævilangt - GDRN, úts, Dominic Mekky solo, Eyþór
Vorið - GDRN, úts Jesper Riis -Einleikari Ívar Guðmundsson
Cowboy Killer- Bríet, úts. Jesper Riis - einleikari: Haukur Gröndal
Parísarhjól - GDRN, úts Franky Rousseau
--
Hang Gliding - SR - Maria Schneider - einleikarar: Snorri Sigurðarson, Jóel Pálsson
Wreck Me - Bríet, úts. Jesper Riis solo, Reynir Snær Magnússon, Eyþór Gunn
Broken Hearted - Bríet, úts Jesper Riis - einleikari: Jóel Pálsson
Lætur mig - GDR, úts. Kjartan Valdemars
Áður en dagur rís - GDRN, úts Franky Rousseau - einleikari: Sigurður Flosason
Esjan - Bríet, úts Dominic Mekky - einleikari: Reynir Snær Magnússon
uppklapp
Veðrið er herfilegt - Bríet/GDRN
Draumar eru stór hluti af lífi allra, fáir gefa þeim samt sem áður mikinn gaum. Hvað gerist ef við beinum athyglinni meira að draumum okkar? Viðfangsefnið í þættinum eru draumar og sköpunarkraftur. Rætt er við fólk sem hefur nýtt sér drauma í skapandi vinnu.
Umsjón: Kolbrún Vaka Helgadóttir

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands

Suður-afríska söngkonan Miriam Makeba hélt tónleika á Listahátíð í Reykjavík árið 2006. Ævi hennar hefur var viðburðarík og tengd baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku. Rúm 30 ár ævi sinnar var hún í útlegð frá heimalandi sínu en óþreytandi við að benda umheiminum á misréttið sem þar viðgekkst.
Sigríður Stephensen gerði þriggja þátta röð um þessa merku listakonu árið 2006.
Útlegðarárin í Gíneu, sungið fyrir háa sem lága, fleiri ræður á þingi SÞ, persónulegar sorgir, samstarf við Paul Simon, loksins heim til Suður-Afríku.
Í þættinum er fjallað um sameiginlega þræði í ljóðum þýska skáldsins Friedrichs Hölderlin og tveggja íslenskra skáldbræðra hans, Steingríms Thorsteinssonar og Hannesar Péturssonar. Í brennidepli er rómantísk sýn skáldanna þriggja á náttúruna og guðdómlegt eðli hennar. Fluttar eru þýðingar Steingríms og Hannesar á ljóðum eftir Hölderlin, auk þess sem við heyrum nokkur valin ljóð eftir tvö fyrrnefndu skáldin. Jafnframt eru leiknar fáeinar tónsmíðar við ljóð Friedrichs Hölderlin.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Felix fagnar þjóðhátíðardeginum með hlustendum og fer fram og til baka, skoðar dagskrána víðsvegar um landið og spilar íslenska tónlist úr nútíð og fortíð. Gleðilega hátíð!

Útvarpsfréttir.

Andri Freyr Viðarsson verður í sannkölluðum 17. júní gír og stýrir þættinum Jibbí jei með andlitsmálingu, candyfloss, risasleikjó og jafnvel í hoppukastala.

Hvaða lög hitta okkur beint í hjartastað? Er við hæfi að spila rosalega skrýtið lag við hjónavígslu, því að þið fóruð í sleik við það fyrir tíu árum? Skiptir textinn máli?
Margrét Erla Maack, einhleypasta kona Íslands, hefur verið viðstödd fleiri brúðkaup en margir. Hún er veislustjóri, DJ og athafnastjóri en áður en hún fór að vinna við þetta fylgdi hún föður sínum prestinum við embættisstörf.
Í þættinum er rætt við tónlistarfólk, plötusnúða, hjón og verðandi hjón, prest, athafnastjóra og goða, danskennara og reynda brúðkaupsgesti.

Útvarpsfréttir.

Upptaka frá tónleikum Laufeyjar í Kórnum í Kópavogi í mars sl. Tónleikarnir voru lokatónleikar A Matter of Time Evróputúrsins, en samnefnd plata kom út fyrr á árinu.
Hljóðblöndun: Axel Flex Árnason.
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson.

Fréttir

Matthías Már spilar létta tóna í eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.