
Maðurinn er guð, þegar hann lætur sig dreyma
Í þættinum er fjallað um sameiginlega þræði í ljóðum þýska skáldsins Friedrichs Hölderlin og tveggja íslenskra skáldbræðra hans, Steingríms Thorsteinssonar og Hannesar Péturssonar. Í brennidepli er rómantísk sýn skáldanna þriggja á náttúruna og guðdómlegt eðli hennar. Fluttar eru þýðingar Steingríms og Hannesar á ljóðum eftir Hölderlin, auk þess sem við heyrum nokkur valin ljóð eftir tvö fyrrnefndu skáldin. Jafnframt eru leiknar fáeinar tónsmíðar við ljóð Friedrichs Hölderlin.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason