17:00
Síðdegisstund í minningu Svavars Gests

Í tilefni af því að þann 17. júní verða liðin 100 ár frá fæðingu Svavars Gests, hljómsveitarstjóra, hljómplötuútgefanda og eins ástsælasta útvarpsmanns íslenskrar útvarpssögu ætla Felix Bergsson og Margrét Blöndal að bjóða hlustendum í skemmtiþátt í anda Svavars; spurningakeppni, 14 fóstbræður, fimmaura brandarar og leynigestur að ógleymdri hljómsveit þáttarins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 57 mín.
,