15:00
Sinfóníutónleikar
Litli tónsprotinn: Vísnabókin

Vísnabókin er klassísk gersemi sem fylgt hefur mörgum börnum og fullorðnum allt frá því að hún kom fyrst út árið 1946. Í bókinni er að finna úrval vísna og kvæða að ógleymdum myndskreytingum Halldórs Péturssonar. Á þessum fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands má heyra valin lög og syrpur í nýjum hljómsveitarútsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.

Hver kannast ekki við lög á borð við Siggi var úti, Ég á lítinn skrýtinn skugga, Fyrr var oft í koti kátt, Hann Tumi fer á fætur og Komdu kisa mín. Það eru leikararnir og söngvararnir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Hallgrímur Ólafsson sem koma fram með hljómsveitinni ásamt Gradualekórum Langholtskirkju; Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar.

Hljóðritun frá tónleikum í Eldborg, Hörpu, 9. maí sl.

Er aðgengilegt til 17. júlí 2026.
Lengd: 50 mín.
,