Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum við konurnar sem flestar eru ekkjur presta, kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina. Hægt er að nálgast þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins.
Rætt er við frú Önnu Sigurkarlsdóttur um líf hennar og séra Magnúsar Guðjónssonar á Eyrarbakka.
Umsjón: Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Aðstoð við dagskrárgerð Ævar Kjartansson.
Stef þáttarins er Sælir eru þeir eftir Inga T. Lárusson, leikið af Kristínu Axelsdóttur í Grímstungu á Hólsfjöllum.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti verður flutt tónlist sem tengist græna litnum. Þar má nefna þrjá söngva úr söngvaflokknum „Malarastúlkan fagra" eftir Franz Schubert, en þar kemur græni liturinn mikið við sögu. Einnig verður flutt stutt verk í F-dúr eftir Jean Sibelius, en Sibelius sá tóntegundir í litum og var þeirrar skoðunar að F-dúr væri grænn á litinn. Meðal annarra tónsmíða í þættinum eru „Erstes Grün" eftir Robert Schumann, „Grænn snjór" eftir Jónas Tómasson og „Bein´ green" eftir Joe Raposo. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Brynhildi Halldórsdóttur á Syðra-Lóni, sjávarbýli sem er spölkorn utan við þorpið á Þórshöfn á Langanesi. Brynhildur giftist að Syðra-Lóni árið 1958. Hún segir frá búskapnum á fyrri tíð, hvernig sjórinn var sóttur samhliða kúa- og sauðfjárbúskap, talar um æðarvarpið sem var og er mikilvægur hluti af búskapnum á Syðra-Lóni, um árin sín sem hreppstjóri og fleira. Því næst er Guðbjörg Guðmundsdóttir heimsótt. Hún hefur lengst af búið á Þórshöfn en ólst hins vegar upp á Skálum á Langanesi til níu ára aldurs. Þorpið á Skálum fór að mestu í eyði árið 1948 og endanlega 1955. Guðbjörg segir frá lífsbaráttunni á Skálum, rafmagnsleysi, vatnsburði, leikjum barnanna, óblíðum veðrum o.s.frv. Umsjón: Pétur Halldórsson.
Veðurstofa Íslands.
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
Helga Novak, Ísland, Austur-Þýskaland og Stasi.
Í þáttunum er brugðið upp mynd af sögu íslenskra námsmanna í Austur-Þýskalandi og fjallað um aðferðir Stasi við að njósna um þá. Sérstaklega er fjallað um austurþýska - síðar íslenska - rithöfundinn Helgu Novak, sem átti í senn ævintýralegt og átakanlegt lífshlaup.
Lesarar: Broddi Broddason og Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Umsjón: Björn Teitsson og Helgi Hrafn Guðmundsson.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.
(Áður á dagskrá 2023)
Guðsþjónusta.
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson predikar og þjónar fyrir altari.
Organistar og stjórnendur kóra: Þorbjörg Jóhannsdóttir og Eyrún Jónasdóttir.
Sameinaður kirkjukór Hruna- og Hrepphólasókna og Stóra-Núps- og Ólafsvallasókna.
Jóhann Stefánsson leikur á trompet.
Marta Esther Hjaltadóttir les ritningalestra og Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir les lokabæn.
Hljóðritun fór fram í Skálholtskirkju 1. maí s.l.
Forspil: Sálmur 713: Skapari ljóss og lífs. Lag: Auður Guðjohnsen. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Fyrir predikun:
Sálmur 760: Nú heilsar vorsins blíði blær. Lag: Anders Öhrwall. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Sálmur 272: Hallelúja dýrð sé Drottni. Lag: Philipp Nicolai. Texti: Helgi Hálfdánarson.
Sálmur 162: Biðjið og þá öðlist þér. Lag: Johann R. Ahle. Texti: Valdimar Briem.
Eftir predikun:
Vikivaki: Lag: Valgeir Guðjónsson. Texti: Jóhannes úr Kötlum.
Þú sem líf af lífi gefur: Lag: Johann Cruger. Texti: Hjálmar Jónsson.
Sálmur 562: Lag: Wolfgang Amadeus Mozart. Texti: Valdimar Briem.
Eftirspil: Sálmur 296: Nú gjaldi Guði þökk. Lag: Martin Rinckart. Texti: Helgi Hálfdánarson.
Útvarpsfréttir.
Kjarafundur í deilu Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna ríkisins við Isavia stendur nú yfir. Náist ekki samkomulag hefst ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann á fimmtudag.
Viðræður um vopnahlé á Gaza halda áfram í dag. Hamas-samtökin vilja ákvæði um endalok stríðsins. Ísraelsmenn ætla ekki að taka beinan þátt í viðræðunum fyrr en lausn gísla Hama er yfirvofandi.
Kvika í hólfinu undir Svartsengi er orðin tólf milljón rúmmetrar. Dregið gæti til tíðinda við gosstöðvarnar á allra næstu dögum, að sögn náttúruvársérfræðings.
Minnst 66 eru látnir og 101 saknað eftir mikil flóð og aurskriður í suðurhluta Brasilíu. Tugir þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Sumarlokanir hjá SÁÁ eru óhjákvæmilegar vegna sumarleyfa starfsfólks og eldri samninga við ríkið. Það er tími til kominn að endurskipuleggja starfsemina segir formaður samtakanna.
N-listI nýrrar sýnar hlaut meirihluta í kosningum til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Íbúi á níræðisaldri gekk sextán kílómetra leið á kjörstað til að mótmæla virkjunaráformum í friðlandi í Vatnsfirði.
Átta þættir um kalda stríðið sem Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson gerðu á árunum 1987 til 1988.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson.
Innskot: Sir John Killick fyrrum sendiherra.
Lestur: Þröstur Leó Gunnarsson og Gunnar Stefánsson.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið
5. maí 2024
Umsjón: Guðni Tómasson
Tónhjólið þessa vikuna er helgað einu tónverki og aðeins einu tónverki, níundu sinfóníu Ludwigs van Beethoven, en 7. maí næstkomandi eru 200 ár liðin frá frumflutningi þessarar óvenjulegu tónsmíðar sem olli straumhvörfum í tónlistarsögunni. Umsjónarmaður segir frá sköpunarsögu verksins og grípur niður í lýsingar á frumflutningnum og daglegu lífi Beethovens. Ennig hljómar í síðari hluta þáttarins Tónlistarrabb Atla Heimis Sveinssonar tónskálds frá árinu 1979 þar sem hann fjallaði um lokakafla verksins, lék tóndæmi og lýsti framvindu kaflans um leið og hljóðritun af honum var leikin.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Beethoven og hljómar í brotum:
Brot úr fyrsta og öðrum þætti níundu sinfóníunnar. Pablo Heras-Casado stjórnar Barroksveitinni i´Freiburg.
Jacqueline Du Pré og Daniel Barenboim leika hæga þáttinn úr sellósónötu nr. 5
Murray Perahia leikur Adagio Cantabile úr píanósónötu nr. 8 - Pathetique
Lokakafli níundu sinfóníunnar leikinn og sunginn undir tali Atla Heimis Sveinssonar um hann í Tónlistarrabbi. Óvíst með flytjendur.
Í þáttunum rannsökum við reiðina, hvernig hún birtist og hvernig eigi að túlka hana. Er reiðin alltaf slæm, getur hún gert gott og verður pláss fyrir reiði í framtíðarsamfélaginu?
Umsjón: Rósa María Hjörvar.
Í þessum þætti ræðum við um framtíð reiðinnar og birtingarmyndir hennar í sögum af framtíðinni.
Veðurstofa Íslands.
Í þættinum er fjallað um brennuna á Bergþórshvoli, hið dramatíska hámark þeirra atburða sem frá segir í Brennu Njáls sögu. M.a. er vikið að þeirri spurningu, hvort frásögnin af brennunni sé heiðin eða kristin? Hvort lýsingin á aðförum brennumanna og fórnarlambanna beri keim af lýsingum á karnivali miðalda o.fl.
Einnig eru lesin í þættinum ljóð nokkurra skálda sem hafa sótt sér yrkisefni í brennuna.
Einar Ólafur sveinsson les kafla úr Brennu Njáls sögu.
Lesari með umsjónarmanni er: G. Svala Arnardóttir
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason.
(Áður á dagskrá 2001)
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Einarsson sjónvarpsmaður með meiru. Við þekkjum hann auðvitað úr Landanum og fjölda annarra sjónvarspþátta, en í dag stökk hann inn með skömmum fyrirvara til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Tálknfirðingur BA – e. Ólaf Svein Jóhannesson
Einmanna – e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur
Þjóðsögur Jóns Árnasonar - ritröðin öll
Kóngulóin e. Lars Kepler
Hundrað kvæði e. Þórarinn Eldjárn
Snorri Sturluson og Jón Trausti.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Þáttur um íslenskt myndband sem varð að innblæstri að lagi hljómsveitarinnar Slagsmál. Myndbandið heitir Fokk sími og dreifðist það um á snjallsímaforritinu TikTok. Í þættinum verður farið yfir þróun svokallaðra viral myndbanda og hvernig þau geta mótað bæði mál og tónlist.
Viðmælendur: Þórbergur Bollason og Kormákur Bergsson.
Umsjón: Matthildur G. Hafliðadóttir.
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Í þættinum hljómar eftirfarandi tónlist:
Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, Dúfa á brún eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Textahöfundar ekki getið
Kvennakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur, Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson, ljóðið er eftir Halldór Laxness.
Kammversveitin í München (Münchener Kammerorchester) leikur undir stjórn Christoph Poppen, Kveðjuserenöðu fyrir strengjasveit (Abschiedsserenade für Streichorchester (2003) I og II, eftir Valentin Silvestrov.
Barbara Hannigan stjórnar og syngur tvo þætti úr verkinu Quatre chants pour franchir le seuil fyrir sópan og hljómsveit eftir Gérard Grisey. Með henni leikur Ludwig-hljómsveitin. Þættirnir sem hljóma eru eru: Millispil 3 og Dauði raddarinnar; og lokaþáttur verksins Vögguvísa.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmonikkuleikari flytur verkið Fikta (2018) eftir Friðrik Margrétar- Guðmundsson.
Strokkvartettinn Siggi flytur Strengjakvartett nr. 5: Attacca 2016 eftir Atla Heimi Sveinsson.
Hanna Dóra Sturludóttir syngur lagaflokkinn Steinalög eftir Hauk Tómasson, við ljóð eftir Sjón. Snorri Sigfús Birgisson leikur á píanó. Ljóðin eru þrjú: Tímamót, Strengleikur og Dægurlag.
Frode Fjellheim syngur lag sitt, The return of the sun. Með honum leika Eldbjørg Hemsing á fiðlu og Fílharmóníusveit Norðurslóða (Arctic Philharmonic) undir stjórn Christian Kluxen.
Fílharmóníusveit New York borgar leikur forleikinn að Candide eftir Leonard Bernstein undir stjórn tónskáldsins.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-29
Skólakór Kársness - Dúfa á brún.
Kvennakór Reykjavíkur - Hjá lygnri móðu.
Münchener Kammerorchester - Abschiedsserenade : für Streichorchester (2003) : I.
Münchener Kammerorchester - Abschiedsserenade : für Streichorchester (2003) : II.
Hannigan, Barbara, Ludwig Orchestra - Quatre chants pour franchir le seuil for soprano and ensemble : Interlude - III..
Hannigan, Barbara, Ludwig Orchestra - Quatre chants pour franchir le seuil for soprano and ensemble : Berceuse.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Fikta (2018).
Strokkvartettinn Siggi - String quartet no.5 : Attacca 2016.
Hanna Dóra Sturludóttir, Snorri Sigfús Birgisson - Tímamót.
Hanna Dóra Sturludóttir, Snorri Sigfús Birgisson - Strengleikur.
Hanna Dóra Sturludóttir, Snorri Sigfús Birgisson - Dægurlag.
Arctic Philharmonic, Hemsing, Eldbjørg, Fjellheim, Frode - The return of the sun.
New York Philharmonic - Candide overture.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í óbeinu framhaldi af þáttum fyrr á árinu um tilraun Englendingsins Mallorys til að komast á tind Everest-fjalls, þá verður fjallað í þessum þætti og þeim næstu um tilraun Ný-Sjálendingsins Hillarys og Sjerpans Tenzing Norgay til að komas á tindinn. Í þessum þætti verður sagt frá misheppnuðum leiðöngrum á fjallið og síðan þeim þátttakendum í nýjum leiðangri sem voru staðreráðnir í að komast á tindinn, hvað sem það kostaði.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Það eru fá hitamál sem liggja meira á þjóðinni þessa dagana en Eurovision og ekki á jákvæðum nótum enda þarf ég varla að útskýra ástandið í heiminum og hvernig þetta spilar allt saman. En, er hægt að tala um Eurovision fyrirbærið, sögu þess og fyrirkomulag án þess að festast í umræðu um þáttöku okkar í ár eða hvernig sé best að gera þetta allt saman? Mögulega. Við Steinunn Björk Bragadóttir ætlum að minnsta kosti að reyna okkar besta, fara yfir þetta helsta og hvernig þessi árlegi stormsveipur kemur til og hvaðan.
Útvarpsfréttir.
Kjarafundur í deilu Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna ríkisins við Isavia stendur nú yfir. Náist ekki samkomulag hefst ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann á fimmtudag.
Viðræður um vopnahlé á Gaza halda áfram í dag. Hamas-samtökin vilja ákvæði um endalok stríðsins. Ísraelsmenn ætla ekki að taka beinan þátt í viðræðunum fyrr en lausn gísla Hama er yfirvofandi.
Kvika í hólfinu undir Svartsengi er orðin tólf milljón rúmmetrar. Dregið gæti til tíðinda við gosstöðvarnar á allra næstu dögum, að sögn náttúruvársérfræðings.
Minnst 66 eru látnir og 101 saknað eftir mikil flóð og aurskriður í suðurhluta Brasilíu. Tugir þúsunda hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Sumarlokanir hjá SÁÁ eru óhjákvæmilegar vegna sumarleyfa starfsfólks og eldri samninga við ríkið. Það er tími til kominn að endurskipuleggja starfsemina segir formaður samtakanna.
N-listI nýrrar sýnar hlaut meirihluta í kosningum til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Íbúi á níræðisaldri gekk sextán kílómetra leið á kjörstað til að mótmæla virkjunaráformum í friðlandi í Vatnsfirði.
Rúnar Róberts í huggulegum helgargír og spyr hvernig var helgin og hvernig verður vikan framundan?
Við heyrðum topplagið í Bandaríkjunum á þessum degi, 5. maí árið 1983, sem var lagið Beat it með Michael Jackson. Eitís plata vikunnar var So frá 1986 með Peter Gabriel. Nýjan ellismell vikunnar áttu New kids on the block með lagið Kids. Þá var Eitís 12 tomma vikunnar lagið In the air tonight (Ben Liebrand extended version) með Phil Collins.
Lagalisti:
14:00
Grafrík - Já Ég Get Það
The Human League - Human
Pet Shop Boys - Dancing star
Michael Jackson - Beat It (Topplagið í USA 1983)
GDRN - Háspenna
Stuðmenn - Vor fyrir vestan
TEARS FOR FEARS - Everybody Wants To Rule The World
The Pretenders - Brass In Pocket
Abba - The name of the game
Phil Collins - In the air tonight (Ben Liebrand extended verstion)(Tólf tomma vikunnar)
Sverrir Stormsker og Bubbi Morthens - Þórður
Sniglabandið - Selfoss er
15:00
Sálin hans Jóns míns - Hvar Er Draumurinn?
Culture Club - Do You Really Want To Hurt Me?
Peter Gabriel - Sledgehammer (Eitís plata vikunnar)
Peter Gabriel - In your eyes (Eitís plata vikunnar)
Magnús Þór Sigmundsson - Blue jean queen (Endurhljóðblöndun 2024)
O.M.D. - Enola Gay
David Bowie - The Jean Genie (5. maí 1973 í tónlistarsögunni)
Una Torfadóttir - Fyrrverandi
New Kids on the Block - Kids (Nýr ellismellur)
Madness - Night Boat to Cairo
Laid Back - Sunshine reggae
The Smiths - Please, please, please let me get what I want
Judas Priest - Breaking the law
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 28. apríl - 5. maí 2024.
Fréttastofa RÚV.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Hamingjan er hjá Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar, Bjartmar og Bergrisarnir fara í gallann með Allan en Moses Hightower býr til börn í bílalest út úr bænum. Ellen Kristjáns og Pétur Ben liggja dreymandi á ströndinni, Hera Björk talar tungum, Biggi Bix er eldfimur, Rúnar Þóris stendur upp og Björgvin Halldórs heldur áfram að syngja dúetta. Apparat Organ Quartet semur lag um flugvélafarangur, Sóley Stefáns finnur blá lauf á leikhúseyju og Klassart syngur um gamla grafreitinn. Of Monsters & Men tekur Músíktilraunir með trompi, Agent Fresco sendir frá sér langþráða breiðskífu og Seabear kveikir eld á köldu sumri.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í 41. þættinum, í fyrsta hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2010, eru Jónas Sigurðsson, Bjartmar Guðlaugsson, Birkir Rafn Gíslason, Ellen Kristjánsdóttir, Pétur Hallgrímsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Björgvin Halldórsson, Rúnar Þórisson, Steingrímur Teague, Andri Ólafsson, Jón Gnarr, Sindri Már Sigfússon, Sóley Stefánsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Hörður Bragason, Úlfur Eldjárn, Sighvatur Ómar Kristinsson, Arnar Geir Ómarsson, Þórarinn Guðnason, Arnór Dan Arnarson og Fríða Dís Guðmundsdóttir.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
Jónas Sigurðsson - Diskótek djöfulsins
Jónas Sigurðsson - Hamingjan er hér
Jónas Sigurðsson - Skuldaólin
Jónas Sigurðsson - Hleypið út úr þessu partýi
Jónas Sigurðsson - Rangur maður (Live á Bræðslunni)
Ummi - Ef þú þekkir mig ekki
Bjartmar & Bergrisarnir - Í gallann Allann
Bjartmar & Bergrisarnir - Konan á allt
Bjartmar & Bergrisarnir - Negril
Ellen Kristjánsdóttir - Dreams
Ellen Kristjánsdóttir - The Beach
Of Monsters & Men - Phantom (Live Músíktilraunir)
Of Monsters & Men - Love Love Love (Live Músíktilraunir)
Of Monsters & Men - Little Talks (iTunes 2010 útgáfan)
Of Monsters & Men - Little Talks (Live KEXP)
Björgvin Halldórsson & Karl Henry - This is Goodbye
Björgvin Halldórsson & Mugison - Minning
Biggi Bix - Oh My, oh My
Biggi Bix - Situation
Rúnar Þórisson - Stand up
Rúnar Þórisson - When I was
Moses Hightower - Búum til Börn
Moses Hightower - Vandratað
Moses Hightower - Alltígóðulagi
Moses Hightower - Moses Hightower
Moses Hightower - Mister Know It All (Stúdíó 12)
Moses Hightower - Bílalest úr bænum
Besti flokkurinn - Við erum best!
Seabear - I’ll Build You A Fire
Seabear - Cold Summer
Sóley - Theater Island
Sóley - Blue Leaves
Jógvan Hansen - One More Day
Hera Björk - Je ne sais quoi
Apparat Organ Quartet - Babbage
Apparat Organ Quartet - Cargo Frakt
Benni Hemmi Hemm - Við við til til
Útidúr - Fisherman Friend
Amiina - What We Are Waiting For
Benny Crespo’s Gang - Night Time
Agent Fresco - Silhouette Palette
Agent Fresco - Eyes Of A Cloud Catcher
Agent Fresco - A Long Time Listening
Klassart - Þangað til það tekst
Klassart - Gamli grafreiturinn