Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 19. febrúar 2017: Við förum við á rúntinn og tölum við fólk um rall og akstur. Systkinin Ásta og Daníel Sigurðarbörn segja frá ást sinni á hestöflum og hraða. Hallgrímur Ólafsson rifjar upp rúntinn á Akranesi og við pöntum bíl frá Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri. Það er Gylfi Ásmundsson sem segir okkur frá þrjátíu ára starfsferli sem leigubílsstjóri.
Dagskrárgerð: Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir

frá Veðurstofu Íslands.
Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar.
Þau varðveita úr honum annan lærlegginn í lítilli glerkistu undir bókaskáp, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. En ein er sú vá sem enginn gat séð fyrir…
Þjóðsögur, flókin fjölskyldusambönd og erfðir mætast í þremur þáttum úr smiðju Önnu Marsibil Clausen þar sem uppljóstrað er um rúmlega 70 ára gamalt leyndarmál.
Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni?
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Magnús Árni Skjöld Magnússon prófessor í stjórnmálafræði og formaður Evrópuhreyfingarinnar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður VG og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Þau ræddu meðal annars efnahagsmál, Evrópusambandsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Tónlist héðan og þaðan
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þátturinn í dag er afmælisþáttur en nú eru Heimskviðuþættirnir orðnir 250. Í tilefni dagsins segjum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en gröfum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjöllum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna. Það og margt fleira kemur í ljós í þættinum.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Þorsteinn Úlfar Björnsson átti alltaf flókið samband við föður sinn, sem glímdi við mikla áfengisfíkn. Snemma árs 2025, tæplega 19 árum eftir að pabbi hans dó, fékk hann svo fréttir sem breyttu sýn hans á föður sinn varanlega.
Umsjón: Oddur Freyr Þorsteinsson
Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor, verður gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar og ræðir hugmyndina um jafnrétti.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanlega þegar Mersault er staddur á strönd um miðbik sögunnar þar sem hann gengur fram á ungan Araba sem liggur á ströndinni og endar á að drepa hann. Í síðari hluta verksins eru atburðir fyrri hlutans endursagðir og túlkaðir af vitnum og lögmönnum í yfirheyrslum og réttarhöldum og að lokum er dauðadómur kveðinn yfir Meursault. Allt þetta er enn í gegnum sjónvarhorn hans og er nokkuð ljóst að þessi undarlega, passíva persóna finnur ekki til eftirsjár. Hann finnur í raun ekki mikið og er holdgervingur hins absúrdíska ástands sem var Camus svo hugleikið. Inn í þetta fléttast líka flókin menningarátök milli nýlenduherranna Frakka og heimamanna, Arabanna í Alsír.
Viðmælendur: Ásdís Rósa Magnúsdóttir og Toby Wikström.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Freysteinn Gíslason kontrabassaleikari og tónsmiður hefur gefið út fjórar sólóplötur undanfarin fimm ár.
Hann ræðir við Pétur Grétarsson um hvernig hann fótar sig í tónlistarlífinu og hvað þarf að gera til að koma tónlist sinni á framfæri.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Freystein:
Thoghts
To Somewhere
Ósköpuður
Í allar áttin en samt bara eina
Lisboa
Freysteinn Gísalson - kontrabassi
Hilmar Jensson - gítar
Óskar Kjartansson - trommur
Helgi R Heiðarsson - tenórsax

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Dave Grusin og félagar leika nokkur lög úr smiðju Dukes Ellingtons: Sophisticated Lady, Satin Doll, Caravan, Cotton Tail, Things Ain't What They Used To Be, C-Jam Blues og Just Squeeze Me (But Don't Tease Me). Katrine Madsen og kvintett flytja lögin In A Sentimental Mood, Save Your Love For me, Close To You, The Very Thought Of You, Angel Eyes, Once Upon A Summertime og And I Love Her. Tríó píanóleikarans Jason Rebello flytur lögin Compared To What, Heartless Monster, Dolphin Dance, Beautiful Day, It's At Times Like These og Wait And See.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Um það er engum blöðum að fletta að orðatiltækjum er oft slegið saman. Útkoman getur orðið skondin eins og þegar orðatiltækjunum koma eins og þjófur að nóttu og koma eins og þruma úr heiðskíru lofti er slegið saman svo til verður orðatiltækið að koma eins og þjófur úr heiðskíru lofti.
Í þættinum er útskýrt hvað orðatiltæki eru, þau rædd og ruglað saman í þættinum.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Efni Sagnaslóðar Jóns Ormars er áfram úr bókinni ,,Frá Hlíðarhúsum til Bjarmalands" eftir Hendrik Ottósson.
Nú segir frá fábreyttu lífi alþýðunnar í Reykjavík á fyrstu árum 20. aldar og frá fjörunni og höfninni en það sem áður var leikvangur
barna er nú komið undir steinsteypu og malbik.
Lesari með umsjónarmanni er Sigríður Kristín Jónsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Harmonikutónlist er í forgrunni í þessum þætti.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Magnús Árni Skjöld Magnússon prófessor í stjórnmálafræði og formaður Evrópuhreyfingarinnar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður VG og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Þau ræddu meðal annars efnahagsmál, Evrópusambandsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Þjóðskrá hefur verið að koma mjög vel út úr könnunum á ánægju starfsfólks og verið meðal stofnana ársins undanfarin ár. Forstjórinn Hildur Ragnars kom í Fimmu, ræddi starfið og einnig fimm upplifanir sem breyttu lífi hennar. Hún var starfandi lyfjafræðingur en ákvað að söðla um og tók við Þjóðskrá með þessum fína árangri.
Svo kíkjum við á tónlist sem tengist deginum
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Gísli Marteinn og Sandra Barilli spila góða tónlist og spjalla við Ebbu Katrínu Finnsdóttur leikkonu
PÁLMI GUNNARSSON - Hvers vegna varst'ekki kyrr?.
TODMOBILE - Stelpurokk.
ÍRAFÁR - Allt Sem Ég Sé.
Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.
Alorian - Týnda kynslóðin.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
BUBBI MORTHENS OG DAS KAPITAL - Blindsker.
Lúpína - The Rain goes up.
Cyber - Arena.
T.A.T.U. - All the things she said.
Una Torfadóttir, CeaseTone - Þurfum ekki neitt.
MY MARIANNE & WILL FERRELL - Husavik (My Hometown).
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Helgarútgáfan rúllaði af stað að venju eftir hádegisfréttir. Meðmælasúpu dagsins kokkuðu hjónin og grænkerarnir Eldar Ástþórsson markaðsstjóri Faxaflóahafna og Eva Einarsdóttir sérfræðingur hjá Rannís og súpan hefur sjaldan verið jafn innihaldsrík. Við ræddum um Stockfish kvikmyndahátíðina, heimildarmynd Lois Theroux sem kallast Inside the Manosphere, Krúa Síam á Akureyri, Garg bókabúð í Vesturbæ Reykjavíkur, tónlistarkonuna Sherelle og margt margt fleira.
Við skoðuðum menningu helgarinnar og hringdum í Ásu Hauksdóttur frá Músiktilraunum sem hófust í gær.
Það er víða hvít jörð, bláar tölur í kortunum, gular viðvaranir, rauð flögg í verðbólgu og stýrivöxtum og því full ástæða til að spila alls konar litalög. Auk þess er 21. mars alþjóðlegur dagur Downs heilkennis og við klæðumst öll mislitum sokkum í dag! Því var lagavalið afar litskrúðugt eins og má sjá:
Frá kl. 12:45
KLÍKAN & ÞORGEIR ÁSTVALDSSON - Fjólublátt ljós við barinn
PRINCE - Little Red Corvette
FELDBERG - Don't Be A Stranger
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Græna byltingin
FRIÐRIK DÓR - Bleikur og blár
THE PRETENDERS - Brass In Pocket
ÁRNÝ MARGRÉT - Hakk og spaghettí
NEW ORDER - Blue Monday 88
Frá kl. 14:05
DRAUMFARIR - Ást við fyrstu seen
BLOOD ORANGE - Charcoal Baby
PÁLL ÓSKAR OG BENNI HEMM - Eitt af blómunum
HELGI BJÖRNS & VESTURFARARNIR - Þú gerir ekki rassgat einn
TALKING HEADS - And she was
JÚNÍUS MEYVANT - Color Decay
GILDRAN - Mærin
Of Monsters and Men - Ordinary Creature
BAGGALÚTUR - Bildudals grænar baunir.
Frá kl. 15:05
S.H.DRAUMUR - Öxnadalsheiði
KÖTT GRÁ PJÉ, FONETIK SYMBOL, BENNI HEMM HEMM - Hvít ský
FINE YOUNG CANNIBALS - Blue
GEIRI SÆM OG HUNANGSTUNGLIÐ - Rauður bíll
MADONNA - True blue
COLDPLAY - Yellow
KRISTÍN LILLIENDAHL - Ég ætla að mála allan heiminn, elsku mamma
SOUNDGARDEN - Black Hole Sun
JACOB ALON - Don't Fall Asleep
ALANNAH MYLES - Black Velvet
UB40 - Red Red Wine
CYNDI LAUPER - True Colors
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Hólm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Í þætti dagsins var farið yfir lögin sem sitja í 30 - 11. sæti og topp tíu listinn tekinn í gegn.
Þær líta í baksýnisspegilinn og fara 10 og 63 ár aftur í tímann, rifja upp velgengni Of Monsters and men og fyrstu plötu Bítlana. Þær kíkja í Spákúluna, Ragga rifjar upp vandræðalegt atvik frá Íslensku tónlistarverðlaununum og Vilborg segir frá leyndum hæfileika.
Lagalisti :
Bubbi & Friðrik Dór - Hún
TÁR - Fucking Run Like Hell
Laufey - Silver Lining
Alex Warren - Fever Dream
Portugal. The Man - Tanana
The Cribs - Never the same
Baksýnisspegilinn : Of monsters and men - Wolves without teeth
Noah Kahan - The great Divide
Krummi - Smile Till It Ends
Addison Rae - Headphones On
Perrie - Woman In Love
Baksýnisspegillinn :Twist and Shout - The Beatles
Spákúlan : Noah Kahan - Porch Light
TOPP tíu listinn
10. Ásgeir - Against The Current
9. Friðrik Dór - Þessi Kjóll
8. JJerome87 - Brush Me Like A Horse
7. Valdimar - Tenerife
6. sombr - Homewrecker
5. Izleifur feat. Elín Hall - Hugsa Alltof Mikið Um Þig
4. Vance Joy - Fascination in the Dark
3. U2 - Song Of The Future
2. Snorri Helgason feat. BRÍET - Mexico
1. Olivia Dean - Nice To Each Other

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er leikarinn Hannes Óli (e)

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.