Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Verðbólga hér á landi mælist nú 5,2 prósent, og óðum styttist í ágúst, en ef verðbólgan þá verður yfir 4,7 prósent teljast forsendur kjarasamninga brostnar og heimild verður til þess að segja þeim upp. Við ræddum um efnahagsmál og verðbólguna við Róbert Farestveit hagfræðing hjá ASÍ.
Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi um hitabylgjuna miklu á meginlandi Evrópu, enda stærsta fréttin í Evrópumálum síðustu daga. Hann ræddi líka um stjórnmál í Serbíu og á Ítalíu svo eitthvað sé nefnt.
32 liða úrslit eru hafin á Heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Fyrir mótið var mikið fjallað um peningahliðina - kostnað fyrir aðdáendur og aðsókn á mótið - og líka um þá ákvörðun að fjölga liðunum í 48. Hvernig hefur þetta verið í raun, eftir að mótið fór af stað? Björn Berg Gunnarsson fjármála- og fótboltasérfræðingur, fór yfir það.
Tónlist:
Nina Simone - I wish I knew how it would feel to be free.
Nina Simone - Love o' love.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög frá ýmsum tímum sem hafa verið sungin við ljóð austfirska skáldsins og bóndans Pál Ólafssonar. Ólafur Þórarinsson syngur Sumarkveðju, Ingibjörg Þorbergs og Smárakvartettinn í Reykjavík syngja Hríslan og lækurinn, Tendra flytur Lóan er komin, Felix Bergsson og Valgerður Guðnadóttir syngja Ég skal kveða og kveða nóg, Ragnheiður Ólafsdóttir syngur Sæll var ég þá, Klara Ósk Elíasdóttir syngur Sofðu blessað barnið mitt, Óskar Pétursson syngur lag við ljóð sem heitir Döggin, Melchior flytja lag við ljóð sem heitir Þögul nóttin, Ösp Eldjárn syngur um Ástarnetið og Þórarinn Hjartarson og Ragnheiður Ólafsdóttir slá botninn með lagi við ljóð Páls sem heitir Ellin. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í dag fór fyrsti þáttur Sumarmála í loftið þetta sumarið.
Fugl dagsins verður auðvitað á sínum stað í sumar og við verðum með fasta liði sem hlustendur kannast við frá því í Sumarmálum síðustu ár. Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistargúrú talar um gildi þess að vera úti í náttúrunni og bendir okkur á áhugaverða staði fyrir útiveru. Hinrik Wöhler verður aftur með bæjarperlur þar sem hann heimsækir bæjarfélög á landinu og spjallar við fólk. Elísabet Thea Kristjánsdóttir ætlar að bjóða okkur upp á það sem við köllum Jeppar á fjalli, um íslenska jeppamenningu, safn vikunnar verður á sínum stað og við heyrum ferðasögur svo eitthvað sé nefnt.
Í þættinum í dag sögðum við frá áhugaverðri dagskrá í borginni sem verður borgarbúum endurgjaldslaus en markmiðið er að styðja við einstaklinga og fjölskyldur til aukinnar lífsorku, leik og gleði. Þau sem koma að þessu hafa margvíslega reynslu, m.a. kennslu tengda leiklist, Qigong lífsorkuæfingum, hugleiðslu og öðrum aðferðum sem losa um spennu og auka styrk. Þorvaldur Ingi Jónsson og Eggert Kaaber komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu.
Safn vikunnar hefur verið hluti af Sumarmálum undanfarin ár og verður áfram í sumar á mánudögum. Það er Minjasafnið á Akureyri sem reiðr á vaðið í dag. Við heyrðum í Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra í beinni útsendingu að norðan. Þar á bæ er sýning um hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði og sýning af elstu kortum af Íslandi sem Haraldur sagði okkur meira af í þættinum.
Tónlistin í þættinum:
Fuglinn þinn / Stefán Hilmarsson (Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir (Raven) og Stefán Hilmarsson)
Missisippi / Cactus Blossoms (Torey)
Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
Toss the feathers / Slitnir strengir (Höf ókunnur)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Fullt af spurningum, fullt af svörum!
Krakkar á öllum aldri spyrja spurninga um allt milli himins og jarðar og sérfræðingar svara.
Er eitthvað sem þig langar til að vita? Taktu upp spurninguna þína, mundu eftir að segja okkur nafnið þitt og aldurinn (þarf ekki að vera fullt nafn) og sendu í tölvupósti á [email protected].
Umsjón: Hera Guðmundsdóttir.
Nói, 10 ára, spyr hvað myndi gerast ef geitungar og vespur væru ekki til. En hvað gera geitungar og vespur fyrir vistkerfið? Brynja Hrafnkelsdóttir skordýrafræðingur svarar.
Útvarpsfréttir.
Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur ekki haft uppi á hvalveiðiskipum Hvals og ekki er vitað hvert leið þess liggur. Varðskip gæslunnar fylgir Bandero eftir vestur af landinu.
Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi olíuskort í fyrsta sinn í gær . Úkraínumenn hafa gert miklar árásir á olíuinnviði Rússlands - síðast í gær.
Yfirmaður konu sem fannst látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra tók ekki eftir neinum breytingum í fari hennar fyrir Íslandsferðina. Aðalmeðferð málsins stendur enn.
Eftir að slökkt var á 2G og 3G (tvö gé og þrjú gé) sendum landsins eru um hundrað og tuttugu þúsund ökutæki sem geta ekki hringt sjálfvirk neyðarsímtöl. Óvíst hvort hægt sé að uppfæra kerfi bílana og ef það er hægt hleypur kostnaður á hundruðum þúsunda.
Fjármálaráðuneytið telur netverslun með áfengi ólöglega. Niðurstöðu fyrir dómstólum er beðið.
Kanada gæti tekið þátt í Eurovision á næsta ári. Ríkisútvarp landsins hefur fengið aðild að Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva.
Eina fæðingardeildin á Austurlandi verður lokuð í rúmar fimm vikur í sumar. Starfandi forstjóri heilbrigðisstofnunar Austurlands að lokunin sé nauðsinleg vegna endurbóta á húsnæði.
Liðsmenn Kanada halda áfram að slá met á HM í fótbolta. Liðið varð fyrsta gestgjafaþjóðin á HM til að leika utan landsteina sinna.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef samruninn gengur eftir verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100.
Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhugðuðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfestingarfélagið Stoðir er einn stærsti hluthafi beggja þessara fyrirtækja. Stoðir eru langstærsti hluthafi Arctic Adventures með tæplega 42 prósenta hlut og fyrirtækið er þriðji stærsti hluthafi Bláa lónsins með 7,3 prósenta hlut.
Fjallað er um stærð Stoða í íslensku viðskiptalífi í dag og er saga félagsins rifjuð upp. Rætt er við fjármálagreinandann Snorra Jakobsson og Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Hvíld, lag eftir Huga Guðmundsson við ljóð eftir Snorra Hjartarson. Samið fyrir kammerkórinn Hljómeyki, til minningar um Halldór Vilhelmsson söngvara og félaga í kórnum. Þorvaldur Örn Davíðsson útsetti fyrir stúlknakór. Graduale Nobili syngur undir stjórn Þorvalds Arnar Davíðssonar. Útgefið á plötunni Vökuró árið 2022.
Masques op. 34 eftir Karol Szymanowski.
Þættir verksins eru:
Nr. 1 Shéhérazade : Lento assai. Languido
Nr. 2. Tantris le Bouff on : Vivace assai
No. 3. Sérénade de Don Juan : Vivace
Flytjandi: Krystian Zimerman, píanó
Upptökur fóru fram Tónleikasal Tívolí í Kaupmannahöfn, í maí 1994.
Quartetto Primo í F-dúr, op. 64, no.1, G. 248 eftir Luigi Boccherini. Skálholtskvartettinn leikur, en hann er svo skipaður: Jaap Schröder, 1. fiðla ; Rut Ingólfsdóttir, 2. fiðla ; Svava Bernharðsdóttir, víóla ; Sigurður Halldórsson, selló
Þættirnir verksins eru:
I. Allegro Molto
II. Adagio
III. Allegro
Hljóðritað í Skálholti 8. og 9. ágúst 2005 í samvinnu við Sumartónleika í Skálholti.
Útgefið á plötunni Luigi Boccherini - Jaap Schröder í Skálholti - 100 ára minning árið 2025.
Vögguljóð eftir Sigurð Þórðarson, ljóðið orti Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson. Hljóðritun gerð á vegum Ríkisútvarpsins í hljóðveri 1, 14. febrúar 1979. Útvarpað 7. október 1984. Flytjendur: Ragnheiður Guðmundsdóttir, messósópran og Ólafur Vignir Albertsson, píanó.
Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi var velgjörðamaður listamanna á fyrrihluta tuttugustu aldar og ásamt móður sinni Unu Gísladóttur rak Unuhús, litla rauða timburhúsið í Garðastræti. Í þremur þáttum tileinkuðum Erlendi kynnumst við manninum gegnum augu vina hans, þeirra Þórbergs Þórðarsonar, Halldórs Laxness og Nínu Tryggvadóttur. Í Unuhúsi var rekið gistiheimili og voru þar haldnar kvöldvökur þar sem list, pólitík, heimsmál, heimspeki og trúmál voru rædd í þaula og má gera ráð fyrir að hafi verið skjól fyrir bæði fólk sem átti ekki í önnur hús að venda sem og róttæka hugmyndafræði. Verður sjónum einnig beint að rýminu Unuhúsi og því sem einkenndi það, sem og listinni sem var að brjótast upp á yfirborðið á þessum tíma.
Viðmælendur eru Pétur Gunnarsson, Soffía Auður Birgisdóttir, Jón Karl Helgason, Rósa Magnúsdóttir, Halldór Guðmundsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.
Umsjón hefur Sunneva Kristín Sigurðardóttir.
Nína Tryggvadóttir málari kemur í Unuhús árið 1939. Nína er nýkomin að utan og staldrar stutt við í Unuhúsi, flyst til New York 1943. Hún verður náin vinkona Erlendar og annarra listamanna í Unuhúsi og má líta á portrettverk þeirra Nínu og Louisu Matthíasdóttur sem gestabók Unuhúss þessa tíma. Róttækir málarar og skáld sem sækja Unuhús eiga undir högg að sækja fyrir hugmyndafræði sína. Nína og Erlendur verða perluvinir og má sjá ástina skína úr bréfum þeirra á milli eftir að Nína flyst út. Listin er öllu fremri.
Viðmælendur eru Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Pétur Gunnarsson rithöfundur og Jón Karl Helgason prófessor við Háskóla Íslands.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao, maracatu, marcha og frevo. Sigmar Þór Matthíasson, tónlistarmaður, er í forsvari fyrir þessa tónleika og ræðir við okkur um Hermeto.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, endar syrpu sína um íslenska ljóðlist miðalda í dag með Jóni Arasyni Hólabiskup. Jón orti um píslarsögu Krists en átti svo sjálfur eftir að upplifa að vera leiddur til aftöku.
Undir lok þáttar kynnum við okkur síðan nýja plötu frá bandaríska tónlistarmanninum Jeff Parker og IVets hans sem nefnist Happy Today.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt á tímum gervigreindar.
Við leitum svo uppi íslenska protcol-list og ræðum við aðstandendur grínfréttasíðunnar og samfélagsmiðilsins, Midillinn.com. Þetta eru listamennirnir Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius Finnsson.
Einar Már Jónsson sendir okkur svo pistil frá París um fótboltabullur, útlendingaandúð og ömmu sem var borin á kóngastól milli gatna í miðjum óeirðum.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Herskáir hirðingjar voru liðsmenn Sea Shephard samtakanna kallaðir þegar þeir komu hingað fyrir fjörutíu árum undir forystu Pauls Watsons. Menn og skip á vegum samtakanna sem hann leiðir nú eru þessa stundina vestan við land að leita að hvalbátunum og tilbúnir til að gera hvað sem þarf til að stöðva hvalveiðar, en Watson segir enga hættu steðja að áhöfnum hvalbátanna.
Jim Townsend var um áratugaskeið hátt settir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og þekkir Ísland vel. Hann ræðir hugsanlegt brotthvarf Bandaríkjahers frá Evrópu, rússnesk viðbrögð og þýðingu fyrir Ísland.
Efla þarf viðnámsþrótt Íslands gagnvart fjölþáttaógnum með því að efla stafræna innviði. Uppbygging gagnavera og aðstaða fyrir skýjaþjónustu er lykilþáttur segir formaður Samtaka gagnavera. Orkunýting og skattaumhverfi þurfi að liggja ljós fyrir.

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá ljóðatónleikum Arnheiðar Eiríksdóttur messósópransöngkonu og Helgu Bryndísar Magnúsdóttur píanóleikara sem fram fóru í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í ágúst sl.
Tónleikarnir báru yfirskriftina Franskar sumarnætur og á efnisskránni voru ljóðaflokkur Nuits d'été eftir Hector Berlioz, þekkt sönglög eftir Gabriel Fauré og aríur úr óperunum Romeó og Júlíu eftir Charles Gounod, Werther eftir Jules Massenet og Samson og Dalílu eftir Camille Saint-Saëns.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í dag fór fyrsti þáttur Sumarmála í loftið þetta sumarið.
Fugl dagsins verður auðvitað á sínum stað í sumar og við verðum með fasta liði sem hlustendur kannast við frá því í Sumarmálum síðustu ár. Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistargúrú talar um gildi þess að vera úti í náttúrunni og bendir okkur á áhugaverða staði fyrir útiveru. Hinrik Wöhler verður aftur með bæjarperlur þar sem hann heimsækir bæjarfélög á landinu og spjallar við fólk. Elísabet Thea Kristjánsdóttir ætlar að bjóða okkur upp á það sem við köllum Jeppar á fjalli, um íslenska jeppamenningu, safn vikunnar verður á sínum stað og við heyrum ferðasögur svo eitthvað sé nefnt.
Í þættinum í dag sögðum við frá áhugaverðri dagskrá í borginni sem verður borgarbúum endurgjaldslaus en markmiðið er að styðja við einstaklinga og fjölskyldur til aukinnar lífsorku, leik og gleði. Þau sem koma að þessu hafa margvíslega reynslu, m.a. kennslu tengda leiklist, Qigong lífsorkuæfingum, hugleiðslu og öðrum aðferðum sem losa um spennu og auka styrk. Þorvaldur Ingi Jónsson og Eggert Kaaber komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu.
Safn vikunnar hefur verið hluti af Sumarmálum undanfarin ár og verður áfram í sumar á mánudögum. Það er Minjasafnið á Akureyri sem reiðr á vaðið í dag. Við heyrðum í Haraldi Þór Egilssyni safnstjóra í beinni útsendingu að norðan. Þar á bæ er sýning um hernámsárin á Akureyri og Eyjafirði og sýning af elstu kortum af Íslandi sem Haraldur sagði okkur meira af í þættinum.
Tónlistin í þættinum:
Fuglinn þinn / Stefán Hilmarsson (Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir (Raven) og Stefán Hilmarsson)
Missisippi / Cactus Blossoms (Torey)
Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)
Toss the feathers / Slitnir strengir (Höf ókunnur)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt á tímum gervigreindar.
Við leitum svo uppi íslenska protcol-list og ræðum við aðstandendur grínfréttasíðunnar og samfélagsmiðilsins, Midillinn.com. Þetta eru listamennirnir Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius Finnsson.
Einar Már Jónsson sendir okkur svo pistil frá París um fótboltabullur, útlendingaandúð og ömmu sem var borin á kóngastól milli gatna í miðjum óeirðum.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Fjölmiðillinn Gímaldið birti á dögunum ítarlega úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára. Þar kemur meðal annars fram að hvergi í Evrópu sé dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana haldi áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi hreinlega brugðist. Helga Arnardóttir, nýr liðsmaður Gímaldsins, ræddi við okkur um úttektina.
Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar með ólgandi heitan mola úr heimi tækninnar.
Breiðafjarðarferjan Baldur var tekin úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í byrjun mánaðarins til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja ásamt Herjólfi. Þessi ákvörðun stjórnvalda hefur verið harðlega gagnrýnd af sveitarfélögum við Breiðafjörð. Við vorum í beinni frá Stykkishólmi og ræddum við Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóra og Ingveldi Eyþórsdóttur íbúa og Stykkishólmi og húseiganda í Flatey.
Við höldum okkur í Breiðafirðinum því kirkjan á Flatey var vígð árið 1926 og fagnar því 100 ára afmæli í ár. Þrátt fyrir ferjuleysi hafa Flateyingar skipulagt afmælisdagskrá í sumar til að fagna kirkjunni sinni. Við tókum hús á Gyðu Steinsdóttur sem hefur ásamt fleirum skipulagt aldarafmælið.

07:30

08:30

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, hefur ekki haft uppi á hvalveiðiskipum Hvals og ekki er vitað hvert leið þess liggur. Varðskip gæslunnar fylgir Bandero eftir vestur af landinu.
Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi olíuskort í fyrsta sinn í gær . Úkraínumenn hafa gert miklar árásir á olíuinnviði Rússlands - síðast í gær.
Yfirmaður konu sem fannst látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra tók ekki eftir neinum breytingum í fari hennar fyrir Íslandsferðina. Aðalmeðferð málsins stendur enn.
Eftir að slökkt var á 2G og 3G (tvö gé og þrjú gé) sendum landsins eru um hundrað og tuttugu þúsund ökutæki sem geta ekki hringt sjálfvirk neyðarsímtöl. Óvíst hvort hægt sé að uppfæra kerfi bílana og ef það er hægt hleypur kostnaður á hundruðum þúsunda.
Fjármálaráðuneytið telur netverslun með áfengi ólöglega. Niðurstöðu fyrir dómstólum er beðið.
Kanada gæti tekið þátt í Eurovision á næsta ári. Ríkisútvarp landsins hefur fengið aðild að Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva.
Eina fæðingardeildin á Austurlandi verður lokuð í rúmar fimm vikur í sumar. Starfandi forstjóri heilbrigðisstofnunar Austurlands að lokunin sé nauðsinleg vegna endurbóta á húsnæði.
Liðsmenn Kanada halda áfram að slá met á HM í fótbolta. Liðið varð fyrsta gestgjafaþjóðin á HM til að leika utan landsteina sinna.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Margrét Erla var til Popplands í dag. Ný plata vikunnar: Bíddu ha? með BKPM.
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON – Skref Fyrir Skref
Kacey Musgraves – Dry Spell
Lizzo – Juice
Birgitta Haukdal & Herra Hnetusmjör – Flugeldar (Þjóðhátíðarlag 2026)
FM Belfast – Par Avion
Ariana Grande – Hate That I Made You Love Me
Tove Lo – No One Dies From Love
10cc – Dreadlock Holiday
Noah Kahan – The Great Divide
ABBA – Take a Chance on Me
GusGus – Over
Krummi – Smile Till It Ends
St. Paul & The Broken Bones – Sushi and Coca-Cola
Árný Margrét – In a Dream
Prince – When Doves Cry
KK & Emmsjé Gauti – Þúsund fleiri ár
Stephen Sanchez – Chuck the Money
Hipsumhaps – Meðal mannsins (þjóðsöngurinn)
Nýdönsk – Alelda
Steinunn Jónsdóttir – Spóla til baka
Falco – Der Kommissar
Chappell Roan – HOT TO GO!
Greifarnir – Útihátíð
Birna Eyfjörð – Leiddu mig
Portugal. The Man – Silver Spoons
BKPM hljómsveit – Sósa
Stuðmenn & Grýlurnar – Franskar (sósa og salat)
Vance Joy – Fascination in the Dark
Nói Klose – Heyrir þú í kallinu
The White Stripes – Fell in Love with a Girl
Stefán Hilmarsson – Þrátt fyrir allt
The Pussycat Dolls – Buttons
Sigríður Beinteinsdóttir & Celebs – Þokan
GDRN – Háspenna
Laufey – Madwoman
Írafár – Stórir hringir
Ásgeir Trausti – Skýjaborg
Prins Póló – París Norðursins
Bethany Cosentino & Weezer – Go Away
MØ, DJ Snake & Major Lazer – Lean On
Taylor Swift – I Knew It I Knew You
MIKA – Relax
Tears for Fears – Mad World
Kaktus Einarsson – Glycerine
Sabrina Carpenter – When Did You Get Hot
Slayyyter – Dance
The Foundations – Build Me Up Buttercup
sombr – Potential
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.
Nú fer aleildis spenna að hlaupa í Heimsmeistaramótið í fótbolta karla. Útsláttarkeppnin hófst í gærkvöldi og framundan í vikunni eru 15 viðureignir þar sem allt verður undir, í þessari nýju 32-liða útsláttarkeppni. Til að stikla aðeins á stóru á því sem gerst hefur hingað til og horfa aðeins í það sem framundan er, komu tvíeykið Edda Sif Pálsdóttir og Einar Örn Jónsson, sem hafa verið bæði að fjalla um og lýsa leikjum hér á RÚV.
Inga Steinunn Henningsdóttir, sviðshöfundur frumsýndi nýtt leikverk á dögunum í Aftur á móti. Verkið heitir Leikritið með Ingu Steinunni og er með nýjum gesti í hvert skipti og því engar tvær sýningar eins. Hólmfríður María var á ferðinni og mælti sér mót við Ingu.
Enn geisa miklir hitar víða um Evrópu. Í þætti dagsins hringdum við til Brussel þar sem Brynja Huld Óskarsdóttir, nefndarstýra hjá NATO-þinginu og íbúi í Brussel, sagði okkur hvernig hitinn undanfarið hefur haft áhrif á daglegt líf borgarbúa.
Laxveiðin fer víst rólega af stað um allt land en vonir að hún taki að glæðast á næstu dögum og vikum. Gunnar Bender, sem heldur úti vefnum veidar.is, veit allt um málið.
Sparnaðarráð Steineyjar er nýr vikulegur liður á Hljóðvegi 1 þar sem Steiney hjálpar hlustendum að spara. Þema dagsins voru sparnaðarráð í fríum erlendis.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Herskáir hirðingjar voru liðsmenn Sea Shephard samtakanna kallaðir þegar þeir komu hingað fyrir fjörutíu árum undir forystu Pauls Watsons. Menn og skip á vegum samtakanna sem hann leiðir nú eru þessa stundina vestan við land að leita að hvalbátunum og tilbúnir til að gera hvað sem þarf til að stöðva hvalveiðar, en Watson segir enga hættu steðja að áhöfnum hvalbátanna.
Jim Townsend var um áratugaskeið hátt settir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og þekkir Ísland vel. Hann ræðir hugsanlegt brotthvarf Bandaríkjahers frá Evrópu, rússnesk viðbrögð og þýðingu fyrir Ísland.
Efla þarf viðnámsþrótt Íslands gagnvart fjölþáttaógnum með því að efla stafræna innviði. Uppbygging gagnavera og aðstaða fyrir skýjaþjónustu er lykilþáttur segir formaður Samtaka gagnavera. Orkunýting og skattaumhverfi þurfi að liggja ljós fyrir.
Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.
Í hit(t) & Þetta heyrist hitt og þetta milli frétta og í þætti kvöldsins bergjum við á nýju víni úr eldri belgjum, en ekki eingöngu
Greifarnir / Eilíft sumar
Paul McCartney / We two
Willie Nelson / Dream chaser
Falin Gjóður / Gölturinn Gabríel
Frank Zappa / I have been in you
Franki Valli / Grease
The Strokes / Falling out of love

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Nói Klose - Heyrir þú í kallinu.
Eels - That look you give that guy.
Kristmundur Axel, Friðrik Dór Jónsson - 1800 mílur.
Beatles, The - Now and Then.
Cigarettes After Sex - Twizzler.
Huginn, Þormóður, Úlfur Úlfur Hljómsveit - Meira.
Ye, Hill, Lauryn - I Can't Wait (Clean).
Nelly - Hot in here.
Public Enemy - State Of The Union (STFU) (Lyrics!).
Quarashi - Do it again.
Marsibil - Allir slakir.
Style Council, The - Long hot summer.
Dominic Fike - Babydoll.
Vince Staples- Cotton
White, Jack - Dollar Bill.
AC/DC - Touch Too Much.
Brothers Osborne - Runnin' Down A Dream.
Dark Clouds, The, Johnny Blue Skies - Situation.
Malen Áskelsdóttir - Ready Now.
Swift, Taylor - I Knew It I Knew You.
Hipsumhaps - Meðal mannsins (þjóðsöngurinn).
Queens of the Stone Age - Little sister.
Spacestation - Eiturgrá Skóda.
Rolling Stones, The, Fatboy Slim - Satisfaction Skank.
Kneecap, Casiokids - FENIAN
Groove Armada - I see you baby.
KETTAMA - Comes and Goes.
Ásgeir Trausti - Skýjaborg.
AIR - Playground Love.
Aldous Harding, Hawkline, H. - Venus in the Zinnia.
Barði Jóhannsson, d'Ant - Staring at Nothing.
This is Lorelei - Billy Came Back.
BLUR - Ong Ong.
Kaktus Einarsson - Glycerine.
Slow Pulp - Better Man
Moses Hightower - Húsið mitt.
Ol' Dirty Bastard, Kelis - Got your money.
Steinunn Jónsdóttir - Spóla til baka.
October London - Silent Treatment
Snoop Dog, Chaka Khan - Boogie's in my Soul
Madonna - Love Sensation
Spiller - Groovejet
Slayyyter - Old Technology
Channel Tres - Black Techno

Tónlist að hætti hússins.