07:03
Morgunvaktin
Verðbólga, hitabylgja og fótbolti

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Verðbólga hér á landi mælist nú 5,2 prósent, og óðum styttist í ágúst, en ef verðbólgan þá verður yfir 4,7 prósent teljast forsendur kjarasamninga brostnar og heimild verður til þess að segja þeim upp. Við ræddum um efnahagsmál og verðbólguna við Róbert Farestveit hagfræðing hjá ASÍ.

Björn Malmquist fréttamaður í Brussel ræddi um hitabylgjuna miklu á meginlandi Evrópu, enda stærsta fréttin í Evrópumálum síðustu daga. Hann ræddi líka um stjórnmál í Serbíu og á Ítalíu svo eitthvað sé nefnt.

32 liða úrslit eru hafin á Heimsmeistaramóti karla í fótbolta. Fyrir mótið var mikið fjallað um peningahliðina - kostnað fyrir aðdáendur og aðsókn á mótið - og líka um þá ákvörðun að fjölga liðunum í 48. Hvernig hefur þetta verið í raun, eftir að mótið fór af stað? Björn Berg Gunnarsson fjármála- og fótboltasérfræðingur, fór yfir það.

Tónlist:

Nina Simone - I wish I knew how it would feel to be free.

Nina Simone - Love o' love.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,