16:05
Síðdegisútvarpið
Óvissa um framtíð Markar, gagnrýni á Kennarasambandið og spjall við íbúa í Vestmannaeyjum og Norðurþingi

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Gróðrarstöðin Mörk hefur starfað í Fossvogsdalnum í um 60 ár. Nú stefnir í að starfsemin víki fyrir uppbyggingu aðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Víking. Mikil viðbrögð hafa orðið hjá velunnurum stöðvarinnar og settur hefur verið í loftið undirskriftalisti henni til stuðnings. Þar er skorað á Reykjavíkurborg að falla frá áformum sínum um að hrekja fyrirtækið úr Stjörnugrófinni. Guðmundur Vernharðsson, garðyrkjufræðingur og eigandi Markar, kom til okkar.

Á dögunum var haldin Vörumessa Ungra frumkvöðla í Smáralind. Á Vörumessunni kynntu um 620 nemendur frá 18 framhaldskólum nýsköpun sína. Meðal þeirra voru þrír eldhugar. Verkefni þeirra snérist um að nýta þorskroð, sem annars væri hent, og þróa það í stökkt og próteinríkt snakk. Þremenningarnir hlutu verðlaunin fyrir vöruna sem þau kalla HafBit og hlutu titilinn „besti sjó-bissnessinn“. Þau Deimantas Zelvys, Guðrún Rós Bjarnadóttir og Vilhelm Ari Hólmarsson sögðu okkur af verkefninu.

Oddvitaumræðurnar halda áfram í kvöld. Oddvitar listanna í Vestmannaeyjum annars vegar og Norðurþingi hins vegar mætast bæði á Rás 2 og Rúv 2. Venju samkvæmt heyrðum við í íbúum sveitarfélaganna en á línunni voru Sólrún Erla Gunnarsdóttir félagsráðgjafi frá Vestmannaeyjum og Örlygur Hnefill Örlygsson frá Húsavík.

Hernám bandamanna á Íslandi stóran hluta síðari heimsstyrjaldarinnar, fyrst og fremst til að verjast hugsanlegri innrás Þjóðverja, hefur verið ítarlega skrásett. En stundum erum við með minjar frá þeim tíma fyrir framan nefið á okkur án þess að átta okkur á því. Í Fossvogskirkjugarði eru t.d. um 199 grafir sem geyma breska hermenn. Gísli Jökull Gíslason, leiðsögumaður, býður uppá fræðagöngu um Fossvogskirkjugarð á föstudag en 8. maí er lokum seinni heimstyrjaldarinnar 1945 fagnað víða. Gísli kom til okkar.

Djúp gjá hefur myndast á milli þeirra sem auglýsa sig sem málsvara íslenskrar menntunar og þeirra sem starfa á gólfinu. Þetta er mat Andra Þorvarðarsonar framhaldsskólakennara. Í harðorðri grein sem hann ritaði á Vísi í gær segir hann yfirhylmingu menntaforystunnar á vanköntum skólakerfisins farin að valda gífurlegu tjóni. Við ræddum við Andra um málið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,