23:10
Lestin
Gelluteknó, vanlíðan og bæld reiði

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Við heyrum um viðburðinn Bratzgat - sem er nýtt samsett orð, Bratz (eins og dúkkurnar) og gat - rassgat. Ísabella Lena og Lára kalla sig Fonky Events, og hafa það eina og háleita markmið að halda góð partý. Á föstudaginn mun Fonky Events taka yfir Lækjargötu 6A og stemmingin verður Bratzgat.

Í dag hóf HönnunarMars göngu sína, Sandra Rós Björnsdóttir er ein af þeim sem taka þátt, verkið hennar er á auglýsingaskilti fyrir framan Tjarnarbíó. Hera Guðmundsdóttir hitti hana fyrir hönd Lestarinnar og ræddi við hana um bælda reiði, sem verkin hennar á HönnunarMars fjalla um.

Eiríkur Örn Norðdahl man þegar búðarstarfsfólk fór að brosa. Í dag fáum við pistil frá honum um vanlíðan.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,