07:03
Morgunvaktin
Spilling, dómstóll götunnar og Sjálfstætt fólk á spænsku

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Fjallað var um spillingu og varnir gegn henni. Eiríkur Hjálmarsson valdist á dögunum til formennsku í Gagnsæi - það er Íslandsdeild alþjóðlegu Transparency samtakanna. Ástandið hér, hvað spillingu áhrærir, er bærilegt samkvæmt nýlegri úttekt en Eiríkur fór yfir stöðuna og hvað þarf til að laga hana.

Þórhildur Ólafsdóttir sagði frá herþotum sem fljúga yfir Kampala í Úganda þessa dagana, og frá uppskeru í garðinum. En meginefnið var dómstóll götunnar. Hún hefur sagt okkur frá spillingu í löggæslu og dómskerfi í landinu og talaði nú um það hvað samfélagið gerir þegar það hefur ekkert upp á sig að blanda þessum kerfum í málin.

Svo var fjallað um Halldór Laxness, eða öllu heldur útgáfu nýrrar þýðingar á Sjálfstæðu fólki á spænsku. Kristinn R. Ólafsson tók þátt í pallborðsumræðum um verkið í Madríd á dögunum, við spjölluðum við hann.

Tónlist:

Ólöf Arnalds - Tár í morgunsárið.

Una Stefánsdóttir, Stefán S. Stefánsson - Loforð.

Julio Iglesias - Baila morena.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,