Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Um 5.000 einstaklingar bíða eftir ADHD-greiningu á Íslandi, þar af um 1.800 börn. Biðtími eftir greiningu og þjónustu lengist og í ályktun sem var samþykkt á aðalfundi ADHD-samtakanna á dögunum kemur fram að staðan sé óásættanlegt með öllu og bendi til alvarlegs kerfislægs vanda. Þá kemur fram að staða barna sé sérstaklega viðkvæm og að þörf sé á tafarlausum aðgerðum á þeirra mikilvægasta vaxtarskeiði. Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD-samtakanna, kom til okkar en samtökin kalla eftir skýrri, tímasettri og raunhæfri áætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um úrbætur í málefnum fólks með ADHD.
Nú styttist í að sumarfríin detti inn af fullum þunga og þá reynir á skipulagshæfileika foreldra unga barna. Nú þarf að finna eitthvað að gera fyrir börnin ásamt því að sjá til þess að þau lesi, skrifi, næri sig vel og sofi. Þetta er alvöru verkefni og við fengum til okkar Jasmín Guðrún Abú Libde og báðum hana um góð ráð fyrir foreldra í brimróti sumarfrísins.
Guðni Th. Jóhannesson situr ekki auðum höndum eftir að hann lét af embætti forseta Íslands og ætlar á föstudaginn að fjalla um hvort ljúga megi upp á fólk í skáldskap í erindi á Heimi bókmenntanna, bókmenntaþingi í Eddu. Erindið kallast: „Má ljúga upp á fólk? Mörk hins leyfilega í skáldskap frá sjónarhóli sagnfræðings og hugsanlegrar söguhetju“ og Guðni kom til okkar og sagði okkur frá því.
Hvað þarf að breytast til að við getum tryggt heitt vatn í dag og til framtíðar? Álag á nauðsynleg kerfi eykst þegar fólki fjölgar og undanfarið höfum við rekið okkur á að til dæmis kuldaköst hafi áhrif á opnunartíma sundlauga. Brynja Ragnarsdóttir frá Veitum flytur erindi um hvernig unnið er að nauðsynlegri uppbyggingu á kerfinu okkar á meðan fólki fjölgar og byggð þéttist á Fagþingi veitu- og orkugeirans í Hljómahöll í Reykjanesbæ um helgina. Á þinginu koma saman sérfræðingar, fyrirtæki og hagsmunaaðilar til að ræða þróun og áskoranir í hita-, vatns- og fráveitumálum. Dagskráin er fjölbreytt og inniheldur fjölda erinda og málstofa þar sem fjallað verður um nýjar lausnir og tækni í greininni. Brynja kíkti í Morgunútvarpið.
