18:00
Kvöldfréttir útvarps
Formaður VR sakar stjórnvöld um andvaraleysi, breytingar á bráðamóttöku og snjófljóðahætta fyrir austan

Fréttir

Fréttir

Formaður VR segir stjórnvöld þurfa að íhuga alvarlega að veita tímabundnar skattaundanþágur á eldsneyti til að draga úr verðbólguáhrifum. Forsendur kjarasamninga bresti líklega í haust.

Gjörbylta á flokkun og móttöku sjúklinga á bráðamóttökunni í Fossvogi til að koma í veg fyrir örtröð og troðning.

Rýmingar vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi á Seyðisfirði. Vegurinn um Fagradal er lokaður og verður lokaður til morguns. Fjarðarheiðargöng eru nauðsynleg til að tryggja örugga heilbrigðisþjónustu á Austurlandi, segir framkvæmdastjóri lækninga á HSA:

Kjörstöðum verður lokað í Danmörku eftir rétt tæpan klukkutíma og gefin verði út útgönguspá.

Forsvarsmenn Norlandair hafa áhyggjur af því að ratsjá hafi verið tekin úr notkun á Akureyrarflugvelli, sem gat nýst vel í slæmu skyggni. Samgöngustofa segir búnaðinn ekki standast kröfur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,