19:50
Úr íslensku tónlistarlífi
Kontrabassarapsódía, þjóðlög, Elgar o. fl.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Tónlistin í þættinum:

Rapsódía fyrir kontrabassa og píanó (2011) eftir Þórð Magnússon. Þórir Jóhannsson leikur á kontrabassa og Sólveig Anna Jónsdóttir á píanó. Verkið var pantað af Þóri Jóhannssyni og frumflutt í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn í júlí 2011. Útgefið árið 2013 á plötunni: La poesie : kammertónlist eftir Þórð Magnússon

Nimrod (úr Enigma-tilbrigðunum, 1899) eftir Edward Elgar. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Hljóðritað á tónleikum í Eldborg, Hörpu árið 2019 - Klassíkin okkar - Tónlistarsagan þín. Georg Magnússon og Einar Sigurðsson stýrðu upptökum.

Nr. 6 Andante úr Sex þjóðlögum op. 6 fyrir fiðlu og píanó (1962) eftir Helga Pálsson. Björn Ólafsson leikur á fiðlu og Árni Kristjánsson á píanó. Hljóðritað 1963

Upptökur eru úr hljóðritasafni Ríkisútvarpsins. Þetta er fyrsta hljóðritun verksins.

Nú vil ég enn í nafni þínu, íslenskt þjóðlag í útsetningu eftir Ferdinand Rauter. Engel Lund syngur, Ferdinand Rauter leikur með á píanó.

Étude eftir Niccolo Paganini í umritun eftir Franz Liszt. Jórunn Viðar leikur einleik á píanó. Hljóðritun úr safni útvarps: Einleikur í útvarpssal. Hljóðritað 12.12.1947.

Sætröllskvæði, lag Jórunnar Viðar við íslenska þjóðvísu. Gunnlaugur Bjarnason, baríton syngur, og Eva Þyri Hilmarsdóttir leikur á píanó. Hljóðritun gerð á tónleikum í Salnum í Kópavogi árið 2023: Ár íslenska einsöngslagsins 2023 : Draumalandið).

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 35 mín.
,