12:42
Þetta helst
Ofbeldið á fósturheimilinu í Mosfellssveit

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, leikkona og söngkona, varð fyrir ofbeldi þegar hún dvaldi á fósturheimili í Mosfellssveit á áttunda áratugnum. Eigandi heimilisins var þýsk kona, Waltraud Paulsen, og var það hún sem beitti þessu ofbeldi segir Guðrún Glódís.

Fósturheimilið var í heimahúsi hjá Waltraud sem bjó þar ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Waltraud er fædd árið 1935 og er ennþá á lífi.

Guðrun Glódís vill að þetta fósturheimili verði rannsakað nú þegar til stendur að skipa rannsóknarnefnd til að skoða Bakkakotsmálið og mögulega mál sem tengjast öðrum fósturheimilum.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,