Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 29. janúar 2017: Sögur af landi fjalla að þessu sinni um myndir. Halla Ólafsdóttir sæki ljósmyndasafn Ísafjarðar, Dagur Gunnarsson ræðir við listamenn og Rögnvaldur Már Helgason fer í myndatöku á Akureyri.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Lagalistinn:
Jakob Tryggvason, Smárakvartettinn á Akureyri - Við göngum með horskum hug.
Karlakór Rangæinga - Syngjum bræður.
Samkór Mýramanna - Litla Stína.
Alfreð Clausen & Maria La Garde - Síðasti Dansinn.
Morávek, Jan, Tígulkvartettinn - Sveinki káti.
Sigfús Halldórsson - Tondeleyó.
Leikbræður - Fiskimannaljóð Frá Capri.
Magnús Halldórsson - Söknuður.
Tónasystur &Tríó Jans Moravek - Bergmál.
Sigurður Guðmundsson Tónlistarm. - Sama Sól.
Ingibjörg Smith - Kom nótt.
Julie London - I Guess I'll Have To Change My Plan.
Los Panchos - El Beso.
Cornelis Vreeswijk - Balladen Om Herr Fredrik Åkare.
Billie Holiday - Easy Living.
Adelaide Hall - As Time Goes By.
Kay Kyser & His Orchestra - Three Little Fishies.
KK sextettinn, Ragnar Bjarnason - Flökku Jói.

frá Veðurstofu Íslands.
Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.
Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942.
Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Lilja Alfreðsdóttir og Sigmar Guðmundsson. Viðfangsefni þáttarins var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst.
Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson
Útsending: Þráinn Steinsson

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Bandaríkjaforseti boðar herta sókn í Íran. Forseti Írans segir að frekari árásum verði ekki beint að nágrannaríkjunum aftur nema fyrst verði ráðist á Íran þaðan. Hann baðst afsökunar á fyrri árásum. Borgaraþjónustan hefur ekki enn náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátakanna.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki halda uppi málþjófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir þingmaður flokksins. Bændasamtökin setja sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um aðild að ESB.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn eiga mikið erindi því aðrir vinstri flokkar leiti sífellt meira til hægri. Landsfundur VG er um helgina og nýr formaður verður kjörinn á morgun.
Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg í morgun og hann verður lokaður fram eftir degi. Gular veðurviðvaranir eru í gildi vegna storms, éljagangs og hríðar víða um land.
Fámenn sveitarfélög sem hýsa virkjanir eða stóriðju gætu þurft að deila fasteginasköttum með fleiri sveitarfélögum nái nýtt frumvarp fram að ganga. Markmiðið er að auka heildartekjur sveitarfélaga, mest næst virkjunum en líka að dreifa þeim víðar.
Kristinn Jón Ólafsson verður oddviti Pírata í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann skákaði sitjandi oddvita í prófkjöri flokksins.
Leikur Íslands gegn Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta er við það að hefjast. Landsliðsþjálfarinn segir liðið þurfa að þora að halda boltanum gegn sterku liði.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar.
Það eru tíu ár um þessar mundir frá því bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum ríkja Evrópu; hundruð þúsunda voru þá á flótta frá borgarastríðinu í Sýrlandi og ógnarstjórn í öðrum ríkjum í leit að öryggi og betra lífi í Evrópu. Í mörgum ríkjum Evrópu hefur dregið úr samúð almennings með flóttafólki. Koma þeirra er talin vera ein af höfuðástæðum þess að vinsældir harðlínuflokka til hægri hafa aukist á undanförnum árum. Björn Malmquist skoðar þessa sögu með atburði vikunnar til hliðsjónar.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Rætt við Kjartan Má Kjartansson um uppvaxtarárin í Keflavík, störfin við Tónlistakóla Keflavíkur, fararstjórastarfið og Latabæjarverkefnið.
Umsjón: Óskar Birgisson
Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Um þjóðfélagssáttmálann fyrr og nú. Björn Þorsteinsson, heimspekingur verður gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar.
Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Jón Rafnsson bassaleikara um tónlistina sem hann hefur fengist við í Skaftafellssýslunni, Stokkhólmi, á Akureyri, í Reykjavík og víðar undanfarna áratugi. Ný plata með Djäss tríóinu heitir Tilbrigði um Gunnar Þórðarson.
Tónlistin í þættinum:
Ég á lítinn skrítinn skugga - Gunnar Þórðarson - Djäss 2026
Cowboy Samba - Niels Henning Örsted Petersen
Cantabile - Tríó Michel Petrucciani
Smoke gets in your eyes-J Kern - Björn Thor, Jörgen Svare, Jón Rafnsson
Tvær stjörnur - Megas - Delizie Italiane
Himinn og jörð - Gunnar Þórðarson - Djäss 2026
Fréttir
Fréttir
Bandaríkjaforseti heitir enn harðari árásum gegn Íran. Rúmlega þrettán hundruð hafa verið drepnir í árásum á landið síðustu vikuna, að sögn þarlendra yfirvalda.
Íslensk hjón sem voru í fríi í Mið-Austurlöndum þegar átökin brutust út eru þakklát íslenskum stjórnvöldum sem hjálpuðu þeim að komast burt frá Sádí-Arabíu.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skiptar skoðanir innan atvinnulífsins um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Fyrirtækin vilji frekar forgangsraða því að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Tugir núverandi og fyrrverandi kórbarna skólakórs Kárness fögnuðu fimmtíu ára afmæli kórsins með sönghátíð í dag.
Landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta segist stoltur af liðinu eftir tap gegn Evrópumeisturum Englands í dag.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Síðari þáttur um dauða búlgarska rithöfundarins og andófsmannsins Georgi Markov, sem lést í Lundúnum 1978 í kjölfar þess að hann var stunginn með regnhlíf.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Þrjú tríó sjá um Sveifludansana. Fyrst er Tríó Bud Powell leikur lögin Over The Rainbow, There Will Never Be Another You, Jump City, Elegy, Topsy Turvy, Coscrane og Blues For Bessie. Síðan kemur Tríó Jespet Thilo og leikur lögin Midnight Sun, Just Friends, Blue Monk, Till There Was You, On Green Dolphin Street, Stardust og Thou Swell. Síðasta tríóið er íslenskt, Tríó Sunnu Gunnlaugs, sem leikur lögin Tltekt, Dry Cycle, Workaround, All Agaze, Compassion og Endastopp.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Það kennir ýmissa grasa hjá Eiríki Hreini Finnbogasyni í Daglegu máli í febrúar 1956. Í tveimur þáttum tekur hann fyrir bréf frá áhugamönnum um íslenskt mál um til dæmis viðtengingarhátt í ef-setningum; orðin eldhúsbekkur og ginnkeyptur; notkunarsvið sagnarinnar byggja; og verkaskiptingu orðanna eitthvað og eitthvert.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Þorgeir Tryggvason segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Katalin Karoly og Amadinda slagverkshópurinn flytur söngflokkinn Síppal, dobbal, nádihegedűvel, eða Með flautum, trommum og fiðlum, eftir Georgi Ligeti.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Fjallað um Slysavarnarfélagið Landsbjörg og rætt v ið tvö leiðangursmenn úr Björgunarsveit Árskógsstrandar sem fóru í björgunarleiðangur til að bjarga hestum úr sjálfheldu í Hvammsfjalli 4. janúar 1983. Björgunarsveitarmennirnir eru Brynjólfur Sveinsson landfræðingur og kennari og Elvar Reykjalín framkvæmdastjóri. Lesið úr flugeldablaði Súlna á Akureyri en blaðið kom út milli jóla og nýárs 2008. Lesin sagan,, Sauðfé bjargað úr sjálfheldu“, eftir Anton Berg.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan á stefnumót við söngvarann Pat Boone.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. október 2007.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Lilja Alfreðsdóttir og Sigmar Guðmundsson. Viðfangsefni þáttarins var fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst.
Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson
Útsending: Þráinn Steinsson

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Gestur dagsins er söngkonan, guðfræðingurinn og kennarinn Móeiður Júníusdóttir eða Móa. Hún talar um fimm bækur sem breyttu lífi hennar og gerðu hana að þeirri manneskju sem hún er. Móa var poppstjarna á tíunda áratugnum en venti kvæði í kross í orðsins fyllstu og lærði guðfræði. Hún gerðist svo kennari og er enn. Hún er enn að gera tónlist og við heyrum nýjasta lagið hennar í þættinum.
Í siðari hlutanum heyrum við tónlist sem tengja má við atburði sem gerðust á deginum, 7. mars.
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Sandra Barilli tekur á móti Berglindi Häsler og spilar góða tónlist.
Lög spiluð í þættinum:
Bríet & KK - Gleymmérei.
Jónas Árnason, Tómas R. Einarsson, Jón Múli Árnason, Stefán S. Stefánsson, Gunnlaugur Briem, Eyþór Gunnarsson - Úti er alltaf að snjóa.
Beyoncé - Best Thing I Never Had.
Olivia Dean - Nice To Each Other.
Friðrik Dór Jónsson, Moses Hightower - Bekkjarmót og jarðarfarir.
Hjaltalín - Feels Like Sugar.
Alorian, ALASKA1867, Gross - Týnda kynslóðin.
Of Monsters and Men - Ordinary Creature.
Noah Kahan - The Great Divide.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Rosalía, Björk, Yves Tumor - Berghain (Conrad Taylor Remix)
Benni Hemm Hemm og Kórinn - Haustpeysan mín.
John Lennon - Imagine.
Laufey - Tough Luck.
Bubbi Morthens - Serbinn.
Bruno Mars - I Just Might.
Útvarpsfréttir.
Bandaríkjaforseti boðar herta sókn í Íran. Forseti Írans segir að frekari árásum verði ekki beint að nágrannaríkjunum aftur nema fyrst verði ráðist á Íran þaðan. Hann baðst afsökunar á fyrri árásum. Borgaraþjónustan hefur ekki enn náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátakanna.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki halda uppi málþjófi á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samningaviðræður við Evrópusambandið, segir þingmaður flokksins. Bændasamtökin setja sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður um aðild að ESB.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir flokkinn eiga mikið erindi því aðrir vinstri flokkar leiti sífellt meira til hægri. Landsfundur VG er um helgina og nýr formaður verður kjörinn á morgun.
Snjóflóð féll á Siglufjarðarveg í morgun og hann verður lokaður fram eftir degi. Gular veðurviðvaranir eru í gildi vegna storms, éljagangs og hríðar víða um land.
Fámenn sveitarfélög sem hýsa virkjanir eða stóriðju gætu þurft að deila fasteginasköttum með fleiri sveitarfélögum nái nýtt frumvarp fram að ganga. Markmiðið er að auka heildartekjur sveitarfélaga, mest næst virkjunum en líka að dreifa þeim víðar.
Kristinn Jón Ólafsson verður oddviti Pírata í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann skákaði sitjandi oddvita í prófkjöri flokksins.
Leikur Íslands gegn Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta er við það að hefjast. Landsliðsþjálfarinn segir liðið þurfa að þora að halda boltanum gegn sterku liði.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
„Það verður alvöru inniveður um helgina“ hafði veðurfræðingurinn Siggi stormur látið hafa eftir sér fyrir þessa helgi og þess vegna var stíla inn á notalegheit í tónlistinni og öðru í Helgarútgáfu dagsins. Þetta var svona Rás 2 í útvarpinu, litabók og litir, Sudoku, krossgátur, kakóbolli eða te, kaffi ... og gott að slaka á.
Fastur liður í Helgarútgáfunni er Meðmælasúpan góða og þau Davíð Þór Katrínarson leikari og Sigga Soffía Níelsdóttir dansari mættu fersk og sögðu frá sínum verkefnum og mæltu með ýmsu góðu úr eldhúsinu auk framúrskarandi menningarefnis.
Og í framhaldi af blessuðu veðrinu var boðið upp á samkvæmisleik til þess að finna skemmtileg lög sem fjalla um veðrið. Hlustendur létu ekki sitt eftir liggja og lögðu til dúndrandi tillögur. Eins og sjá má:
Frá kl. 12:45
ÚLFUR ÚLFUR - Sumarið
CROWDED HOUSE - Weather With You
RAKEL, HALLDÓR ELDJÁRN - Hér
BOGOMIL FONT OG FLÍS - Veðurfræðingar
BLAZROCA OG ÁSGEIR TRAUSTI - Hvítir skór
TRYGGVI - Allra veðra von
BRIMBROT - Kling Klang
Frá kl. 14:00
SNORRI HELGA, BRÍET - Mexico
VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það styttir alltaf upp
STUÐMENN - Út í veður og vind
THE WEATHER GIRLS - It's Raining Men
CORNERSHOP - Brimful of Asha (Norman Cook Remix)
ALORIAN, ALASKA 1867, GROSS - Týnda kynslóðin
FRIÐRIK DÓR - Þessi kjóll
R.E.M. - So. Central Rain (I'm Sorry)
DIABOLUS IN MUSICA - Sautján stig og sól
BLACK KEYS - Mi Tormenta
Frá kl. 15:00
PÁLL ÓSKAR - Ræ ég við róður minn
NÝDÖNSK - Þá kemur þú
GRAFÍK - Húsið og ég
WILL SMITH - Miami
ECHO AND THE BUNNYMEN - Stormy Weather
BIRNIR, TATJANA - Efsta hæð
ARETHA FRANKLIN, GEORGE MICHAEL - I knew you were waiting (for me)
KARL ÖRVARSSON - 1700 vindstig
JET BLACK JOE - Rain
BOGOMIL FONT - Á skíðum
LYKKE LI - I Follow Rivers
KATRINA AND THE WAVES - Walking On Sunshine

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg taka við keflinu af Huldu og sjá um Vinsældalista Rásar 2 alla laugardaga.
Í þætti dagsins var stiklað á stóru frá 30. að 11. sæti og topp tíu listinn tekinn alveg í gegn.
Þær litu í baksýnisspegilinn og skoðuðu eldri vinsæl lög, fóru yfir velgengni Magna í Supernova, spáðu í komandi vinsældir og gáfu U2 smá auka pláss vegna stórafmæli hljómsveitarinnar.
Lagalisti :
The Cribs - Never The Same
Olivia Dean - Baby Steps
U2 - Songs Of The Future
Baksýnisspegilinn : U2 - Angel Of Harlem
Ragnheiður Gröndal - Má Ég?
Of Monsters and Men - Ordinary Creature
Magni Ásgeirsson - The Dolphins Cry
Harry Styles - Aperture
Hjálmar - Upp Í Sveit
Addison Rae - Headphones On
Noah Kahan - The Great Divide
Baksýnisspegillinn : Europe - The Final Countdown
Spákúlan : Alorian, Alaska 1867, Gross - Týnda Kynslóðin
Topp tíu listinn:
10. Bruno Mars - I Just Might
9. Ásgeir Trausti Einarsson - Against The Current
8. Sombr - Homewrecker
7. U2 - American Obituary
6. Bubbi Morthens & Kristmundur Axel - Kominn Heim
5. Robyn - Talk To Me
4. Portugal The Man - Tanana
3. Lykke Li - Lucky Again
2. Zach Bryan - Plastic Cigarette
1. Snorri Helgason og Bríet- Mexico
Fréttir
Fréttir
Bandaríkjaforseti heitir enn harðari árásum gegn Íran. Rúmlega þrettán hundruð hafa verið drepnir í árásum á landið síðustu vikuna, að sögn þarlendra yfirvalda.
Íslensk hjón sem voru í fríi í Mið-Austurlöndum þegar átökin brutust út eru þakklát íslenskum stjórnvöldum sem hjálpuðu þeim að komast burt frá Sádí-Arabíu.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skiptar skoðanir innan atvinnulífsins um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Fyrirtækin vilji frekar forgangsraða því að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Tugir núverandi og fyrrverandi kórbarna skólakórs Kárness fögnuðu fimmtíu ára afmæli kórsins með sönghátíð í dag.
Landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta segist stoltur af liðinu eftir tap gegn Evrópumeisturum Englands í dag.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er tónlistarmaðurinn Daníel Ágúst.
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Það var einstaklega góður fílingur á Næturvaktinni í kvöld. Margir sem höfðu samband og flott samvinna sem endaði í góðum þætti.
Tónlistin í þættinum:
Ómar Guðjónsson - Lolla.
JÓNAS SIG - Milda hjartað.
PAUL McCARTNEY & WINGS - Band On The Run.
JOE COCKER - With A Little Help From My Friends.
WAY DYNAMIC - Miffed It.
GILDRAN - Værð (LP).
GusGus - Love is alone.
MOODY BLUES - For My Lady.
Amboy Dukes, the - Journey to the center of my mind.
FRÆBBBLARNIR - Bjór.
BJARTMAR GUÐLAUGSSON - Sumarliði er fullur.
CHRIS REA - The Blue Cafe.
Þorvaldur Halldórsson, Hljómsveit Ingimars Eydal - Ég var átján ára.
Ian Hunter - Once Bitten Twice Shy.
John Mayall's Bluesbreakers - All Your Love.
Black Sabbath - Iron man.
Lúdó sextett og Stefán, Lúdó sextett og Stefán - Laus og liðugur.
KINGS OF LEON - Use Somebody.
Sleaford Mods - West End Girls [Pet Shop Boys Remix] (bonus track wav).
Sleaford Mods - West End Girls [Clean].
LOUDON WAINWRIGHT III - The Swimming Song.
Uriah Heep - Stealin'.
Þorvaldur Halldórsson, Hljómsveit Ingimars Eydal - Hún er svo sæt.
BOB MARLEY AND THE WAILIERS - I Shot The Sheriff.
GOJIRA - Stranded.
DAVID GILMOUR - Comfortably Numb (Live In Gdansk 2008).