12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 12. október 2025

Útvarpsfréttir.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Miðflokksins með standandi lófaklappi en hann var einn í framboði. Kosning varaformanns stendur yfir.

Íslendingur sem afplánar erlendis fyrir manndráp hefur beðið í meira en tvö ár eftir að komast í íslenskt fangelsi. Fangelsismálastjóri segir þetta nýja stöðu og ástæðan sé fyrst og fremst plássleysi.

Neyðaraðstoð er farin að berast inn á Gaza en þó hægt. Sameinuðu þjóðirnar segja að opna verði allar leiðir þangað og hleypa um sex hundruð flutningabílum um landamærin á dag.

Lögreglan í Noregi beitti táragasi og handtók 22 mótmælendur í gær. Mótmælin beindust að knattspyrnuleik Norðmanna við Ísraelsmenn.

Heiðursvörður tók á móti Höllu Tómasdóttur forseta á flugvellinum í Peking þegar opinber heimsókn forsetans til Kína hófst í dag.

Líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fara vaxandi, segir náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands. Smáskjálftahrina mældist við Sýlingarfell í gær.

Óskarsverðlaunaleikkonan Diane Keaton lést í gær 79 ára að aldri. Hennar er minnst fyrir ógleymanleg hlutverk eins og í myndum um Guðföðurinn, Annie Hall og Föður brúðarinnar, en ekki síður fyrir sinn einstaka stíl, næmni, kímni og hlýju.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,