
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Aðalsteinn Þorvaldsson flytur morgunbæn og orð dagsins.
Eyðibýlið er viðtals og tónlistarþáttur þar sem viðmælandi er settur í þá stöðu að verða að dvelja í eina viku í einangrun á eyðibýli. Þar hefur hann allt til alls nema fjölmiðla og fjarskiptatæki. Til að stytta honum stundir fær hann að velja nokkur lög til að hlusta á, eina bók til að lesa og svo eitt þarfaþing sem hann má hafa með sér. Í þættinum gerir viðmælandinn grein fyrir vali sínu og svo því helsta sem hann myndi taka sér fyrir hendur í þessar einnar viku einveru.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum er leikin tónlist af plötum og segulböndum m.a. með Mars bræðrum, Hauki Morthens, Smárakvartettinum á Akureyri og Skagfirsku söngveitinni. Ennfremur réttarsöngvar skagfirskra bænda og húsgangurinn Skólmeistarakvæði.
Stefán Jónsson ræðir við Jón Sigurðsson, á Reynistað í Skagafirði, um Sögufélag Skagfirðinga, útgáfu Bændatals og Æviskrár Skagfirðinga, þingmennsku og fleira. Þetta er hljóðritun frá árinu 1962.
Stefán ræðir einnig við Valdimar Guðmundsson, bónda á Bólu, um Hjálmar Jónsson frá Bólu og sitthvað fleira auk þess sem Guðmundur sonur hans fer með vísu um Bólu-Hjálmar. Einnig syngur Hjörleifur Sigfússon (Marka-Leifi) húsganginn Skólameistarakvæði.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1998)

Veðurstofa Íslands.
Æskuvinkonurnar Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir fjalla um hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Sex and the City, eða Beðmál í borginni. Þættirnir hófu göngu sína í Bandaríkjunum árið 1998 og voru teknir til sýninga á RÚV árið 2000. Spaugilegar kynlífssenur, fallegir skór, vinátta kvenna, einhleypa konan, misheppnuð ástarsambönd og margt fleira verður krufið í spjalli vinkvennanna sem ræða einnig við sérfræðinga og aðdáendur þáttanna.
Umsjón: Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir.
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Vinkonurnar fjórar Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte segjast vera sálufélagar. En vináttan er ekki alltaf draumur í dós; þær fara alveg í fýlu, dæma hver aðra og rífast. Þær koma samt alltaf á endanum saman á kaffihúsinu góða í New York. Er vinátta þeirra raunsæ eða er hún frekar dæmi um fantasíu sjónvarpsþátta? Gæti hún verið fyrirmynd raunverulegrar vináttu? Nanna Hlín og Sunna Kristín velta þessum spurningum fyrir sér ásamt valinkunnum aðdáendum þáttanna.
Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Birna Ósk Harðardóttir, Edda Guðmundsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir.
Umsjón og dagskrárgerð: Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir
Hátíðarmessa í Grundarkirkju í Eyjafjarðarsveit en kirkjan fagnar 120 ára vígsluafmæli nú á haustdögum.
Prestur í Eyjafjarðarsveit er Jóhanna Gísladóttir og organisti og kórstjóri Þorvaldur Örn Davíðsson.
Kirkjukór Grundarsóknar leiðir safnaðarsöng og syngur sálma sem sumir vorueinnig sungnir við vígslu kirkjunnar fyrir 120 árum síðan.
Heiðursgestur í athöfninni er Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum sem prédikar.
Meðhjálpari er Hjörtur Haraldsson sóknarnefndarformaður og Auður Thorberg les ritningartexta.
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil: 248 Hósíanna lof og dýrð Egil Hovland
233 Indælan, blíðan, blessaðan, fríðan Viggo Sanne
265 Þig lofar, faðir, líf og önd N. Deecius og Schumann/ Sigurbjörn Einarsson
474 Lofsyngið Drottni Håndel / Valdemar V. Snævarr
110 Hreint skapa hjarta Hymnodia Sacra / Páll Jónsson
Eftir predikun
Locus Iste Anton BruchnerMaríusonur
Mér er kalt Sigríður Schiöth / Guðmundur Friðjónsson frá Sandi og Ingibjörg á Gnúpufelli
241 Virstu, Guð, að vernda og styrkja A. P. Berggreen / Helgi Hálfdánarson
Eftirspil: Sveitin mín Eiríkur Bóasson / Emilía Baldursdóttir
Útvarpsfréttir.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Miðflokksins með standandi lófaklappi en hann var einn í framboði. Kosning varaformanns stendur yfir.
Íslendingur sem afplánar erlendis fyrir manndráp hefur beðið í meira en tvö ár eftir að komast í íslenskt fangelsi. Fangelsismálastjóri segir þetta nýja stöðu og ástæðan sé fyrst og fremst plássleysi.
Neyðaraðstoð er farin að berast inn á Gaza en þó hægt. Sameinuðu þjóðirnar segja að opna verði allar leiðir þangað og hleypa um sex hundruð flutningabílum um landamærin á dag.
Lögreglan í Noregi beitti táragasi og handtók 22 mótmælendur í gær. Mótmælin beindust að knattspyrnuleik Norðmanna við Ísraelsmenn.
Heiðursvörður tók á móti Höllu Tómasdóttur forseta á flugvellinum í Peking þegar opinber heimsókn forsetans til Kína hófst í dag.
Líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fara vaxandi, segir náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands. Smáskjálftahrina mældist við Sýlingarfell í gær.
Óskarsverðlaunaleikkonan Diane Keaton lést í gær 79 ára að aldri. Hennar er minnst fyrir ógleymanleg hlutverk eins og í myndum um Guðföðurinn, Annie Hall og Föður brúðarinnar, en ekki síður fyrir sinn einstaka stíl, næmni, kímni og hlýju.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviðu beinum við sjónum okkar að Nóbelsverðlaununum. Hvað eru þau eiginlega, hverjir eru vinningshafar Íslands og hver fá þau þetta árið? Allt um Nóbelsverðlaunin í þætti dagsins.
Í þættinum er fjallað um uppgang og mikilfengleik rómverska heimsveldisins og grísk áhrif á menningu Rómverja. Rætt er um takmörk hernaðargetu Rómverja, ofsóknir á hendur kristnu fólki og hlut kristninnar í að framlengja líf rómverska heimsveldisins. Einnig er fjallað um mikilsvert framlag Rómverja til lögfræðinnar.
Umsjónarmaður er Ágúst Þór Árnason
Viðmælendur hans í öðrum þætti af tíu frá árinu 1994 eru:
Gunnsteinn Ólafsson
Sigurður Steinþórsson
Guðmundur J. Guðmundsson
Sigurður Líndal
Hugi Hjaltason
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónlist úr ýmsum áttum. Nýjar hljóðritanir Rásar 1 í bland við nýjar plötur íslenskrar og erlendrar tónlistar.
Norski stórsveitarstjórnandinn og útsetjarinn Geir Lysne stjórnaði Stórsveit Reykjavíkur á tónleikum í Silfurbergi Hörpu 9. mars 2025. Auk íslenskra og norskra þjóðlaga útsetti hann tónlist söngkonunnar Ragnheiðar Gröndal og gítarleikarans Hilmars Jenssonar , sem voru gestir stórsveitarinnar á þessum tónleikum.
Efnisskrá:
Overmåde fuld af nåde - norskt þjóðlag
Kysstu mig hin mjúka mær - íslenskt þjóðlag
Shoosabuster - Hilmar Jensson
Sofðu unga ástin mín - íslenskt þjóðlag
Ain’t no waltz - Hilmar Jensson
Vísur Vatnsenda Rósu - íslenskt Þjóðlag
Froth - Hilmar Jensson
Haustlauf - Ragnheiður Gröndal
Hilmar Jensson - gítar, Kjartan Valdemarsson - píano, Birgir Steinn Theodórsson - bassi, Einar Scheving - trommur
Trompetar: Ívar Guðmundsson, Eiríkur Orri Ólaffson, Snorri Sigurðarson og Birkir Freyr Matthíasson
Básúnur: Einar Jónsson, Eyþór Kolbeins, Stefán Ómar Jakobsson og David Bobroff
Saxófónar: Haukur Gröndal, Sigurður Flosason, Ólafur Jónsson, Jóel Pálsson og Ingimar Anderson
Ragnheiður Gröndal - söngur
Geir Lysne - stjórnandi
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Fram undir miðja 20. öld höfðu flestar götur á Akranesi nafn sem sótt var í norræna goðafræði. Skagamenn voru ekki allir jafn ánægðir með þessi nöfn og vildu heldur að götuheitin yrðu dregin af nöfnum húsa í bænum og bæja og örnefna í nágrenninu. Um þetta var rætt og ritað í bæjarblaðinu Akranesi þar til bæjarstjórn ákvað að breyta nöfnunum. Líklega er það einsdæmi að nær öllum götunöfnum í heilum kaupstað sé skipt út í einu.
Kvennafrídagurinn 1975 var ein stærsta femíníska aðgerð sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Nú þegar 50 ár eru liðin frá því hann var haldinn ræðir Sóley Tómasdóttir við femíníska aktívista um það sem gerst hefur síðan þá. Sagt er frá aðferðum, áskorunum, sigrum og samfélagslegum áhrifum femínísks aktívisma á Íslandi undanfarna áratugi.
Ljósmyndir: Snorri Zóphóníasson/Kvennasögusafn
Í þættinum segja Auður Alfífa Ketilsdóttir, Elísabet Ronaldsdóttir og Katrín Anna Guðmundsdóttir frá aðgerðum Femínistafélagsins og áhrifunum sem það hafði á þær sjálfar og samfélagið.

Veðurfregnir kl. 18:50.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Tríó Guðmundar Ingólfssonar - Það sést ekki sætari mey.
Hvanndalsbræður - X.
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm. - Það sést ekki sætari mey.
Lisberg, Jens - Urtagarðsblóman.
Upplyfting - Traustur vinur.
Dúmbó og Steini - Frækorn og flugur.
Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig.
Ingi Bjarni Skúlason - Að fljúga.
Tríó Guðmundar Ingólfssonar, Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm. - Það sést ekki sætari mey.
Hvanndalsbræður - X.
Upplyfting - Traustur vinur.
Lisberg, Jens - Urtagarðsblóman.
Dúmbó og Steini - Frækorn og flugur.
Rúnar Júlíusson - Það þarf fólk eins og þig.
Áshildur Haraldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir - 02 Flautusónata - klapp.
Gipsy Kings - Hotel California (Spanish mix).
Parton, Dolly - Stairway to heaven.
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm., Rosalia - Oral.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Guðrún Steinþórsdóttir bókmenntafræðingur og aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ. Guðrún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:
Atburðurinn e. Annie Ernaux
Móðurást: Oddný og Móðurást: Draumþing e. Kristínu Ómarsdóttur
Gervigul e. Rebecca F. Kuang
Fyrir vísindin e. Önnu Rós Árnadóttur
Tove Janson, Astrid Lindgren, Guðrún Helgadóttir, Vigdís Grímsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Isabel Allende og Toni Morrison.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við fjöllum um vopnahlé á Gaza og langa og grýtta leið til friðar milli Ísraela og Palestínumanna. Við tölum við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlands, um framhaldið og hlutverk Hamas í friðarviðræðunum. Svo fjöllum við um stjórnarkreppuna í Frakklandi og þá erfiðu stöðu sem margir Evrópuleiðtogar eru í um þessar mundir, þar sem hart er sótt að þeim bæði úr austri og vestri. Trump Bandaríkjaforseti vill að Evrópuríkin sjái sjálf um varnir Evrópu og Pútín Rússlandsforseti reynir á meðan á samstöðu ríkjanna og einingu, með skemmdarverkum, njósnum og drónaflugi sem leiðtogar Evrópusambandsins hóta því af svara af krafti.
Svo ætlum við að skoða táknið sem við þekkjum öll og notum mörg oft á dag, það er @ merkið góða, en það er núna sýningagripur á nýlistasafninu í New York. En merkið á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekki aðeins verið notað í hinum stafræna heimi.
Æskuvinkonurnar Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir fjalla um hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Sex and the City, eða Beðmál í borginni. Þættirnir hófu göngu sína í Bandaríkjunum árið 1998 og voru teknir til sýninga á RÚV árið 2000. Spaugilegar kynlífssenur, fallegir skór, vinátta kvenna, einhleypa konan, misheppnuð ástarsambönd og margt fleira verður krufið í spjalli vinkvennanna sem ræða einnig við sérfræðinga og aðdáendur þáttanna.
Umsjón: Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir.
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Vinkonurnar fjórar Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte segjast vera sálufélagar. En vináttan er ekki alltaf draumur í dós; þær fara alveg í fýlu, dæma hver aðra og rífast. Þær koma samt alltaf á endanum saman á kaffihúsinu góða í New York. Er vinátta þeirra raunsæ eða er hún frekar dæmi um fantasíu sjónvarpsþátta? Gæti hún verið fyrirmynd raunverulegrar vináttu? Nanna Hlín og Sunna Kristín velta þessum spurningum fyrir sér ásamt valinkunnum aðdáendum þáttanna.
Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Birna Ósk Harðardóttir, Edda Guðmundsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir.
Umsjón og dagskrárgerð: Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í þessum þætti er rýnt í unga karlmenn sem lesa gamlar bækur. Á sama tíma og talað er um að drengir lesi síður, er til hópur sem sækir í texta sem eru þungir, fornir og flóknir. Hertha Kristín Benjamínsdóttir bókmenntafræðingur hitti þá Þorlák Helga Þorgrímsson og Bergþór Másson til að ræða þessar bókmenntir. Af hverju sækja þessir strákar í fortíðina? Hvað er svona heillandi við gamlar texta? Hvað gefur lestur þeim sem þeir fá ekki annars staðar? Er þetta bara sérviska – eða vísbending um stærra samfélagslegt fyrirbæri?
Umsjón: Hertha Kristín Benjamínsdóttir.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Fiðlusónata nr. 4 í a-moll op. 23 eftir Ludwig van Beethoven.
Þættir verksins eru:
1. Presto
2. Andante scherzoso, piu allegretto
3. Allegro molto
Flytjendur: Vladimir Ashkenazy píanóleikari og Izak Perlman fiðluleikari.
Píanósónata í h-moll S178 eftir Franz Liszt.
Þættir verksins eru:
I. Lento assai - Allegro energico
II. Andante sostenuto - Quasi adagio
III. Allegro energico
Flytjandi: Igor Levit.
Lítið næturljóð eftir Ingibjörgu Fríðu Helgadóttur og Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur (Ingibjargir) við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Flytjendur: Ingibjargir (Ingibjörg Fríða syngur við meðleik spiladósar).
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í þessum þætti les umsjónarmaður úr upphafsköflum bókarinnar Veröld sem var eftir Stefan Zweig (1881-1942). Jafnframt segir umsjónarmaður frá Austurrísk-ungverska keisaradæminu, en það var heimaland Zweigs og það ríki sem féll í duftið að honum og samtímamönnum hans ásjáandi.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Lagalisti:
Elly Vilhjálms - Ljúfa líf.
Simone, Nina - Ne me quitte pas.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Ljúfa líf.
DIONNE WARWICK - Trains And Boats And Planes.
MADNESS - Night Boat to Cairo (80).
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Tvær plánetur.
Emilíana Torrini - Tvær stjörnur.
BJÖRK - Venus As A Boy.
KATE BUSH - Rocket Man (I Think It's Going To Be A Long, Long Time).
Teitur Magnússon - Líft í mars.
BOGOMIL FONT & MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Marsbúa chacha.
Mancini, Henry and his orchestra - Baby elephant walk.
Juanes - La camisa negra (album version).
Stuðmenn - Úfó.
THE BYRDS - Mr. Spaceman.
Þórhallur Sigurðsson - Sjálfsalinn.
Trúbrot - Starlight.
PHANTOM PLANET - California.
BONEY M - Rasputin.
DIGABLE PLANETS - Rebirth of Slick.
Pláhnetan - Funheitur (Geimdiskó).
Jamiroquai - Space cowboy.
THE BEATLES - Across The Universe.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Sumir dagar eru bara svona - það rignir á suma á meðan sól skín á aðra. En við rísum, eins og gyllt ljón og verðum eitt af blómunum.
Berndsen - The Origin.
GUSGUS - Stay The Ride.
MAGNÚS OG JÓHANN - Sumir dagar.
U2 & PAVAROTTI - Miss Sarajevo.
Etta James - Sunday kind of love
MANU CHAO - Merry Blues
Jolli og Kóla - Síkorskí þyrla
Jolli og Kóla - Gúrme
LINK WRAY - Rumble.
DUANE EDDY - Road Trip.
Eddie Cochran - Three Steps to Heaven.
EDDIE WEDDER - Rise.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
YEAH YEAH YEAHS - Gold Lion.
Útvarpsfréttir.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Miðflokksins með standandi lófaklappi en hann var einn í framboði. Kosning varaformanns stendur yfir.
Íslendingur sem afplánar erlendis fyrir manndráp hefur beðið í meira en tvö ár eftir að komast í íslenskt fangelsi. Fangelsismálastjóri segir þetta nýja stöðu og ástæðan sé fyrst og fremst plássleysi.
Neyðaraðstoð er farin að berast inn á Gaza en þó hægt. Sameinuðu þjóðirnar segja að opna verði allar leiðir þangað og hleypa um sex hundruð flutningabílum um landamærin á dag.
Lögreglan í Noregi beitti táragasi og handtók 22 mótmælendur í gær. Mótmælin beindust að knattspyrnuleik Norðmanna við Ísraelsmenn.
Heiðursvörður tók á móti Höllu Tómasdóttur forseta á flugvellinum í Peking þegar opinber heimsókn forsetans til Kína hófst í dag.
Líkur á nýju eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni fara vaxandi, segir náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands. Smáskjálftahrina mældist við Sýlingarfell í gær.
Óskarsverðlaunaleikkonan Diane Keaton lést í gær 79 ára að aldri. Hennar er minnst fyrir ógleymanleg hlutverk eins og í myndum um Guðföðurinn, Annie Hall og Föður brúðarinnar, en ekki síður fyrir sinn einstaka stíl, næmni, kímni og hlýju.
Rúnar Róberts í huggulegum sunnudagsgír með mikið af tónlist frá níunda áratugnum, "Eitís".
Topplagið 12. október 1981 í Bandaríkjunum var Arthur's theme (Best that you can do) með Christopher Cross. Þá áttu R.E.M. Eitís plötu vikunnar frá árinu 1983 en það er fyrsta plata þeirra Murmur. Og Bon Jovi og Jelly Roll áttu Nýjan ellismell vikunnar, Living Proof.
Lagalisti:
Bubbi Morthens - Lög og regla.
Lady Gaga - Abracadabra.
Sálin hans Jóns míns - Orginal.
Bruce Springsteen - Born to run.
John Denver - Take Me Home, Country Roads.
John Denver - Rocky Mountain High.
St. Paul & The broken bones - Sushi and Coca-Cola.
WHAM! - Club Tropicana.
Friðrik Dór Jónsson - Hugmyndir.
Las Ketchup - The ketchup song - Asereje (Spanglish version).
Ívar Klausen - Damage done.
Stephen Duffy - Kiss Me.
Bon Jovi og Jelly Rolly - Living Proof.
Bríet - Blood On My Lips.
Possibillies - Handaband.
Shannon - Let The Music Play.
Svala Björgvinsdóttir - Himinn og jörð.
14:00
Of Monsters and Men - Dream Team.
Yazoo - Nobody's Diary.
Role Model - Sally, When The Wine Runs Out.
The Weeknd og Daft Punk - I Feel It Coming
Elton John - Rocket Man (I Think It's Going To Be A Long Long Time).
U2 & Luciano Pavarotti - Miss Sarajevo.
Emilíana Torrini - Jungle Drum.
Hannaes og Waterbaby - Stockholmsvy.
Christopher Cross - Arthur's Theme (Best That You Can Do).
Crazy Town - Butterfly.
RAYE - WHERE IS MY HUSBAND!.
Coldplay - Feelslikeimfallinginlove.
Supergrass - Alright.
John Cougar - Jack and Diane.
15:00
Nýdönsk - Flauel.
Blondie - The Tide Is High.
Olivia Dean - Man I Need.
Level 42 - Something About You.
Sycamore tree - Forest Rain.
Máni Orrason - Fed all my days.
The Lumineers - Asshole.
Valdís og Diljá - Það kemur aftur vetur.
R.E.M. - Radio free Europe.
R.E.M. - Talk about the passion.
Morgan Wallen - Love Somebody.
UB40 - If It Happens Again.
Miley Cyrus ásamt Lindsey Buckingham og Mick Fleetwood - Sectrets
China Crisis - Wishful Thinking.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember – þar sem SinfoníaNord, Todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum.
Við heyrum líka um endurkomu Oasis en Rokkland var á lokatónleikum Oasis í Bretlandi 28. september sl. á Wembley Stadium.
Rokkland kom líka við í einum sögufrægasta rokkklúbbi breta í Oasis ferðinni – 100 Club þar sem Oasis spilaði einu sinni – og Kinks og Who, Rolling Stones, Jimi Hendrix, Muse, Cure ofl. 320 manna staður við Oxford Street númer 100. Sama fjölskyldan hefir rekið staðinn í næstum 70 ár.
Eyrarrokk er rokkhátíð eins og nafnið gefur til kynna sem fór fram í fimmta sinn á Akyreyri á dögunum á Eyrinni. Rögnvaldur gáfaði er einn af skipuleggjendum og Rokkland heimsótti hann og Bigg Maus sem er einn af þeim sem spilaði á hátíðinni í ár.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Páll Óskar lofaði sjálfum sér því eftir síðustu plötu sem hann gerði að hann ætlaði ekki að gera plötu fyrr en han hefði eitthvað að segja. „Og svo, gerðist lífið.“
Það var Kiddi Hjálmur í Hljómskálanum sem fékk þá Benna Hemm Hemm og Pál Óskar til að gera saman lag og úr varð lagið Allt í lagi. Eftir nokkra kaffibolla, trúnó um tónlist og kvikmyndir komu fleiri og fleiri lög. „Erum við óléttir? Er þetta plata?“
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm settust niður með Margréti Erlu Maack og hlustuðu á plötuna í gegn.