07:03
Morgunútvarpið
30. maí -Skúlahlaup, sjómannadagurinn, gullhvelfing o.fl.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.

Við hefjum morguninn á því að heyra af miðbæjarhlaupi helgarinnar. Fimmta árið í röð stendur verður Skúlahlaupið farið. Björn Árnason eigandi Skúla craft bar heldur utan um þetta og lítur við hjá okkur í fyrsta bolla.

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur núna á sunnudaginn. Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, ræðir við okkur.

Í vikunni voru sagðar fréttir af viðbrögðum þjóða við áætlunum Donalds Trumps og Pete Hegseths um að reisa gullhvelfingu um Bandaríkin. Stjórn­völd í Pek­ing sögðu m.a. áætlanirnar grafa und­an stöðug­leika í alþjóðamál­um. En hvað í ósköpunum erum við að tala um þarna? Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur fer í saumana á því.

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, verða gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum frumvarp sem ætlað er að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar.

Við förum síðan yfir fréttir vikunnar í lok þáttar eins og alltaf á föstudögum, í þetta skiptið með fyrrverandi þingmönnunum Guðmundi Steingrímssyni og Sigurði Kára Kristjánssyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,