07:03
Morgunvaktin
Landsbankinn, Paul Gaimard og sígild tónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans kom á Morgunvaktina og ræddi um húsið við Austurstræti sem bankinn hefur nú á sölu.

Guðbrandur Benediktsson og Sumarliði Ísleifsson sögðu frá nýrri sýningu í Sjóminjasafninu. Franski herlæknirinn og ævintýramaðurinn Paul Gaimard kom hingað til lands árin 1835 og 1836 með hópi manna sem rannsökuðu menningu, mannlíf og náttúru.

Magnús Lyngdal kom til okkar í síðasta hluta þáttarins og sagði frá fiðluleikaranum Idu Haendel.

Tónlist:

Alfreð Clausen - Þórður sjóari.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,