My way morðin

1. þáttur

Í þessum fyrsta þætti ætlum við fara langt aftur í tímann sem og rýna aðeins inn á við. Við skoðum hina mennsku rödd og áhrifin sem söngurinn hefur á tilfinningar okkar en einnig hvers vegna söngur er svona stór hluti af lífinu á Filippseyjum. Við heyrum af því hvernig ást Filippseyinga á söng hefur þróast frá landnámi til dagsins í dag og hvaða áhrif Spánverjar og Bandaríkjamenn hafa haft á sjálfsmynd þjóðarinnar og hvernig þetta allt saman endurspeglast í ást Filippseyinga á karókí.

Birt

29. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

My way morðin

Á árunum 2002-2012 voru framin alla vega 12 morð á Filippseyjum sem tengjast söng á laginu My Way í karaoke. Hvernig þetta vera? Hvað þarf skoða?

Í þessum þríleik dveljum við ekki við hvert og eitt morð heldur reynum finna mögulegar orsakir þess alla vega 12 menn voru myrtir á Filippseyjum þegar þeir sungu sama lagið í karaoke.

Við skoðum samfélags-strúktúr og menningu, þýðingu lagsins í filippeysku samfélagi, ást Filippseyinga á söng, karaoke sem útrás og listform, karaoke sem órjúfanlegan hluta af filippeysku samfélagi, stéttaskiptingu, nýlenduherrana Spánverja á 16. öld, kaup Bandaríkjanna á Filippseyjum í lok 19. aldar, kúgun, stolt þjóðar, áhrif raddarinnar og söngsins á tilfinningar okkar og mögulega yfirnáttúrulega krafta og andsetið lag.

Viðmælendur:

Bragi Valdimar Skúlason

Eygló Höskuldsdóttir Viborg

Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson

Ingibjörg Stefánsdóttir

Margrét Erla Maack

Marj Einarsson

Michael Charlston (Xiao) Chua

Lestur:

Gígja Hólmgeirsdóttir

Jóhannes Ólafsson

Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

Aðstoð við framleiðslu: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,