12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 30.maí 2025

Útvarpsfréttir.

Leit að sundmanni, sem talið er að hafi örmagnast úti fyrir Örfirisey við Reykjavík í gær, hefst að nýju klukkan tvö. Gert er ráð fyrir að hátt í tvö hundruð manns leiti hans.

Hamas-samtökin hafa ekki svarað tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé á Gaza, sem ísraelsk stjórnvöld samþykktu í gær. Í morgun var aftur skotið á fólk sem reyndi að sækja sér mataraðstoð.

Fimm flugumferðarstjórum hjá dótturfélagi Isavia hefur verið sagt upp fyrir að skrá á sig fleiri tíma en þeir unnu. Það varð til þess að þeir höfðu ekki gilt leyfi til að stjórna flugumferð.

Ekki verða gerðar breytingar á því hve mikið má veiða daglega á yfirstandandi strandveiðitímabili, samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvegaráðuneytinu. Í haust verður skoðað hvort gera þurfi breytingar á því hvað mikið er heimilt að veiða í hverri ferð.

Þingeyjarsveit hyggst loka leikskólanum á Laugum í Reykjadal. Foreldrar mótmæla og óttast að fjölskyldufólk flytji burt.

Kartöfluhnúðormur hefur í fyrsta sinn greinst í kartöflugörðum í Þykkvabæ. Ormurinn, sem leggst á ræturnar á kartöflunum, getur rýrt uppskeru bænda en hann er ekki hættulegur mannfólki.

Til stendur að finna nýjan stað fyrir hjólhýsabyggðina á Sævarhöfða í Reykjavík. Formaður Samtaka hjólabúa segir íbúa langþreytta á bágri aðstöðu.

Ísland mætir Noregi í Þjóðadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Fyrirliði Íslands segir að þær ætli að hirða öll stigin.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,